Skutull

Årgang

Skutull - 01.12.1977, Side 10

Skutull - 01.12.1977, Side 10
10 SKUTULL Helgi Björnsson, Hnífsdal: Minningarbrot úr byggingarsögu Fossa vatnsvirkjunarinnar Ætluni er, að Orkubú Vestfjarða yfirtaki eignir og rekstur Rafveitu ísafjarðar um n.k. áramót. Rafveita (safjarðar heyrir því brátt sögunni til. Saga Rafveitunnar er margþætt og merklieg. Þetta fyrirtæki hefir þjónað Isfirðingum vel þá röska fjóra áratugi, sem það hefir starfað. Það hefir lagt grundvöllinn að þvf trausta athafnalífi, sem hér hefir dafnað og fært fólki hagsæld og öryggi. Rafveitan var byggð f heimskreppunni miðrl. Þeir, sem börðust mest fyrir framkvæmdinni voru for- ráðamenn Alþýðuflokksins í bænum, traustir menn og harðduglegir, sem trúðu á mátt og megin alþýðunnar og félagslega samstöðu um lausn aðkallandi vandamála. ( augum peningafurstanna skorti (sfirðinga allt til að ráðast f slfkt stórvirki sem Fossvatnsvirkjunln var á sfnum tfma. En eitt sást þelm yfir, viljaþrek forystunnar, áhuga almennings og harfylgi verkamanna, sem þarna unnu. Fossvatnsvirkjunln tók til starfa 13. febr. 1937 og síðan heflr R.f. malað (sfirðingum gull. En nú er hlutverki hennar loklð. Ráðamenn bæjarfélagslns hafa tekið þá ákvðrðun að láta Orkubúið taka við hlutverki Rafveitunnar, og taka við þei(ri arflelfð.sem hún hefir skapað á llðnum árum. Vonandi stuðla þau umsklpti að auknu öryggi Vestfirðlnga í orku- málum. En við slfk þáttaskil vakna margar mlnningar f hugum eldri borgaranna, ekki síst hjá þeim, sem unnu hðrðum höndum við erflð skilyrði að fyrstu virkjunarfram- kvæmdum. Einn þeirra, Helgi Björnsson, rifjar hér upp minningarbrot frá þessum tíma: Heimskreppan var í algleym- ingi og atvinnuleysið herjaði í Bandaríkjunum og Vestur— Evrópu. Árin 1935 og 1936 var einna þyngstískauti hjáiíslensk- utn verkamönnum. Atvinnuleys- ið var algjört, örbigðin var mikil. Skortur og fátækt setti svip sinn á alþýðuheimilin og margir verkamenn áttu naumast til hnífs og skeiðar. Þeir sem best voru settir, fengu af og til ein- hver snöp og þar sem verð brýnustu nauðsynja var lágt, þá björguðust flestir hjálparlaust. (sfirsku kratarnir sögðu þessu hörmungarástandi stríð á hendur og vildu tryggja hverri vinnufúsri hönd verkefni. Einna harðast hafði atvinnuleysið sorfið að Eyrhreppingum, og áttu þeir fárra kosta völ til úr- bóta, þar til þeir urðu aðnjót- andi viðreisnarbaráttu kratanna á (safirði, sem á þeim árum gengu undir bolsanafninu en ekki kallaðir hægri kratar þótt slíkan stimpill fengju þeir síðar. Kratarnir voru alls ráðandi í bæjarstjórninni. Meirihlutinn tók þá ákvörðun að hefja virkj- unarframkvæmdir við Fossavatn og byggingu stöðvarhúss í Engidal. Að sjálfsögðu vakti þetta harða gagnrýni og and- stöðu ákveðinna afla í bænum, einkum eigenda svonefnds Raf- lýsingarfélags, en þeir áttu gamla Bolendervél, 8 ha, og töldu ástæðuiaust að leggja út í milljónaævintýri í orkumálum, slíkt væri hreinn óþarfi. Og af- staða