Mosfellspósturinn - 15.06.1987, Síða 6

Mosfellspósturinn - 15.06.1987, Síða 6
Sætur bikarsigur í vítaspyrnukeppni Fyrsti bikarleikur ársins hjá meist- araflokki var á móti Njarðvíkingum á þeirra heimavelli. Njarðvík er, eins og kunnugt er, í sama riðli og Aftur- elding í 3. deild og eiga liðin eftir að leiða saman hesta sína tvisvar í sumar til viðbótar. Þessi fyrsti bikarleikur einkennd- ist af ósvikinni bikarstemmningu. Að venjulegum leiktíma loknum var staðan jöfn, 2:2. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og kom þá ti! vítaspymukeppni til að knýja fram úx'slit. Valur Steingrímsson og stóð sig með prýði. Snemma í siðari hálfleik jöfnuðu Nj arðvíkingar úr vítaspyrnu og náðu forystu 2:1 litlu síðar. En okkar menn gáfust ekki upp og uppskáru mark eftir linnulausa baráttu rétt fyrir leikslok. Var Hilmar Harðarson þar að verki. Svo var það í vítaspyrnukeppninni að Valur Steingrímsson varði eina vítaspymu Njarðvíkinga og þar með var bikarsigurinn í höfn. -A.St.A. Þetta er liöið sem vann glæsilegan sigur í 4. deild Islandsmótsins í fyrra og leikur nú örlítið breytt í 3. deild - og stendur sig vel. Næsti leikur liðsins er á Tungubökkum á morgun., Fjölmennum og hvetjum strákana. Okkar mönnum tókst að skora úr öllum sínum spyrnum. Njarðvíking- ar misnotuðu eina og þar með réðst það. að Afturelding er áfram í keppn- inni og átti að mæta Leikni 10. júní, en þetta er skrifað fyrir þann tíma. í leiknum gegn Njarðvík skoraði Láms Sigvaldason fyrir Aftureld- ingu í fyrri hálfleik og var þannig staðan í leikhléi. Stuttu eftir markið vildi það óhapp til að Guðjón mark- vörður UMFA viðbeinsbrotnaði og varð að yfirgefa völlinn, en inn á kom Spennandi barátta í 3. deild hafin: Lið Aftgureldingar sterk- ara en flestur bjuggust við Íþrótta og leikjanámskeið Aftureldingu að hefjast Eins og undanfarin ár stendur Frjálsíþróttadeild UMFA fyrir íþrótta og leikjanámskeið nú í sum- ar. Leiðbeinendur verða eins og undanfarin sumur þau Ólafur Ágúst Gíslason og Alfa Jóhannsdóttir. Haldin verða þrjú námskeið og hófst það fyrsta 1. júní og stendur til 19. júní. Annað námskeiðið hefst 22. júní og stendur til 9. júlí. Þriðja nám- skeiðið hefst 13. júlí og stendur til 30. júlí. Þátttakendum er skipt í tvo aldurs- hópa. Eru 9-13 ára börn á morgnana frá kl. 10-12 en 6-8 ára böm frá kl. 13M5. Á námskeiðunum er leiðbeint í frjálsum íþróttum og boltaleikjum, farið í sund og gönguferðir og einnig verður farið á hestbak. I lok hvers námskeiðs verður farin dagsferð. Innritun í íþróttahúsinu að Varmá, sími 666754, 19. júní og 10. júlí. Meistaraflokkur Aftureldingar í knattspymu hefur hafið leik og bar- áttu í 3. deild og byrjaði ævintýrið bara vel og er spennandi. Fyrsti leik- urinn var á móti Leikni í Breiðholti 100 þús. kr. styrkur til íþrótta- og leikjanámskeiðs Frjálsíþróttadeild Afdtureldingar fær um 100 þús. kr. styrk frá hreppsnefhdinni á þessu ári til að standa fyrir áríegu íþrótta og leikjanámskeiði. Páll sveitar- stjóri sagði í samtali við MP, að upphæðin skiptist þannig að deildin fengi um 45 þús. kr. tií að greiða niður þátttökugjöld í námskeiðinu en að auki styrk til að greiða þjálfara og nemur hann launum eins flokksstjóra. íþrótta- og leikjanámskeið er nánast orðinn fastur liður í sum- arstarfi félagsins fyrir unglinga. Námskeiðin hafa að dómi hrepps- nefndar verið myndarlega rekin og full ástæða til að stuðla að því að áfram verði haldið á sömu braut. HeilbrigðisMtrúi Starfsmann vantar í fullt starf sem heilbrigð- isfulltrúi. Starfssvæðið er Mosfellsumdæmi og Seltjarnarneskaupstaður. Ætlunin er að sameina umdæmi heilbrigðis- nefnda Mosfellsumdæmis og Seltjarnarnes- kaupstaðar í eitt eftirlitssvæði og yrði heilbrigðisfulltrúinn framkvæmdastjóri þess. Upplýsingar veita sveitarstjóri Mosfellshrepps (sími 666218), bæjarstjóri Seltjarnarneskaup- staðar (sími 612100) og Jón Zimsen formaður heilbrigðisnefndar Mosfellsumdæmis (vinnu- sími 38331) Umsóknir sendist til Svæðisnefndar, c/o Jón Zimsen, Hlégarði, Mosfellssveit, 