Vesturland

Årgang

Vesturland - 01.12.2007, Side 11

Vesturland - 01.12.2007, Side 11
AÐVENTAN Á BORÐEYRI Kristín Árnadóttir, skólastjóri og djákni, skrifar: Senn líður að jólum og stendur undirbúningur þeirra nú sem hæst, en þessi tími er ýmist nefndur jólafasta eða aðventa og er hugsuð sem undirbúningstími fyrir fæð- ingarhátíð frelsarans og nefnist á latínu „adventus" og merkir til- koma. A aðventunni njótum við gjaman aðventuljósa og hljóma og opnum hugi okkar og hjörtu fyrir anda Guðs. Við hlýðum á fagra tónlist, sungna og leikna, sem helg- uð er aðventu og jólunt, þakklát fyrir samveru og að finna nærveru Drottins í húsi hans. Aðventusiðirnir eru orðnir nokkuð fastmótaðir hjá okkur í Grunnskólanum á Borðeyri sem er fámennur skóli með þrettán nem- endum í 2.-7. bekk. Auk þess að skreyta skólahúsið hátt og lágt, út- búa jólakort, skera út laufabrauð, safna í bauk fyrir Hjálparstarf kirkjunnar í stað þess að gefa hvert öðru pakka, og afhenda hann prest- inum, sem kemur oft í skólann, leika jólaguðspjallið á litlu-jólun- um og syngja jólalög og sálma; þá flytja öll börnin helgileik á að- ventuhátíð sóknanna tveggja við Hrútafjörðinn, ýmist í Prestbakka- eða Staðarkirkju. Enn fremur flytja þau helgileikinn fyrir aldrað heimilisfólk á sjúkrahúsinu á Hvammstanga, gefa hverjum og einum jólagjöf sem þau hafa sjálf útbúið, syngja og leika á hljóðfæri og hljóta að launum strok um kinn, klapp á koll eða faðmlag, auk gleðinnar að gleðja. Við vitum hve auðveld leið bama er að hjörtum hinna öldruðu, en slíkar heim- sóknir eru ekki síður lærdómsríkar fyrir börnin. Bæhreppingar sýndu þá djörf- ung og framsýni árið 2001 að endurreisa skólann sem hafði legið niðri í sex ár vegna barn- fæðar, en þá hafði bömunum fjölg- að m.a. með tilkomu unga fólksins í sveitina. Fyrsta árið voru nem- endur sex, allt stúlkur, í 1 .-3. bekk. Þetta gerist á tímum sameiningar sveitarfélaga og hagræðingarþeg- ar fámennir skólar voru ýmist af- lagðir eða sameinaðir stærri skól- um. Sveitarfélagið rekur enn fremur dagvistun (leikskóla) fyrir tíu böm á aldrinum 2-4 ára í skóla- húsinu, í góðu samstarfi við gmnn- skólann, en starfsemi hennar fylgir starfi hans, þ.e. skólasetning er sameiginleg fyrir báða í ágúst, jóla-og páskaleyfi ganga jafnt yfir, svo og árshátíð, foreldrakvöld, leikhúsferðir og annað félagsstarf og svo skólaslitin í júníbyrjun. Enn fremur sækja öll dagvistunar- börnin tónmenntatíma með yngri deild, eru með í kirkjuskólanum hálfsmánaðarlega og allir matast saman á morgnana og í hádeginu. Kristín Arnadóttir, skólastjóri og djákni á Borðeyri, ásamt eiginmanni sínum Einari H. Esrasyni. Eldri nemendur sýna dagvistunar- börnunum mikinn áhuga og að- stoða þau oft, til gagns og gleði. Bæhreppingar búa vel að skól- anum sínum, er hefur góðu og samstarfsfúsu fólki á að skipa og gerirþennan sveigjanleika mögu- legan, sem ég tel vera til mikillar farsældar. Enn fremur njóta þeir og aðrir íbúar í Húnavatnsprófastsdæmi velvilja kirkjuyfirvalda þar sem djákni var, fyrr á árinu, ráðinn í fyrsta skipti til prófastsdæmis í hinum dreifðu byggðum, en starf djákna nefnist kærleiksþjónusta og felst í henni ýmiss konar um- önnun, líkn og uppeldisstarf. Eins og hið fagra hugtak bendir