Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Blaðsíða 21

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1983, Blaðsíða 21
3. Eignarréttur á strengjakerfi aðal- leiða að húsum (P & S). 4. Ávinningur við að leggja sjón- varpsstrengi með símalögnum í samstarfi og samræmingu við bæjarfélög. 5. Tæknileg skipulagning kerfis, gæðakröfur. 6. Lögfræðileg og stjórnmálaleg atriði. Höfundarréttur. 7. Fjármögnun, rekstrarkostnaður, tekjur. 8. Ath. á þeim möguleika, að Rúv. og P & S sjái algjörlega um dreifingu á erlendu sjónvarpsefni, en í öllum tilvikum þarf náið samstarf við þær stofnanir og heimildir frá þeim. Flutningur á erlendum dagskrám frá gervihnöttum eða staðbundnum dagskrám getur varla talist almenn- ingsþjónusta á sama hátt og dag- skrár frá Ríkisútvarpinu eða síma- þjónustan, þar sem flestir fá aðgang að kerfunum fyrir sama verð. Tekj- ur af slíkum sjónvarpsstrengjakerf- um verða því að standa undir kostn- aði á hverjum stað. Hins vegar er þetta stjórnmálaleg ákvörðun. ÓLAFUR TÓMASSON, yfirverk- fræðingur Póst- og símamálastofnun. HÖFUÐBORGARSVÆÐINU SKIPT NIÐ- UR í STAÐGREINIREITI Að undanförnu hefur verið unmö að því á Skipulagsstofunni að skipta öllu höfuðborgarsvæðinu niður í s.k. staðgreinireiti. En staðgreinir er ákveðin talnaröð, - greinitala eða auðkennitala, sem lýsir land- fræðilegri legu lóðar, lands og eða bygginga. Þannig má safna saman og staðsetja landtengdar upplýsing- ar svo sem notkun og nýtingu lóð- ar, lands og bygginga og upplýsing- ar um mannfjölda í hverjum reit svo dæmi séu tekin. Reykjavík er eina sveitarfélagið á landinu sem er þannig stað- greint og var það gert 1968. Sú reynsla sem nú hefur fengist á notk- un staðgreinikerfisins þar þykir það góð að ákveðið var að gera drög að staðgreiniskiptingu fyrir allt höfuð- borgarsvæðið. Því var í byrjun mars s.l. hafist handa við að vinna þetta verk eins og áður segir. Er því nú að mestu lokið. í framhaldi af því er nú unnið að flokkun lóða, landa og bygginga á öllu svæðinu sam- kvæmt staðgreininúmeri. Drög að staðgreiniskiptingu svæðis- ins hafa verið send viðkomandi sveitarfélögum svo og Fasteigna- mati ríkisins til umsagnar. RÁÐSTEFNA UM UMHVERFIS- OG SKIPULAGSMÁL í KÓPAVOGI. 30. apríl s.l. var haldin ráðstefna í Félagsheimili Kópavogs um um- hverfis- og skipulagsmál í Kópavogi. Ráðstefnan var opin al- menningi, enda var tilgangur henn- ar að gefa bæjarbúum kost á því að móta stefnu bæjaryfirvalda í um- hverfis- og skipulagsmálum. Ráðstefnuna sóttu um 70 manns. Eftirtalin erindi voru flutt: 1. Ásmundur Ásmundsson, for- maður skipulagsnefndar Kópavogs: Ávarp. 2. Stefán Thors: Aðalskipulag - Landnotkun. 3. Þórarinn Hjaltason: Samgöngur og þjónusta. 4. Guðrún Jónsdóttir: Umferðar- mál eldri h'verfa. 5. Einar Sæmundsen: Um- hverfisvernd og útivist. NÝ RIT í BÓKASAFNI SKIPULAGSSTOFUNNAR 1. VESTURSTRÖND EYJA FJARÐAR, NÁTTÚRUFAR OG MINJAR. Höf. Helgi Hallgrímsson, Þóroddur F. Þóroddsson, Þórir Haraldsson, Kristín Aðalsteinsdóttir, Hálfdán Björnsson. Útg. Náttúrugripasafnið á Akureyri, 1982. Skýrslan er 231 blaðsíða í A 4 broti og skiptist í 7 meginkafla: 1. Landafræði, 2. Jarðfræði, 3. Veður- far, 4. Lífríkið, 5. Landnýting, 6. Söguminjar, 7. Verndun. 2. BORGARFJARÐARHREPPUR, BYGGÐAÞRÓUNARÁÆTLUN 1983-1987. Höf. Ingimundur Sigurpálsson, Sigurð- ur G. Þorsteinsson, Vilhjálmur G. Siggeirsson. Útg. Framkvæmdastofnun ríkisins. Byggðadeild 1983. Skýrslan er 60 blaðsíður og skiptist í 13 kafla auk inngangs: 1. Náttúrufar, 2. Mannfélagsgerð, 3. Landbúnaður, 4. Sjávarútvegur, 5. Iðnaður, 6. Vegamál, j 21

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.