Skutull - 01.12.1977, Síða 6
SKUTULL
6
Hálfrar aldar afmæli
Alþýðusambands Vestfjarða
í síðasta tbl. SKUTULS var sagt frá 23. þingi Alþýðusambands
Vestfjarða og helstu samþykktum, sem þar voru gerðar. Þetta þing
A.S.V. var jafnframt afmælisþing því á þinginu var þess minnst, að hálf
öld er liðin frá stofnun Alþýðusambands Vestfjarða. Sambandið var
stofnað 20. mars árið 1927 og hét upphaflega Verkalýðssamband
Vestfjarða.
Sambandssvæði A.S.V. er Vestfjarðarkjördæmi. Aðildarfélög þess
eru nú 16 og meðlimatala félaganna 2082.
Sá maður, sem lagði grund-
völlinn að starfi verkalýðssam-
takanna á Vestfjörðum var
Finnur Jónsson, sfðar alþing-
Ingólfur Jónsson
ismaður og ráðherra. Hann var
þá póstmeistari á ísafirði en
hafði kynnst jafnaðarstefnunni
á Akureyri og gerðist brátt
helsti og áhrifaríkasti forvígis-
maður jafnaðarsefnunnar og
verkalýðssamtakanna eftir að
til ísafjarða kom. Fyrsta þrek-
virki Finns í þeim efnum var
starf hans innan Vlf. Baldurs,
en undir stjórn hans varð félag-
ið eitt öflugasta og áhrifarík-
asta verkalýðsfélag landsins.
Forráðamenn Vlf. Baldurs og
Félags Alþýðuflokksins á tsa-
firði undir forustu Finns Jóns-
sonar hófu nú undirbúning að
skipulegri uppbyggingu verka-
iýðshreyfingarinnar á Vest-
fjörðum. Á fundi i Baldri 31.
okt. 1926, sem haldinn var í
samkomusal Hjálpræðishers-
inSjbar Finnur fram eftirfarandi
tillögu:" Fundurinn samþykkir
að kjósa þrlggja manna nefnd
til að undirbúa og koma á stofn
Verkalýðssambandi Vest-
fjarða".
Finnur Jónsson
Tillagan var samþ. sam-
hljóða og í nefndina voru kosn-
ir: Finnur Jónsson, Halldór
Ólafsson, múrari og Ingólfur
Jónsson.
Nefndin gekk ötullega til
verks og 20. mars 1927 boðaði
hún til stofnþings Verkalýðs-
sambands Vestfjarða, og var
þingið sett f Kaffistofu Templ-
ara. Auk nefndarmanna sátu
stofnþingið 12 fulltrúar og voru
þeir frá þessum félögum: Jafn-
aðarmannafélaginu á tsafirði,
Vlf. Baldri, Sjómannafélagi fs-
firðinga, Verkalýðsfélagi Hnffs-
dælinga, Verkalýðsfélagi Bol-
ungarvíkur og Verkalýðsf. Ún-
undarfjarðar.
Af þessum rótum er Alþýðu-
samband Vestfjarða vaxið.
Strax hóf Verkalýðssambandið
ötult uppbyggingarstarf og
snéri sér einkum að stofnun
félaga og t.d. voru tvö verka-
lýðsfélög stofnuð næstu vik-
urnar fyrir atbeina sambands-
ins, þau voru: Vlf. Alftfirðinga
og Vlf. Patreksfjarðar.
Hannibal Valdimarsson
Fullyrða má, að engin sam-
tök hefi dugað vestfirkri alþýðu
til lands og sjávar betur í hags-
muna- og framfarabaráttunni
en Alþýðusamband Vestfjarða,
sem jöfnum höndum hefir verið
það afl, sem torfærunum ruddi
úr leið og sú kjölfesta og líf-
akkeri, sem treyst var á þegar
veður gerðust válynd og öfug-
sjóir og andbyr lokuðu flestum
leiðum.
Á stofnfundi A.S.V. var
Ingólfur Jónason, bæjarstjóri á
fsafirði, kosinn forseti sam-
bandsins og gegndi hann því
starfi tll ársins 1931 að Finnur
Jónsson, síðar dómsmálaráð-
herra, tók við og var hann for-
seti A.S.V, tll ársins 1935. Það
ár tók Hannibal Valdimarsson,
sfðar félagsmálaráðherra, við
forsetastarfi í A.S.V. og hafði
það með höndum til ársins
1954, eða í 20 ár og hefir eng-
inn verið forseti A.S.V. lengur.
