Mosfellspósturinn - 15.06.1987, Síða 3
Þjóðhátíðarhöldin í Mosfellssveit:
Ein skrúðganga en ýmis
nýmæli á dagskrá
Hátíðahöldin á þjóðhátíðardaginn
17. júní verða með nokkuð hefð-
bundnum hætti, skrúðganga og
hátíðasamkoma með fjölskyldu-
skemmtun, kaffi í Hlégarði og ball
um kvöldið fyrir alla aldurshópa. Kl.
10 um morguninn verður sundmót
og víðavangshlaup.
í ár verður boðið upp á nokkur
nýmæli eins og gróðursetningaboð-
hlaup krakka úr vinnuskólanum,
kvikmyndasýningu á Stellu í Orlofi,
sem fjölmargir sveitungar koma fram
í.
„Að þessu sinni verður aðeins ein
skrúðganga. Það verður safhast sam-
an við Kjörval og lagt af stað kl.
13:30. Skólahljómsveitin, sem leikur
stórt hlutverk i hátiðahöldunum hjá
okkur, byrjar að leika kl. 13:00,“
sagði Erna Gísladóttir formaður
þjóðhátíðanefndarinnar í ár í sam-
tali við MP. Með Ernu í nefndinni
eru Guðný Halldórsdóttir og Þórður
Guðmundsson.
„Gengið verður fylktu liði með
hljómsveitina,hestamenn og skáta í
fararbroddi í íþróttahúsið, þar sem
aðalhátíðin fer fram. Við þorðum
ekki að taka neina áhættu í sam-
bandi við veðrið,það hefur svo oft
leikið þessar hátíðir grátt. Magnús
Sigsteinsson oddviti setur hátíðina
og að því loknu verður farið með
hátíðaljóð. Leikfélagið sýnir leik-
þáttinn Veiðiferðina og síðan syngur
karlakórinn Stefnir.
Þá sýnir hópur ungra stúlkna,,
square" dans og loks verður farið í
fjölskylduleiki. Stjórnandi hátíðar-
innar í íþróttahúsinu er hinn eld-
hressi Örlygur Richter. Skólahljóm-
sveitin leikur milli atriða og heldur
uppi stemmningu," sagði Ema.
Að samkomunni í íþróttahúsinu
lokinni fer fram gróðursetningaboð-
hlaup, en krakkar úr vinnuskólanum
gróðursetja fimmtíu trjáplöntur við
íþróttahúsið undir leiðsögn garðyrk-
justjórans Einars Gunnarssonar. Þá
verður sýning á kvikmyndinni Stella
í orlofi í sal barnaskólans, sýningar
verða kl. 4,6 og 8. Aðgangseyri verð-
ur stillt í hóf. Margir Mosfellingar
tóku þátt í gerð þessarar vinsælu
kvikmyndar og því ekki að efa að
þeir vilja fá tækifæri til þess að sjá
hana.
Þá verða félagar úr hestamannafé-
laginu Herði nærstaddir með hesta
sina og teyma undir börnum sem
vilja prófa að fara á bak. Félagar úr
flugklúbbnum bjóða upp á útsýnis-
flug. Flogið verður yfir sveitina og
karamellum dreift yfir mannskapinn.
Einnig verður sýnt svifdrekaflug,
allt ef veður leyfir.
Loks verður Ungmennafélagið með
sitt landsfræga þjóðhátíðarkaffi í
Hlégarði og um kvöldið verður dúnd-
ur ball þar á vegum þjóðhátíðanefnd-
ar. Ballið hefst kl. 19:30 og er ætlast
til að yngstu krakkamir geti skemmt
sér framan af kvöldi og svo koma
þeir sem eldri eru þegar líður á
kvöldið. Hljómsveit Stefáns P. leikur
fyrir dansi og er okkur sagt að hún
leiki tónlist fyrir alla aldurshópa.
„Við vonum að sveitungamir njóti
þess sem boðið verður upp á, en auð-
vitað er það alltaf í valdi hvers og
eins hvemig hann skemmtir sér.
Annars finnst mér að það ætti að
gjörbreyta undirbúningi þessara há-
tíðahalda. Þannig ætti að fela
Leikfélaginu og kórunum að sjá um
hátíðahöldin til skiptis. Svona hátíð-
ir þurfa mikinn undirbúning ef vel á
takast til og bæði leikarar og söngv-
arar eru ómissandi liður í því að
þetta geti farið vel fram. Ef viðkom-
andi félagsskapður veit fyrirfram,
allt árið að hann á að sjá um samko-
muna verður það unnið öðruvísi en
ef þetta kemur upp á á seinustu vik-
unum fyrir hátíðina," sagði Erna.
MP tekur undir orð hennar af heil-
um hug. Nú er einmitt tilfæri til þess
að breyta til á næsta ári og taka upp
nýja siði, þegar við verðum ekki
lengur sveit eða hreppur heldur
fullgilt bæjarfélag.
Myndlist í
Myndlistarsýning á vegum Mynd-
listarklúbhs Mosfellssveitar verður
opnuð í Gagnfræðaskólanum kl. 14
á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Opið
verður þann dag til kl. 19. Sýningin
verður opin 18. og 19. júní kl. 18-21
og helgina 20.-21.júní kl. 13-20. Þetta
er sölusýning.