bankavaldsins og hand- langara þess var áþekk. Þetta voru hjáróma raddir, almenn- ingur í bænum hafði áhuga á málinu og fylgdi krötunum fast að málum. Flestir Hnífsdælingar voru sama sinnis og Eyrarhreppur gerðist aðili að málinu enda þurfti hreppurinn ekkert fjár- magn að leggja fram, en hann átti vatnsréttindin og heimilaði afnot þeirra og var það vel sloppið, því hvaða gagn var að slíkum orkugjafa án virkjunnar- mannvirkja. Guðmundur G. Hagalín Áróðursmeistarinn. Undirbúningur framkvæmd- anna var tímafrekur og lögðu forvígsmenn bæjarins mikið og óeigingjarnt starf fram í þeim efnum. Fjöldi funda var haldinn um málið og mikill og markviss á- róður rekinn fyrir hagnýtingu og hagkvæmni raforkunnar. Þáttur Guðm. G. Hagalín, rit- höfundar, í þeim efnum var ó- metanlegur enda var hann allra manna slyngastur í áróðri og málafylgju og kom sér það oft vel, þegar hann var að keyra áfram ýmiss framfara— Og hagsmunamál bæjarins. Sagt var, að Guðm. Hagalín hefði verið óvenju snemma á ferli dag hvern vorið 1935. Lagði hann þá leiðir sínar þangað, sem fjölmennis var von. Þegar hann rakst á einhvern á förnum vegi sagði hann gjarnan: „Guð gefi þér góðan daginn,- gott er nú blessað veðrið. Ekki vænti ég að megi bjóða þér í nefið? og rétti um leið kýrhorn eitt mikið fullt af neftóbaki að viðmælenda sínum. „Heyrðu, nú væri ekki amalegt að hafa ódýrt rafmagn, ja - pú, en sú blessuð blíða, já - bæði til suðu og upphitunar, maður losnaði þá alveg við bansetta reykjar- svæluna og ekki eru nú kolin aldeilis gefin frekar en fyrri dag- inn, - eða hugsaðu þér, að sleppa við allt sótið og kolaryk- ið“. Þannig var allra ráða neytt til að vekja athygli og áhuga almenn- ings á framkvæmdinni. Meginhluti þess, sem snerti framkvæmdastjórn, verksamn- inga, lántökur innan lands og utan hvíldi aðallega á herðum Finns Jónssonar, sem þá var þingmaður bæjarins, en F.J. var harðduglegur og traustur framkvæmdamaður, sem kom miklu góðu til leiðar fyrir alþýðu landsins. Þeir Finnur og Haga- lín áttu drýgstan þáttinn i að lyfta þeim Grettistökum í félags- legum umbótum og atvinnu- málum ísafjarðar, sem vöktu hvað mesta athygli á ,,Rauða bænum". Framkvæmdir hefjast. Snemma sumars var hafist handa og öllum var Ijóst, að nauðsynlegt var að allri úti- vinnu yrði lokið áður en vetur gengi í garð. Fyrst þurfti að leggja veg fram að Engildals- bænunum og að væntanlegu stöðvarhúsi. Efnisflutningar fram eftir og upp á fjallið gátu ekki hafist fyrr en vegagerðinni væri lokið. Vegagerðin var fyrsta við- fangsefnið. Verkamönnunum, sem að henni unnu, var skipt í þrjá hópa, álíka fjölmenna. Finnur Jónsson Verkstjóri var fyrir hverjum hópi. Þeir voru Guðm. G. Kristjáns- son, bæjarverkstjóri, Sigurjón Sigurbjörnsson og Jón Jóns- son, klæðskeri, allt saman á- gætis menn. Mikill og góður félagsandi ríkti í vinnu hópnum. Reystur hafði verið mötu- neytisskáli Fossavatnsmegin við ána. Ráðskonan hafði sér- herbergi í öðrum enda skálans. Hinn