Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Page 5

Mosfellspósturinn - 11.12.1981, Page 5
5 X Þar sem fólk fer í vinnuna í flugvél í Bandaríkjunum eru að spretta upp bæjarfélög sem reist eru í kringum flugbrautir Eins og menn eflaust rekur minni til varð heilmikið uppi- stand hér í sveit fyrr í sumar þegar menn gerðu sér grein fyrir að flug- völlur var starfræktur á Leiru- vogsbökkum. Undirskriftasöfnun fór í gang og var engu líkara en að hér væri um það að ræða hvort menn kysu hér búsetu eða ekki. Svo róuðust menn eftir að allra sjónarmið höíðu verið kynnt, meðal annars í Mosfellspóstinum og allir una nú, að því virðist, glaðir við sitt. — I bandaríska vikuritinu Time er athyglisverð grein um einkaflugvelli. Eru hér nokkrir kaflar úr þeirri grein í lauslegri þýðingu: Hávaðinn er gífurlegur og þegar þotur stórflugvélanna þjóta yfir húsin titrar allt og skelfur. En ein- staka menn kjósa þó að hafa flug- brautina rétt við húsdyrnar hjá sér. Pað eru þeir sem eiga eigin flugvélar og búa í svokölluðum ,,flugvéla byggðarlögum”. Það eru íbúðahverfi sem komið hefur verið fyrir í kringum og í sam- bandi við einkaflugvelli. Ibúarnir geta þá lagt flugvélum sínum á „bílastæðinu” rétt eins og um venjulegan farkost, þ.e. bíl, væri að ræða. Margir eiga tvær flugvél- ar og hafa því tveggja flugvéla skýli, í stað þess að hafa tveggja bíla bílskúr. Þessir flugvélaeig- endur eiga einnig bíla. haft eftir einum föður í Time- greininni. Það eru nú um fjörutíu slík byggðarlög í Bandaríkjunum. Langflest í Californíu og í grennd við Chicago. Þau er einnig að finna í Florida, Arizona, Colo- rado, New York og New Hamps- hire. Allir þessir litlu einkavellir störfuðu eins og ekkert væri þrátt fyrir verkfall flugumsjónar- manna. Boeing-gata — Lockheed stræti Eitt af þessum flugvélabyggð- arlögum er Cameron Airpark, um I bænum Cameron í Kaliforniu eru götumar fjögurra akreina, tvær i hvora átt. Þær innri eru fyrir bíla en þær ytri fyrir flugvélar. Hætt er við að landinn ruglaðist í ríminu í slíkri umferð! 50 km austur af Sacramento daln- um í Californiu. Það er mikið grósenland smáflugueigenda, þar er yfirleitt heiður himinn og lítið um þoku og loftmengun. Þar er 4 þús. feta flugbraut og í kringum hana er komið fyrir 120 íbúðar- lóðum. Göturnar eru fjögurra akreina, tvær akreinar í hvora átt. Innri akreinin er fyrir bíla en sú vtri er fyrir flugvélár. I þessu bæj- arfélagi heita göturnar nöfnum sem tengdar eru flugvélum á ein- hvern hátt eins og t.'d. Boeing- gata og Lockheed stræti. Lóðirnar í þessu bæjarfélagi eru seldar á 35 þúsund til 80 þúsund dali (frá 280 þús. upp í 640 þús. ísl. kr.). Nú þegar eru risin um fimmtíu íbúðarhús á þessum lóð- um. Þau eru metin á 150—500 þús dali (1,2 millj. til 4 millj. ísl. kr.). Þýtt úr Time, A.Bj. Ekki tveggja bíla bílskúr heldur tvegg ja f lugvéla Flestir telja það hálfgerða mar- tröð að búa í nánd við flugvelli. „Þegar unglingarnir biðja um „lyklana” þegar þau eru að fara út veit maður ekki hvort þau eiga við bíl- eða flugvélalyklana,” er Nú eiga menn ekki aðeins tveggja bíla bilskúra við hús sín, heldurtveggja flugvéla skýli! Það þyrfti að stækka lóðirnar hér á landi allverulega til þess að þetta væri mögulegt. / " N Hlutir sem vert er aö vita Gömul vopn Á þjóðveldisöld gengu heldri menn vopnaðir og skildu vopn sín helst aldrei við sig. Axir hafa verið algengustu vopnin. Einfaldar axir voru hin hrikalegustu vopn eins og Rimmugýgur Skaprhéðins. Spjót voru einnig algeng. Stundum skutu menn spjóti sínu að andstæðingunum og gripu síðan til axar eða sverðs. Sverð voru dýr vopn og sæmdu vel höfðingjum. Góð- um sverðum hæfði vandaður umbúnaður, skeiðar með döggskó á neðri endanum. Bestu sverðin voru flutt langt sunnan úr löndum. Þó voru á Norðurlöndum ágætir vopna- smiðir. Vöndustu smíðisgripi sína skreyttu þeir fagurlega með gull- eða silfurþræði sem hamraður var í rispur í stálinu. Hétu vopnin þá gull- eða silf- urrekin. Rauðablástur og smíðiúr járni Landnámsmenn fluttu með k sér þekkingu á járnvinnslu úr mýrarauða (rauðablástur), en slík járnvinnsla hafði tíðkast öldum saman á Norðurlönd- um fyrir íslands byggð. Margt bendir til, að rauðablástur landsmanna hafi verið svo mikill, að hann hafi fullnægt járnþörfinni fram á 13. og 14. öld. Menn þurftu einkum járn í Ijái, ýmis áhöld, vopn, skeifur og bátasaum. Á 15. öld lagðist rauðablástur niður, og inn- flutningur járns kom í staðinn. Telja má víst, að rauðablástur hafi einkum verið, þar sem skógar voru nálægir og auð- velt var að ná í rauða. Gjall og önnur ummerki eftir rauða- blástur hafa aðallega fundist í Fnjóskadal, við Hvammsfjörð og í nágrenni Borgar á Mýrum. Egils saga Skallagrímur var járnsmiður og hafði rauðablástur mikinn á vetrum. Hann lét gera smiðju með sjónum mjög langt út frá Borg þar sem heitir Raufar- nes. Þótti honum skógar þar eigi fjarlægir. 4£UUukjtJtiUM* JSLENSK BOKAMENNING ERVERÐMÆTI BÆKUR MENNINGARSJÓÐS j, THORKILD HANSEN Steindór Steindórsson frá Hlöóum JENS MUNK Bókin lýsir á eftirminnilegan hátt svaöilförum Jens Munks í noröurhöfum svo og aldarandanum í Danmörku um 1600. Þetta er sú bók Thorkilds Hansen sem náö hefur mestri útbreiðslu og geröi hann aö einum virtasta höfundi Noröurlanda. ÍSLENSKIR NÁTTÚRUFRÆÐINGAR Átján þættir og ritgerðir um brautryöjendur íslenskra náttúruvísinda og jafnframt innsýn í sögu þess tímabils. SAGA REYKJAVÍKURSKÓLA Skólalífiö í Lærðaskólanum 1904—1946. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS Skálholtsstíg 7 — Reykjavík

x

Mosfellspósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellspósturinn
https://timarit.is/publication/1781

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.