BJörgvin Sighvatsson, skóla-
stjóri, tók við af Hannibal og
gegndi starfinu til 1970, en það
ár tók núv. forseti A.S.V. Pétur
Sigurðsson, við embættinu.
Björgvin Sighvatsson hefir
gegnt trúnaðarstörfum á veg-
um A.S.V. lengur en nokkur
annar. Hann var starfsmaður
A.S.V. f mörg ár í forsetatíð
Hannibals og átti sæti í stjórn
þess sem varaforseti í tvö kjör-
Björgvin Sighve.tsson
tfmabil eftir að hann lét af for-
setastarfi þess.
Allir forsetar A.S.V. að
Ingólfi Jónssyni undanskildum
hafa jafnframt verið formenn
Vlf. Baldurs á ísafirði. Þegar
nánar er gætt, er það engin
tilvitjun heldur eðlileg nauð-
syn. Verkalýðsfélagið Baldur
hefir ætíð verið virkt og leið-
andi afl innan verkalýðssam-
takanna, ekki hvað síst á Vest-
fjörðum. Vlf. Baldur hefir oft
brotið ísinn og vísað veginn
f kjaramálunum og verið hinum
fámennari og máttarminni
verkalýðsfélögum ómissandi
verndarvættur og bakhjarl
þegar til átaka hefir dregið varð-
andi kjara- og kaupgjaldsmál-
in.
Aðal áhrifa af starfi sam-
bandsins hafa fyrst og fremst
gætt á vettvangi kaupgjalds og
kjarabaráttunnar og hefur sam-
bandið á margan hátt gegnt
merkilegu og mikilvægu for-
ustuhlutverki á liðnum áratug-
um.
Frá árinu 1949 að samband-
inu tókst að koma á heildar-
samningum um kaup og kjör
landverkafólks, hefur einn
heildarsamningur gilt milli
verkalýðssamtakanna og at-
vinnurekenda á Vestfjörðum.
Samningar þessir hafa ým-
ist verið gerðir í tengslum við
samninga heildarsamtakanna
um land allt og stöku sinnum
að eigin frumkvæði
verkalýðsfélaganna á Vest-
fjörðum á vegum A.S.V.
i árslok 1952 var gerður
heildarsamningur um kaup og
kjör háseta, matsveina og vél-
stjóra á skipum sem veiðar
stunda með línu, netum, botn-
vörpu, dragnót og handfærum,
við Útvegsmannafélag Vest-
fjarða. Síðan hefur einnig giit
einn samningur milli aðila um
kjör sjómanna.
Heildarsamningur við smá-
bátaeigendafélögin á Vest-
fjörðum, um kaup og kjör sjó-
manna á bátum undir 30 rúml.
hefurgilt hér síðan 1969.
í samningnum um kaup og
kjör sjómanna hafa vestfirskir
sjómenn gegnt mikiivægu for-
ustuhlutverki fyrir sjómanna-
sfettina f heild og verið öðrum
til fyrirmyndar.
Það sem elnkum hefur ein-
kennt allt starf A.S.V. er sú
trausta samstaða, sem skapast
hefur milli hinna einstöku sam-
bandsfélaga á þessu dreifða
félagssvæði, þar sem ógreitt er
um samgöngur megin hluta
ársins. Batnandi samgöngur
síðari ár hafa gert samstarfið
nánara og framlag félaganna
Við óskum öllu starfsfólki okkar
á sjó og landi, viðskiptavinum,
svo og öllum Vestfirðingum,
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs,
og þökkum viðskiptin
á líðandi ári.
Sinar(juð(jinnsson kfa.
íshúsfél. Bolungorvíkur hi.
Bnldur hf. — Röst hf.
Við stóðumst'ékki freistinguna að stæla einn ostinn J
þeirra og kölium .hann Hnetuost. •
Hnetuostur er ábætisostur úr Maribó-, Gouda-,
Óðalsosti og rjóma. Að ofan er hann þakínn
valhnetukjörnum, að utan söxuðum hnetum^-^
ostur er veizlukostur ®
^ÍXlO***