Skutull - 01.06.2007, Page 5
fram. Þetta varð nú eitt af mörg-
um gæfusporum sem ég steig á
Isó og alveg einstök reynsla.
Eg starfaði svo af fullum krafti
með Kvennalistanum á Vest-
fjörðum þangað til að ég
„skrapp“ til Afríku 1995. Við
byrjuðum í „alvöru" pólitíkinni
á því að bjóða fram lista við
bæj arstj ómarkosningamar 1990
og var ég þá í fyrsta sæti. Við
vorum nú töluvert langt frá því
að koma að manni en kærar
þakkir fyrir þessi rúmlega
hundrað atkvæði sem við feng-
um nú samt í þessari fyrstu til-
raun. Það þurfti sumsé Gósí til
að trekkja! Næst var komið að
alþingiskosningum 1991 og
vorum við svo heppnar að geta
tælt Jónu Valgerði til liðs við
okkur og komum við henni á
þing sem 6. þingmanni Vest-
fjarða. Kosningabaráttumar '91
„rækjuhrognakellingin" að
vestan að tala um efnahags-
mál! Hins vegar má segja, að
eftir að hafa flutt sjálfa jómfrúar-
ræðuna þá er nú harla auðvelt
að standa upp og tala um vinnu-
tengd málefni. Það var hins
vegar rnjög skemmtilegt að
starfa með Kvennalistaskvís-
unum fyrir vestan og raunar
mörgum fleirum á landsvisu og
ófáir landsfundirnir sem við
Vestfjarðastöllur skunduðum á.
Landsfundurinn i Fljótunum
stendur nú samt upp úr, kannski
vegna þess að við fórum akandi
á Völvónum hennar Aðalbjargar
og keyrðum útaf og allt.“
- Fylgist þú enn með gömlu
félögunum þó þú sért í annarri
heimsálfu?
„Eg reyni nú að fylgjast með
enda samfélögin ekki eins þró-
uð og ýmis réttindi sem við
teljum sjálfsögð alls ekki fyrir
hendi. Sem dæmi má nefna hjú-
skaparlög en þar er kynjunum
gróflega mismunað. Úgandskar
kvennréttindakonur komu því
til leiðar í síðasta mánuði að
Hæstiréttur feldi úr gildi lög um
ffamhjáhald (já, framhjáhald er
bannað með lögum sem og sam-
kynhneigð) en þau lög mis-
munuðu einnig kynjunum, karl-
ar máttu halda framhjá með
ógiftum konum (ekki með gift-
um), en konur máttu bara alls
ekki halda framhjá. Stjómvöld
vinna nú að því að koma með
ný lög. Annað baráttumál
kvenna í Afríku snýr að
eignarétti á landi. Algengt er að
konur geti ekki eignast land en
landskiki er oft eina „fasteign-
in“ sem fólk á og getur notað
sem tryggingu í bönkum. Hér i
Úganda geta konur t.d. ekki erft
land eftir föður sinn en þær geta
keypt það. Hlutfall kvenna við
stjómvölin í löndum Afríku er
nú ósköp áþekkt og á Vestur-
löndum enda er kynjakvóti
nokkuð algengur á löggjafar-
þingum. I Rúanda er til dæmis
bundið í stjómarskrá að konur
skuli skipa a.m.k. 30% sæta á
þingi og í stjómum á vegum
hins opinbera. Hlutfall kvenna
á rúandíska þinginu er nú það
hæsta í heimi eða 48% - geri
aðrir betur.“
- Finnst þér mikið hafa breyst
eða þokast í jafnréttisátt á
Islandi frá því þú varst i
Kvennalistanum ?
„Ég verð nú ekki vör við mikl-
ar breytingar en þó verð ég að
minnast á feðraorlofið sem mér
fannst bæta viðhorf til kvenna á
vinnumarkaðinum, allavega eru
barneignir og fæðingarorlof
ekki bara einkamál kvenna
lengur. Ennþá vantar nú mikið
uppá að jafna launin og ná jafn-
vægi við stjómvölin. Ég fékk
nú létt áfall í vetur við að sjá
framboðslista Samfylkingar-
innar í dreifbýliskjördæmunum
og keyrði um þverbak þegar ég
sá þingmannalistann fyrir Norð-
vesturland eftir kosningamar -
ekki ein kona!“
- Hvernig líst þér á ráð-
herravalið hjá Samfylking-
unni?
„Ég er nú ánægðust með utan-
ríkis- og umhverfisráðherrana
enda þekki ég þær best, en ég er
auðvitað bara mest ánægð með
að Samfylkingin sé komin í
ríkisstjórn og verkin munu
væntanlega tala sínu máli.“
- Telurðu að það skipti máli
fyrir jafnréttisbaráttuna að
Ingibjörg Sólrún sé formaður
flokksins?
„Já, verðum við ekki að trúa
því!“
’ibunarlonur og starfsstúlkur sjúkrahússins
rint ráðsmanni a 3. áratug síðus/u aldur.
m^ALSin&in/Ljósmyndasafnið Isafirði.
og '95 eru svo kapítuli útaf fyrir
sig, ekki síst maraþonfundimir
þar sem frambjóðendurnir
þrumuðu yfir lýðnum í marga
klukkutíma. Það var frábær
kosninganótt í Hnífsdalnum '91
og ógleymanlegt þegar við sá-
um þyrluna á sjónvarpsskjánum
flytja okkur flakkarann, frá
Norðurlandi. En þar með var ég
líka orðin varaþingmaður, ekki
lítið sjokk. Mér fannst nú ekki
sérstaklega skemmtilegt að sitja
á þingi (fór inn tvisvar sem
varamaður). Minnistæðast er
nú, að hafa setið í fjárlagnefnd
með Arna Johnsen og þegar
Ingibjörg Sólrún þáverandi
þingflokksformaður henti mér
út í djúpu laugina þ.e. fól mér
að halda ræðu um efnahagsráð-
stafanir ríkisstjómarinnar með
sólarhrings fyrirvara. Ég,
fréttum að heiman, fletti Mogg-
anum í tölvunni á hverjum
morgni og lít stundum á BB-
síðuna. En auðvitað fréttir
maður mest í heimferðunum, en
ég reyni að skreppa sem oftast
vestur, enda finnst mér ég ekki
vera komin alveg heim fyrr en
ég sé eyrina og hitti vini og
vandamenn á Isó. Ég er nú svo
skrítin, að ég vildi óska þess að
Kvennalistinn væri enn við
lýði! Ég er ekki nógu mikill krati
til að mér líði vel í Samfylking-
unni, en ég stend með Sollu
fram í rauðan dauðann!“
- Segðu frá kvennapólitík í
þeim löndum sem þú hefur
starfað í.
„Kvennapólitík í Afríku er oft
á öðrum forsendum en heima,
9