til, felst í því aðstoð við þá sem eru hjálpar þurfi, t.d. með heimsóknum og liðveislu og er ekki síst átt við aldr- aða í samfélaginu, þeir sem lagt hafa svo mikið af mörkum og verðskulda kærleika okkar og um- hyggju. Djáknar hafa komið inn í starfsemi kirkjunnar í auknum mæli hin síðari ár, en starfið er rakið allt til frumkirkjunnar og er Stefán píslarvottur talinn hafa verið fyrsti djákninn (Post, 6,1-7). Djáknar sinna enn fremur barna- starfi, geta þjónað við guðsþjón- ustu, annast helgistundir og fyrir- bænir og mega predika í samráði við sóknarprestinn, en margir þeirra fagna mjög ráðningu og vígslu djákna í kirkjunni. Megi blessun Drottins vaka yfir okkur öllum og hjálpa okkur til að fagna jólagjöf Guðs Föður til okkar, bama sinna, gjöfinni sem helgar allt mannlegt með návist sinni. Þegar ég kvaddi ísafjarðarbæ í fyrrasumar eftir allan þennan tíma og hélt suður á bóginn, þá áði ég á gömlum slóðum í Reyk- hólasveit, tók upp nestið og hvfldi hestinn og mig. Eitthvað tafðist ég á tali við heirna- fólk; hér er ég enn. Og fer væntanlega ekki lengra í bráð. Reykhólahreppur er svo stór að hann fyllir heila sýslu. Eini hreppurinn í Austur- Barðastrandarsýslu. Spannar svæðið frá Kjálkafirði skammt fyrir austan Flókalund og allt suður í Gilsfjörð. Og svo er lflca mestur hluti Breiðafjarðareyja, en þær eru óteljandi eins og kunnugt er. Það er svo merkilegt, að héðan frá Reyk- hólum er álíka langt að keyra á Patreksfjörð, þar sem sýslumaðurinn okkar situr, og alla leið til Reykjavíkur. Sá er þó munurinn, að leiðin suður er öll með bundnu slitlagi en leiðin til Patreksfjarðar liggur um versta þjóðveg landsins. JÓLAKVEÐJA ÚR STÓRUM HREPPI Hlynur Þór Magnússon skrifar: Tilvera okkar er undarlegt ferðalag á mis- jöfnum vegum. Þegar ég kom til Isafjarðar haustið 1985 ætlaði ég ekki að vera nema veturinn. Minn gamli vinur og vinnufélagi á fyrri tíð syðra, Björn Teitsson skólameistari, nuddaði í mér allt sumarið að koma og bjarga íslenskunni hjá sér, eins og hann komst að orði. Eg kom og bjargaði íslenskunni. Svo liðu árin. Og svo áttar maður sig allt í einu á því, að árin eru liðin. Ævin virðist svo löng þegar litið er fram á veginn í upphafi ferðar, eiginlega endalaus. En þegar litið er um öxl að ferðarlokum er þetta eiginlega ekki neitt. Bara svolítill vegarspotti, misgóður. Mig minnir að eitthvað hafi ég komið við sögu þessa blaðs sem heitir því víðfeðma nafni Vesturland. Og fieiri vestfirskra blaða. I tengslum við þann vettvang, ekki síður en í störfum mínum við Menntaskólann á Isafirði, kynntist ég mörgu fólki. Eg leyfi mér að óska vinum og kunningj- um sem þessar línur lesa gleðilegra jóla og farsældar í framtíðinni. Hlynur Þór Magnússon, blekbóndi á Reykhólum við Breiðafjörð. VST er elsta og jafnframt ein stærsta verkfræðistofa landsins og hefur ávallt verið í fararbroddi verkfræðistofa við mannvirkjagerð á íslandi. Hún býður viðskiptavinum upp á fjölbreytta þjónustu og sinnir verkefnum á ýmsum sviðum verkfræðinnar, t.d. byggingar-, véla- og rafmagns- og umhverfisverkfræði. I/W Verkfræðistofa Wm3M Sigurðar Thoroddsen hf. Hafnarstræti 1, 400 ísafirði • Sími 456 3708 • www.vst • vstis@vst.is ll

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.