270 Varmá, fyrir 19. júní 1987. í umboði Svæðisnefndar Heilbrigðisnefnd Mosfellsumdæmis Heilbrigðisnefnd Seltjarnarneskaupstaðar og fór fram á slæmum malarvelli þar. Okkar menn unnu leikinn 2:1 og fengu þar með 3 stig. Okkar menn voru mjög taugaó- styrkir í byrjun og setti það svip á leikinn. Um miðjan hálfleik var okk- ar mönnum dæmd vítaspyrna eftir að boltinn hafði farið í hendi eins Leiknismanna. Lárus Jónsson skor- aði af því öryggi sem honum einum er lagið og má um Lárus segja að hann sé ein öruggasta vítaskytta landsins. Forysta Aftureldingar entist óbreytt til leikhlés. En Leiknismenn komu tvíelfdir til leiks og uppskáru fljótlega mark, sem gerði leikinn afar spennandi. En hvernig sem liðin börðust gerð- ist ekkert fyrr er. að um mínúta var eftir af leiknum, að markamaskínan Óskar Óskarsson skoraði stórglæsi- legt mark eftir góða sendingu frá mági sínum Hiimari Harðarsyni. Annar leikurinn í deildinni var gegn Stjörnunni. Fróðir menn segja að Stjarnan eigi sterkasta liðið í deildinni og hafi mesta möguleika á því að komast upp í 2. deild. Aðeins eitt lið úr hvorum riðli kemst upp. Leiknum lauk með sigri Stjörnunnar 3 mörk gegn 1. Lið Stjörnunnar mætti ákveðið til leiks og lék af festu og hörku. En það var samt Óskar Óskarsson sem skoraði fyrsta markið eftir að hafa sýnt mikla hörku. Stjömumenn svör- uðu fyrir sig með tveimur mörkum fyrir leikhlé og höfðu forystu 2:1. í síðari hálfleik voru okkar menn ekki á skotskónum og tókst flest annað dável en að pota knettinum í mark mótherjanna. En úr einu af örfáum upphlaupum í síðari hálfleik tókst Stjörnumönnum að skora — og sigruðu, eins og áður segir með 3 mörkum gegn 1. Það var slæmt að sjá á eftir öllum stigunum í Garðabæinn, en enginn skyldi þó örvænta, því lið UMFA er til alls líklegt. -A.St.A. Tóku Reynismenn létt - Sigruðu þá 3-0 á þeirra heimavelli Þriðji leikur meistaraliðs Aftureld- gegn Reyni á heimavelli þeirra í ingar í íslandsmótinu var leikinn Sandgerði. Menn fóru baráttuglaðir Ótrúlegt úrval af trjáplöntum og runnum GARÐVgKJUSTÓÐIN GROANDI GRASTEINUM Frá Hitaveitu Mosfellshrepps Þeir heita vatns notendur, sem ekki hafa greitt síðasta reikning (vegna marz/apríl notkunar), eru hvattir til að gera skil nú þegar. Lokanir vegna ógreiddra reikninga eru þegar hafnar Hitaveita Mosfellshrepps til Sandgerðis og komu heim með öll stigin þrjú eftir góðan sigur, 3 mörk gegn engu. Leikurinn einkenndist af góðum samleik Aftyureldingar. Liðið náði strax tökum á leiknum og uppskar fljótlega gullfallegt mark, sem Lárus Jónsson skoraði með hjólhesta- spyrnu. En þetta mark var dæmt af vegna rangstöðu og þótti mörgum sá dómur orka tvímælis. Fyrsta löglega markið var sjálfe- mark Reynismanna. Einar Guð- mundsson tók aukaspyrnu og sendi fallega fyrir markið. Boltinn fór í einn Reynismann og í markið. Markamaskínan mikla, Óskar Óskarssonm, fór ekki í gang fyrr en í síðari hálfleik. Þá skoraði Óskar með glæsilegu langskoti í vinstra hornið og átti markvörðurinn enga möguleika á að verja. Undir lok leiksins náði gamla kempan Ríkharður Jónsson að þenja út netmöskvana með góðu skoti og innsigla sigurinn. Þetta var góður leikur hjá Aftur- eldingu en þó vantaði nokkuð upp á einbeitinguna sem stundum áður og það að geta haldið góðu spili frá upphafi til loka leiks eða í 90 mínút- ur. Það er mikið gleðiefni að sjá Vikt- or Viktorsson standa sig með prýði í markinu en hann er þriðji mark- vörðurinn sem leikur með meistara- flokki á þessu ári. Guðjón hefur bæði viðbeinsbrotnað og fótbrotnað á þeim stutta tíma sem af er sumri. Valur Steingrímsson hljóp vel í skarðið fyrir hann þar til Viktor er nú löglega með liðinu.þ Næsti leikur verður á hinum glæsi- lega Tungubakkavelli á móti Skalla- grími frá Borgarnesi laugardaginn 13. júní kl. 14. Mætum öll og hvetjum okkar menn! -A.St.A. f

x

Mosfellspósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellspósturinn
https://timarit.is/publication/1781

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.