Mosfellspósturinn - 15.06.1987, Side 7
7
fÍÍOTIII«
Gísli Magnússon með sr. Birgi Ásgeirssyni. Jóna á Hamrafeili og Carlo
bragða þarna á risatertu sem boðið var upp á í kaffisamsæti safnaðarnefnd-
ar eftir messu á uppstigningadag.
Gjöfin frá Gísla tekin í notkun
Við guðsþjónustu í Lágafellskirkju á
uppstigningardag var gjöf Gísla
Magnússonar í Varmárbrekkui tekin
í notkun. Gísli gaf kirkjunni hljóð-
nema og heyrnarstafi fyrir heymar-
daufa svo þeir geti fylgst með því sem
fram fer, í tilefni af áttræðisafmæli
sínu. Lýsti sr. Birgir Ásgeirsson
sóknarprestur gjöfinni úr predíkun-
arstólnum.
Þetta var seinasta messa sr. Birgis
í bili, en hann er nú farinn í sumar-
leyfí. Mun sr,. Gunnar Kristjánsson
á Reynivöllum þjóna á meðan sr.
Birgir verður í burtu.
Eftir messu á uppstigningardag
bauð safiiaðarstjórn til veglegrar
kaffidrykkju í Hlégarði. Messan var
helguð öldruðum eins og aðrar mess-
ur í hinni íslensku þjóðkirkju
þennan dag og fjölmenntu aldraðir
til guðsþjónustunnar.
Vantar stúlkur i kvennaknattspymu
Kvennaknattspyrna er í fullum
gangi hjá Aftureldingu og er æft og
keppt í þremur flokkum , meistara,
2. og 3. flokki meyja. Stúlkur 14, 15
og 16 ára tilheyra 2. flokki en eldri
stúlkur eru í meistaraflokki og yngri
í 3. flokki. Keppni í íslandsmóti
kvenna er hafin.
Meistaraflokkslið UMFA lék við
nýkrýnda Reykjavíkurmeistara KR,
eitt af sterkustu liðum landsins að
sögn Stefáns Hreiðarssonar þjálfara
Aftureldingar. Staðan í hálfleik var
2 gegn 1, okkar stúlkum í vil, en þá
léku þær undan nokkrum vindi. í
síðari hálfleik brást úthaldið og KR
stúlkumar náðu að skora fjórum
sinnum. Lokastaðan varð því 2 mörk
gegn 5.
2. flokkur fór til Vestmannaeyja
og gerði jafntefli 1:1 en átti mun
meira af leiknum lengst af. Að sögn
Stefáns hafa Vestmannaeyjastólk-
urnar mjög góðum markverði á að
skipa og sló það okkar stelpur út af
laginu.
Stefán vill koma því á framfæri að
það vantar stelpur til æfinga, einkum
14 ára og eldri. Aðeins tvær stelpur
eru eldri en leyfilegt er að leika í 2.
flokki, svo lið UMFA em næstum
eins í tveimur efstu flokkunum. Æf-
ingar eru á mánudögum og fimmtu-
dögum kl. 20:30 og er mánudagsæf-
ingin á Tungubökkum.
Þær stúlkur, sem hafa áhuga á að
taka þátt í æfingunum eru beðnar
að hringja í Stefán Hreiðarsson í
síma 667197.
Fasteigna-
eigendur í
Mosfellshreppi
Eindagi síðustu greiðslu fasteigna-
gjalda er 15. júní.
Forðist dráttarvexti og kostnað.
Innheimtuaðgerðir hefjast þegar í
byrjun næsta mánaðar.
Mosfellshreppur
Kvenfataverslun
Byggðarholti 55.- Mos.
Sími 66 64 15
*KJÓLAR-BLÚSSUR
* PILS
* BUXUR - DRAGTIR
* SLÆÐUR - VESKI
* ILMVÖTN
Munið opnunartímann:
Opið mánudaga til föstudaga kl. 10-6.
Lokað á iaugardögum í sumar.
tVOCAflO
giörðu
svovel
Hvort sem þú ætlar að veita vatni um lengri eða skemmri veg
er varla til auðveldari og ódýrari leið
en gegnum rörin frá Reykjalundi.
Rörin frá Reykjalundi eru viðurkennd fyrir gæði
og auðvelda meðferð.
Flestarstærðirvatnsröra, kapalröra, frárennslisröra
og hitaþolinna röra eru jafnan til á lager og
með tiltölulega stuttum fyrirvara er hægt að afgreiða sverari rör.
Sérstök áhersla er lögð á mikla og góða þjónustu.
Rörin frá Reykjalundi
- rör sem duga.
REYKJALUNDUR
i Söludeild • Sími 666200