Víkurfréttir - 25.02.2023, Blaðsíða 14
Takmark Grindavíkurliðsins einfalt, sæti í deild þeirra bestu – Bestu deildinni.
„Standið á mér er mjög gott, líkaminn á góðu róli en það er bara
janúar núna, mér líður vel miðað við árstíma. Ástæðan fyrir því
að ég ákvað að ganga til liðs við Grindavík er að stefnan er tekin
upp, mikill metnaður hjá nýjum formanni og stjórn,” segir knatt-
spyrnumaðurinn Óskar Örn Hauksson sem nýverið gekk til liðs við
Grindavík á nýjan leik.
Óskar er leikjahæsti leikmaður í sögu
efstu deildar á Íslandi en í heildina
á hann skráða 599 leiki í mótum á
vegum KSÍ og hefur skorað 169 mörk
í þeim, hann er m.a. markahæsti leik-
maður KR frá upphafi í efstu deild.
Óskar sem er orðinn 38 ára gamall er
hvergi af baki dottinn en hann kom
til Grindavíkur ungur að árum frá
heimabænum Njarðvík en gekk svo
til liðs við KR eftir tímabilið 2006.
Grindavíkurliðið hefur fengið tölu-
verðan liðsstyrk frá síðasta tímabili
og hæst ber að nefna Óskar sem var
aðeins búinn að tapa gleðinni við að
spila fótbolta en hefur endurheimt
hana á ný og er brattur fyrir komandi
tímabil. „Ég er tiltölulega nýbyrjaður
að æfa með liðinu, skrifaði undir
samninginn um miðjan desember
og ég myndi segja að undirbúnings-
tímabilið fari vel af stað. Ég er mjög
ánægður að vera kominn aftur til
Grindavíkur og finn hvernig gleði
mín við að spila fótbolta er komin
á ný, ég tapaði henni aðeins í fyrra.
Skemmir líka ekki fyrir að veðrið
hefur verið ótrúlega stillt og gott en
við æfum tvisvar í viku á gervigras-
vellinum á Álftanesi. Ég hef alltaf
kunnað miklu betur við mig úti en
inni í höll en við KR-ingar æfðum
alltaf þannig, þegar veður er í lagi þá
er það miklu betra að mínu mati. Svo
æfum við líka í Hópinu og í Crossfit-
stöðinni hjá Óla Baldri.“
Deildarbikarinn framundan
Lið Grindavíkur er byrjað að spila
æfingaleiki og deildarbikarinn er
framundan, Óskar sló aðeins á þá
léttu. „Já, eigum við ekki að segja að
við séum bara búnir að spila einn
æfingaleik? Nei, við spiluðum við
Stjörnuna fyrir rúmri viku og stein-
lágum 3:0 en áttum síðan góðan leik
á móti Haukum um síðustu helgi og
unnum 3:2. Ég setti annað markið
okkar, alltaf gott að koma sér á blað.
Mestu skiptir þó að við spiluðum
nokkuð vel og unnum, ekki að svona
æfingaleikir skipti öllu máli en samt,
þú vilt frekar vinna en tapa. Svo
styttist í deildarbikarinn en þá er
öllum liðunum í efstu tveimur deild-
unum raðað í fjóra riðla og efsta liðið
í hverjum riðli fer í undanúrslit. Við
erum í erfiðum riðli en það verður
gaman að máta okkur við bestu
liðin,“ segir Óskar.
Mörg íslensk lið fara í æfingaferð á
suðlægar slóðir og Grindavík er þar
engin undantekning. „Við förum til
Campoamor á Spáni, það er vinsæll
staður íslenskra liða, toppaðstæður.
Alltaf gaman að komast úr kuldanum
á Íslandi á iðagrænt grasið á Spáni.
Þetta eru líka mjög mikilvægar ferðir
upp á liðsanda og slíkt. Hér áður fyrr
voru oft sett upp mót milli íslensku
liðanna en við munum ekki spila
neina æfingaleiki, það fer of mikið
púður í þá sem bitnar þá á gæðum
æfinganna.“
Óskar er brattur fyrir komandi
tímabil, takmark hans og Grinda-
víkurliðsins fyrir tímabilið er ein-
falt. „Ég tel okkur vanti einn til tvo
leikmenn til að vera komnir með
fullmótað lið og það er verið að
vinna í því. Ég veit ekki hvort það
verði útlendingar en að reyna fá
íslenska leikmenn til Grindavíkur
virðist vera erfitt, það er eins og
menn haldi að Reykjanesbrautin sé
lengri í aðra áttina, þ.e. frá Reykjavík
til Grindavíkur. Það er eins og menn
telji sig vera keyra hinum megin á
hnöttinn! Leikmannamálin fara eins
og þau fara, ég hef ekki áhyggjur og
er viss um að við verðum með gott
lið í sumar sem mun keppa um að
komast upp, ég hlakka mikið til tíma-
bilsins,“ sagði Óskar að lokum.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Sá leikjahæsti búinn að endurheimta fótboltagleðina
„Það er eins og menn haldi að
Reykjanesbrautin sé lengri í aðra áttina,“
segir Óskar Örn Hauksson.
Óskar í leik með Stjörnunni gegn Keflavík
á síðustu leiktíð. VF-mynd: JPK
Óskar Örn Hauksson og Haukur Guðberg Einarsson,
formaður knattspyrnudeildar UMFG, kampakátir við
undirritun samningsins í lok síðasta árs. VF-mynd: SDD
Þessi skemmtilega mynd af Óskari
(til hægri) birtist á síðum Víkurfrétta
þann 15. nóvember 1990.
Óskar í leik með KR.
sport