Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Blaðsíða 13

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Blaðsíða 13
n lagslega annmarka í för með sér, eða hinsvegar að auka afkastagetu EUiðavogs-Sætúns-Skúlagötu, sem eflaust er mögulegt að einhverju marki. Sjötti kosturinn er að leggja götuna Fossvogsbraut-Hlíðarf ót. Raunar gerir AR-1962-83 ráð fyrir þessari stofnbraut og byggir tillögu sína m.a. á niðurstöðum um- ferðarkönnunar 1962. Nýrri athug- anir styðja þær niðurstöður. Nú gera heilbrigðisyfirvöld þær kröfur til stofnbrauta, að þær liggi ekki nær íbúðarbyggð en sem svar- ar 40-60 metrum vegna hávaða- og útblástursmengunar frá bílum. Ýmsir telja að þessi fjarlægð ætti að vera mun meiri, eða ekki undir 100 metrum. Sé þessarar reglu gætt framvegis, eins og gert var t.d. varðandi eystri hluta Miklubrautar, ætti yfirleitt að vera hægt um vik að fjölga þar akbrautum ef þess gerist þörf síðar. Erlendis má sjá þess mýmörg dæmi, að brjóta hefur þurft niður hús, höggva tré og taka fallega garða eignarnámi, til þess að breikka umferðaræðar sem hafa verið hannaðar of þröngar í upphafi. Hér hefur sem betur fer sjaldan þurft að grípa til slíkra úrræða. Þó stingur það óneitanlega í augu hve Miklabrautin var hönn- uð þröng frá Miklatorgi að Löngu- hlíð. Með þær upplýsingar sem fengust úr umferðarkönnunnninni 1962 og viðbótarkönnunum sem gerðar hafa verið síðan, að leiðarljósi, ætti að vera hægt að gera allviðunandi umferðarforsagnir miðað við ýmsa skipulagskosti, en eins mætti hugsa sér að gerðar verði mismunandi skipulagstillögur miðað við ýmsa æskilega umferðarkosti. Það sem keppa ber að hverju sinni er að finna sem hentugasta og hagkvæmasta lausn hvað snertir bæði skipulag og umferðarkerfi. í gegnum tíðina hafa margir velt því fyrir sér hvaða bæjarstærð væri hag- kvæmust, kostnaðarlega séð. Lengi var álitið að 30-40 þús. manna bæir væru hvað hagkvæm- astir og hafa Bretar raunar byggt marga nýja bæi af þeirri stærð. Ein helstu rökin fyrir þessari skoðun voru þau, að þegar ekki sé um stærri bæ að ræða, þurfi engin dýr umferðamannvirki. Af félagslegum ástæðum telja raunar allflestir nú að íbúafjöldinn 100-150 þús. sé hvað heppilegastur. Hvað sem þessu líður, þá fer það ekki milli mála að umferðarmann- virki, eins og t.d. planfrí gatnamót, eru dýr. Hinsvegar verður ekki hjá því komist þegar íbúafjöldi eins bæjar er kominn á annað hundrað þúsund, en gera þau umferðar- mannvirki sem nauðsynleg eru tal- in, jafnharðan og þörf kallar. Auk þess sem slíkar framkvæmdir geta oft verið fjárhagslega hag- kvæmar tryggja þær jafnframt öryggi vegfarenda. Illu heilli var ráðgerð stofnbraut AR 1962-83 frá Rauðavatni að Höfðabakka, felld niður af skipu- lagsnefnd og borgarstjórn árið 1976, gegn skriflegum mótmælum undirritaðs, án þess að fram færi þá nein marktæk umferðartæknileg könnun á þeim afleiðingum sem slík stórbreyting á aðalum- ferðarkerfi höfuðborgarsvæðisins hefði í för með sér, en veglína þessi hafði verið samþykkt einróma bæði af skipulagsnefnd og borgarstjórn árið 1964. Ein aðalástæðan fyrir afstöðu borgarstjórnar 1976 hygg ég hafa verið þá, að heyrst höfðu al! háværar raddir um að umferð svo nálægt uppi- stöðuvatninu við Ell- iðaárstíflu myndi trufla ró fuglanna þar. Sömu raddir höfðu síðar uppi hávær mótmæli gegn byggingu Höfðabakkabrúarinnar, en sem betur fer virti borgarstjórn þau mótmæli að vettugi. Nú þegar Höfðabakkabrúin er risin og byrjuð að gegna hlutverki sínu, skilur nær enginn hvernig hægt var að æsa fjölmargt sæmilega greint fólk upp gegn þessari bráðnauðsynlegu og sjálfsögðu framkvæmd. Vegna þess að hætt var við stofn- brautina í Elliðaárdal frá Höfða- bakka að Rauðavatni, eins og AR 1962-83 hafði gert ráð fyrir, lendir miklu meiri umferð en ella á Ártún- sbrekkuna, sem er mun brattari en vegurinn upp Elliðaárdalinn hefði orðið. Auk þess er vegurinn upp Ártúnsbrekku ekki tvískiptur eins og æskilegt hefði verið, enda hafa því miður orðið þar mörg alvarleg slys. Þá tekur ekki betra við þegar kem- ur að vegamótum Vesturlandsvegar og fyrirhugaðrar Suðurlands- brautar í Smálöndunum, því vegur- inn þaðan og upp að Rauðavatni er á kafla sá brattasti á allri Suður- landsbraut uns komið er austur að Reynisfjalli í Mýrdal. Hjá þessu heimatilbúna vandamáli hefði verið hægt að komast ef borgarstjórn hefði borið gæfu til að halda fast við þá veglínu sem ráðunautar hennar og þáverandi vegamálastjóri lögðu til árið 1964 að leggja veginn frá Rauðavatni niður hinn fagra Elliða- árdal og síðan niður Fossvogsdal og um Hlíðarfót. Nú má til sanns vegar færa að lítið þýði að fást um orðinn hlut, en gamalt og gott máltæki segir, að til þess eru vítin að varast þau. Megi þetta verða til þess, að ekki komi það oftar fyrir að sveitarstjórnir hætti í fljótræði við vel hugsaðar og vandlega rökstuddar áætlanir sínar um þýðingarmiklar stofnbrautir, bara af því einhverjar raddir taki upp á því að mótmæla, oft vegna misskilinnar umhyggju fyrir frið- sæld fugla o.þ.h. Slík mótmæli eru sjaldan byggð á traustri þekkingu á hinum ýmsu og oft flóknu hliðum málsins, en höfða einkum til til- finninganna, svo sem berlega kom í ljós í sambandi við mótmælin gegn Höfðabakkabrúnni, og reyndar líka í sambandi við hávær mótmæli gegn bráðnauðsynlegri breikkun Hafnar- fjarðarvegar í gegn um Garðabæ, sem áttu sér stað um líkt leiti. Tilefni þessara sundurlausu hug- leiðinga er það, að nýlega hefur verið hafin vinna við endurskoðun á umferðarforsögn fyrir höfuðborg- arsvæðið í heild, miðað við það að- alskipulag og þær aðalskipulagstil- lögur sem nú liggja fyrir hjá hinum ýmsu sveitarfélögum. Hefur verið j keypt tölva til að anna þessu 13

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.