Vesturland

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Vesturland - 01.12.2007, Qupperneq 10

Vesturland - 01.12.2007, Qupperneq 10
JOLIN DRAGA FRAM BARNIÐ í OKKUR ÖLLUM Einar K. Guðfínnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skrifar: Hvernig ætli standi á því að jól bernskunnar standi manni ætíð svona nærri hugskotssjónum? Getur skýringin ekki verið sú að á jólunum kemur barnið upp í flestum. Jólin eru hátíð friðar og fegurðar, sakleysis og góðra siða. Börnin og hugsun jólanna tvinnast saman einmitt í þessu. Því sakleysi og kristilegu hugarfari sem við viljum öll að sé hluti helgihalds jólanna. Einar K. Guðfinnsson og systkini hans, Haraldur og Guðrún Kristín, ásamt föður sínum, Guðfinni Einarssyni, og móðurömmu, Guðrúnu Bjarnadóttur. Sakleysi barnanna og ró jólafrið- arins eru það sem við sækjumst öll eftir. Fyrir vikið eru það einmitt jól bernskunnar sem við kunnum svo vel að meta. Þó bemskujólin séu manni fjærst í tíma, koma þau ljóslifandi upp í huga manns þegar að jólum er hugað. Jólasiðir bernskuheimilisins fylgja manni í farteskinu um ókomna tíð og móta þá hætti sem viðteknir verða á heimili manns - vitaskuld í góðri sátt við siði þá sem maki manns vill halda í heiðri. Stundum finnst mér þó að jól bemskunnar séu órafjarri. Ekki bara í ámm; þó sannarlega verði ég að viðurkenna að hálfrar aldar maðurinn geti ekki ekki lengur státað af blóma æskunnar og verði að fara aftur undir miðja síðustu öld til þess að rifja upp bernsku- jólin. En hitt er kannski ennþá fjar- lægara að rifja upp þá gjörólíku mynd samfélagsins sem einkenndi bernsku bolvísks barns á þeim árum sem ég sleit barnsskónum. Veit ég vel að myndin er ömgg- lega ekki raunsönn. En samt finnst mér að jólin í Bolungarvík hafi alltaf verið hvít. Það var ætíð gott veður og stillt, snjór yfir öllu, frost í lofti; allt eins og maður sér í feg- urstu myndum af hvítum jólum. Er það fortíðarþráin sem veldur þessu? Kannski og er það þá ekki til marks um þá góðu minningu sem jólin vekja upp hjá manni eftir að hafa siglt ólgusjó lífsins. En hvað boðuðu þá jólin í Vfk- inni í hugum okkar krakkanna á sjöunda áratugnum? Var það kannski þegar verslanimar fylltust af ávöxtum, bókum, sælgæti og leikföngum í byrjun aðventu? Ekki er það ólíklegt. Einarsbúð var í hugum okkar stór undra- veröld þar sem úrval jólavömnnar var ótrúlegt. Flæmi verslananna suður í Reykjavík eða í útlöndum sem flestir þekkja núorðið, eru örugglega ekki meiri undraveröld en búðin í Víkinni, þegar búið var að fylla hillur með leikföngum, eða eftir að angan ávaxtanna lagði fyrir vit okkar og boðaði sannar- lega komu jólanna. „Einarsbúð var í hugum okkar stór undraveröld þar sem úrval jóla- vörunnar var ótrúlegt.“ Svo var þetta allt saman svo miklu afdráttarlausara. Vörurnar komu með stútfullu strandferða- skipinu; ekki smám saman heldur í einni stórri sendingu eða því sem næst og gjörbreytti lífi okkar. Við krakkarnir störðum í hillurnar og veltum því fyrir okkur hver hinna girnilegu jólavara rataði í harðan pakkann á aðfangadag. Og úti í Bjarnabúð biðu svo bækurnar og sem mörkuðu líka jólin og nærveru þeirra. Ef til vill var síðan rennt inn á Isafjörð þar sem maður skynjaði skreyttar göturnar og Silfurtorgið líkt og framandi ver- öld. Göturnar fullar af fólki til- Rogginn við stýrið á fyrstu upp- vaxtarárunum á Sauðárkróki. finningin var eins og að fara til fjarlægari staðar. En þrátt fyrir að tælingarmáttur hins forgengilega, ætti greiða leið að hugum okkar, eins og annarra