hlutinn var matsalur og eldhús. Veðurguðirnir voru okkur hlið- hollir og allt lék í lyndi. f hlöðunni hans Péturs í Engidal. Enn vantaði svefnpláss fyrir verkamennina. Var þá gripið til þess ráðs að fá afnot af hlöðu hjá Pétri í Engidal á meðan uniiið var við smíði svefnskál- anna. Þetta var hiaða með kjall- ara. Hún var nú tjölduð innan með hessíanstriga og settar þar kojur, þrjár hæðir, með fram veggjunum. Þetta var nú orðið hið vistlegasta svefnpláss, a.m.k. fannst mér og öðrum, sem alist höfðum upp á moldar- gólfi, að svo væri. Ég svaf í efstu kojunni við vindaugað og naut ég nægrar birtu og hreins lofts. Oft var glatt á hjalla í hlöðunni er allir voru sestir þar að. Vegalagningin gekk greið- lega, enda mikill hugur í mönn- um að komast sem fyrst upp að Fossavatni, en þar beið aðal- framkvæmdin, sem Ijúka þurfti áður en vetraði. Samið hafði verið við sænskt verkfræðifyrirtæki um hönnun og yfirstjórn verksins. Sænskur verkfræðingur og frú hans voru komin á vettvang. Þeim var fengin dvalarstaður í gamla Fossabænum. Frúin átti að annast matseld fyrir þau, en undi illa takmörkuðu grænmetis úrvali, sem á boðstólum var og taldi t.d. gróðurhúsatómata hreint ómeti. Hún snéri ínnan tíðar til síns heimalands. Sænskur verkstjóri hafði á hendi verkstjórn við Fossavatn- ið. Hann hafði með sér hin forn- eskjulegastu vinnutæki, allt handverkfæri og hefi ég vart séð vesaldarlegri tækjabúnað hafðan við slíka stórfram- kvæmd. Eitt nýtísku tæki kom hann þó með, en það var FERGUSSON—dráttarvél á beltum, líklegast fyrsta farar- tækið af þeirri tegund, sem til landsins var flutt. Aðeins einn maður, Ingimar Ólason, bíl- stjóri, mátti stjórna slíkri undra- vél, enda hafði hann bílstjórar- próf frá kóngsins Kaupmanna- höfn. Vegagerðinni lauk brátt. Við, sem aðeins höfðum minna handskóflupróf, vorum þá sendir heim meðan unnið væri að nauðsynlegasta undirbún- ingi á athafnarsvæðinu. „Þá læt ég bara Hnífsdælínga gera það“. Eftirlitsmaður bæjarins með verkinu var verkfræðingur. Hann átti einnig að sjá um flutning á öllu efni vegna stíflu- Til jólagjafa: ÍÞRÓTTAGALLAR Stærðir 22 - 40 verð frá kr. 5.900 til 7.180 ÍÞRÓTTAPEYSUR stærðir 22 - 38 verð frá kr. 1.060 til 2.020 ÍÞRÓTTASKÝLUR stærðlr 26 - 38 verð frá kr. 1.130 til 1.680 BORÐTENNISSPAÐAR 6 tegundir verð frá kr. 700 til 6.820 Hulstur fyrlr spaða, net, og fjórar tegundir af kúlum SUNDSKÝLUR allar stærðir, margir litir, verð frá kr. 940 til 1.490 SUNDBOLIR allar stærðir, margir litir, verð frá kr. 2.250 til 3.160 MOONBOOTS kuldaskór stærðir 28 43 verð frá kr. 4.800 til 5.300 CABER skíðaskór barna stærðir frá 28 verð frá 8.400 Elnnig 10 aðrar tegundir af CABER skíðaskóm í stærðum frá 6 -13 FJÖIbreytt úrval af SKAÐAHÖNSKUM verð frá 2.430 til 5.260 Skíðahúfur, sokkar, stafir, bindlngar, töskur, íþróttaskór, eru elnnig meðal jólagjafanna f sportvörudeildinni. Bókav. Jónasar Tómassonar, SPORTVÖRUDEILD

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.