„Nú eru tvö ár síðan síðast var
haldin sýning á vegum klúbbsins.
Myndlistarklúbbur Mosfellssveitar
hefur starfað af miklum krafti í vet-
ur. Önnur deildin, sem starfar undir
leiðsögn Jóns Gunnarssonar listmál-
ara úr Hafnarfirði hefur nú starfað
í sjö ár,“ sagði Auður Eiríksdóttir.
en hún hefur starfað með frá upp-
hafi ásamt tveimur öðrum konum.
þeim Söru Elíasdóttir og Helgu
Thoroddsen. I deild Jóns starfa þegar
flest er fimmtán manns. I hinum
hópnum eru fjórir til sex að stað-
Strandavíðir í Dalsgarði
„Þetta eru þriggja ára plöntur og
tegundin heitir strandavíðir. Þetta
er alíslenskt fyrirbæri, tegundin ætt-
uð frá Selárdal í Steingrimsfirði,"
sagði Jón Jóhannsson í Dalsgarði í
samtali við MP.
Nú er hafin trjáplöntusala i Dals-
garði, en nýlega voru seldar 500
plöntur af þessum strandavíði til
Noregs.
„Við höfum selt þessar plöntur áð-
ur til Vestmannaeyja, ísafjarðar og
Keflavíkur og þær virðast dafna vel
á þessum stöðum. Ársvöxturinn er
svona um 30 cm, en plönturnar eru
bæði fallega grænar og þéttar.
„Við seldum plöntur til Stavangurs
en ætlunin er að dreifa þeim til Norð-
ur Noregs. Við vitum ekki fyrr en
næsta ár hvernig þælr standa sig og
hvort eitthvað verður meira úr þess-
um útflutningi," sagði Jón.
Strandavíðirinn er sérlega falleg
planta, bústin og skærgræn. Jón
sagði að það þyrfti þrjár plöntur á
meter til þess að gera fallegt lim-
gerði. Plantan kostar 75 kr.
I Dalsgarði er einnig á boðstólum
brúnn alaska víðir sem mælt er með
að nota í skjólbelti á stóru landi.
frekar en í minni húsagarða. Eins
og hálfs meters plöntur kosta 50 kr.
Viðja af sömu lengd kostar 35 kr. og
brún víðir 75 kr.
Jón sagði að ráðlegt væri að planta
trjám eins snemma og nokkur kostur
er, en í lagi væri að planta út júní-
mánuð. Úr þvi fer það að verða
nokkuð seint.
Jón Jóhannsson hefur unnið við
garðyrkju á sumrin undanfarin ár,
en hann er sonur Jóhanns rósabónda
í Dalsgarði. Jón er glerlistamaður
og hefur unnið við list sína í Kalifor-
níu í tvö ár og undanfarna sjö
mánuði í Frakklandi.
Opið er í plöntusölunni í Dalsgarði
alla daga til kl. 5, en hægt er að
panta plöntur og sækja eftir þann
tíma.
Jón Jóhannsson með einkar fallegan og gróskulegan strandaviðinn
Plöntusalan
í Dalsgarði
Opið til kl. 5 alla daga.
Hægt að panta í síma
667490.
3
Lagt af staö í myndaferðalag, f.v. Magnús og Ingvar sonur hans, Alfreð og
Hulda af Kjalarnesinu, Bryndís, Sara og Helga. Auði vantar á myndina en
hún var einnig með i ferðinni.
Gagnfræðaskólanum
aldri. Sá hópur starfaði undir leið-
sögn Sverris heitins Haraldssonar
listmálara. Hefur hópurinn verið án
leiðsagnar síðan Sverrir lést.
-Hefur verið selt mikið á sýningum
sem haldnar hafa verið undanfarin
ár ?
„Já, það er alltaf heilmikið um að
fólk selji verk. Verðið er misjafnt.
en það er hægt að semja um það og
einnig hægt að semja um greiðslur
við viðkomandi listamenn," sagði
Auöur.
Á hverju sumri fara félagar úr
Myndlistarklúbbnum í svokallaðar
mótívferðir. Þá eru áhugaverð við-
fangsefni fest á filmu sem síðan er
flutt á léreftr veturinn á eftir. Laug-
ardaginn 23. maí sl. fór hópur í slíka
ferð undir leiðsöng Jóns Gunnars-
sonar. MP tók meðfvlgjandi mynd
fvrir utan Westem Fried.
Snjóþveginn
gallatatnaður
Jakkar kr. 2.990.-
Buxur kr.1.990.-
Síð pils kr. 1.795,-
Mini pils kr.1.595.-
Mikið úrval af dömu- og
barnafatnaði fyrir 17. júní.
Verslunin
Sími 666077 “ “ I
10% afsláttur
til 17.júní
á öllum vörum
MEÐAL ANNARS:
málningarvörum
byggingavörum
garðáhöldum
rafmagnsvörum og
sjónvarpsloftnetum
Gleðilega
þjóðhátíð!