barna, fór þó ekkert á milli mála að hátíðleiki jólanna og helgi þeirra skildi eftir sterkustu minninguna. Hefðbundinn undirbúningur á heimilinu. Fastar skorður sem ríktu í kring um allt sem því viðkom voru ógleymanlegar og í rauninni líka algjörlega óvéfengjanlegar. A aðfangadag lagði alltaf enn hina höfgu angan skötunnar frá Þorláksmessu fyrir vit manns. Hún vék þó smám saman þegar líða tók á aðfangadag, fyrir ilmi jólarjúp- unnar, sem mamma eldaði svo listavel. Annars var aðfangadagur alltaf óskaplega erfiður, lengi að líða og kallaði fram óþolinmæði. Stundum styttum við bræðurnir okkur stundina með því að slást eða tuskast. En sá siður var þó ekki talinn fallegur á mínu heimili á að- fangadaginn sjálfan og var því bannaður. Freistingarnarlágu inn- pakkaðar, undir jólatrénu og biðu þess að vera opnaðar. Þegar helgi jólanna hafði haldið innreið sína, fórum við öll í okkar besta pússi upp í bflinn okkar og stefnan var sett á Hólskirkju. Það gekk ekki alltaf þrautalaust að koma ein- drifnum fólksbílnum upp eftir, en tókst að lokum. Eg hef aldrei setið jólamessu sem staðist hefur samjöfnuð við aðfangadagsguðsþjónustuna í Hólskirkju á þessum árum og að hlusta á jólaguðspjallið sem prest- urinn okkar hann sr. Þorbergur Kristjánsson las með sinni sér- stöku hrynjandi; kvað skýrt að, svo hvert einasta orð var numið - og hugurinn hætti að reika heim aðjólatrénu. Við lokguðsþjónust- unnar þegar við tókum öll undir, böm og fullorðnir, með okkar góða kirkjukór og sungum Heims um ból, voru jólin búin að taka sér bólstað í hjarta manns. Mér hefur aldrei tekist að upplifa helgi jól- anna eins sterkt og einmitt þá. Fyrir utan kirkjunna var kysst og faðmast og óskað gleðilegra jóla. Við vorum öll, eins og ein fjöl- skylda, kirkjugestimir sem stóðum utan við kirkjuna okkar, í senn glöð og meyr og tilhlökkunin aftur búin að taka sér bólstað í hugum okkar smáfólksins. „Við vorum öll, eins og ein fjölskylda, kirkjugestirnir sem stóðum utan við kirkjuna okkar...“ En þegar við vorum síðan komin heim, búin að syngja saman Heims um ból og kveikja á frí- múrarakertinu hans pabba, var hugarróin orðin slfk að spenningur vegna jólapakkanna lagaðist við það eitt fá að opna einn pakkann áður en sest var að borðum. Einhvern veginn skera sig ekki úr nein einstök jól. Þau voru öll gleðileg og góð. Þeim fylgdi líka mikil tilhlökkun að hittast ájóla- dag í jólaboði sem föðurfólkið mitt skiptist á að halda, bera saman bækumar með frændum og frænk- um og taka þátt í gleðinni sem er því samfara að tuttugu til þrjátíu krakkarhittast áeinu heimili, nest- uð jólapökkum til þess að sýna og segja frá. Ofan í Félagsheimili var síðan steðjað á milli jóla og nýárs. Kven- félagið gekkst fyrir jólaskemmtun. Það mætti jólasveinn á svæðið og við vorum leyst út með epli og sælgæti í poka. Við vomm himin- lifandi. Inni á Isafirði beið manns Frfmúrarajólaball, þar sem við hittum ókunnuga krakka, prúðbúna eins og við, sem síðar urðu á vegi manns aðeins fullorðnari og rifj- uðu upp þessa liðnu daga. I dag fagnar ungviðið jólunum. Ekki eins og við, enda hafa tímamir breyst. Eg veit þó af bömunum mínum að jólin eiga ætíð sinn fasta sess í hugum ungra barna. Jólin eru nefnilega hátíð barnanna og draga fram barnið í okkur öllum. Það eru gildi jólanna sem við skul- um öll reyna að varðaveita ævi okkar alla. ORKUBU.VESTFJARÐA Orkubú Vestfjarða óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla o<$ farsældar á komandi ári. 10

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.