Víkurfréttir - 08.02.2023, Qupperneq 6
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Mikil brælutíð er í gangi núna og
bátar hafa ekkert komist á sjóinn
síðan 1. febrúar síðastliðinn.
Annars mun ég í þessum pistli,
bera saman janúar árið 2023 og
janúar árið 1993, oft ansi gaman að
fara aftur í tímann og bera saman ár.
Ef við byrjum á heildarafla sem var
landað, þá var í janúar árið 2023 sam-
tals landað 4.138 tonnum í höfnunum
þremur á Suðurnesjunum. Í janúar
árið 1993 var samtals afli 5.542 tonn.
Best er að sjá þetta á fjölda land-
anna og fjölda báta. Í janúar árið
2023 voru bátarnir alls 45 sem
lönduðu þessum 4.138 tonnum og
landanir samtals 252. í janúar árið
1993 voru bátarnir alls 110 og land-
anir alls 912 talsins. Þarna sést strax
gríðarlegur munur en mestu munar
þarna um að fjöldi minni báta var
miklu meiri árið 1993 en 2023.
Lítum aðeins á bæina og byrjum á
Keflavík. Í janúar árið 2023 var sam-
tals landað 253 tonnum en í janúar
árið 1993 komu á land í Keflavík
alls 895 tonn í 147 löndunum. Þá
var Happasæll KE aflahæstur þar
með 206 tonn í 22 róðrum og má
geta þess að þessi bátur heitir í
dag Grímsnes GK og var að landa
í Grindavík í janúar 2023. Aðrir
bátar í Keflavík í janúar 1993 voru
t.d. Gunnar Hámundarson GK með
35 tonn í fjórtán löndunum, Stafnes
KE með 125 tonn í átján, Svanur KE
með 47 tonn í sextán róðrum, allir
á netum. Togarar voru þrír; Þuríður
Halldórsdóttir GK með 121 tonn í
þremur, Eldeyjar Súla KE með 102
tonn í tveimur og Ólafur Jónsson GK
með 44 tonn í einni löndun.
Í janúar árið 2023 var togarinn
Sóley Sigurjóns GK aflahæstur með
132 tonn í einni löndun, Maron GK
með 63 tonn í þrettán netaróðrum.
Í Grindavík vekur það kannski
mesta athygli að meiri afli kom á
land þar í janúar 2023 en í janúar
árið 1993. Reyndar er rétt að hafa í
huga að frystitogarinn Hrafn Svein-
bjarnarson GK kom með 623 tonn í
einni löndun þangað. Heildarafli án
aflans frá Hrafni Sveinbjarnarsyni
GK var alls 2.420 tonn í Grindavík í
janúar 2023 en í janúar árið 1993 var
aflinn alls 2.180 tonn í 226 löndun.
Það má segja að ein stærsta skýr-
ingin á þessum aflamun sé sú að
mestur afli sem kom til Grindavíkur
núna árið 2023 hafi verið frá stóru
línubátunum og 29 metra togurunum
en stóru línubátarnir voru alls með
915 tonna afla og 29 metra togar-
arnir voru alls með 989 tonn. Sturla
GK var sá sem mestum afla landaði
í Grindavík í janúar 2023, alls 375
tonnum í átta róðrum á trolli.
Athygli vekur að aðeins tveir
netabátar lönduðu í Grindavík árið
2023, Grímsnes GK og Hraunsvík GK
sem voru saman með 43 tonna afla.
Aftur á móti var langmestur fjöldi
báta á netaveiðum í janúar 1993.
Lítum á nokkra báta í janúar 1993 í
Grindavík; Sæborg GK með 221 tonn
í tíu róðrum, Þorsteinn GK með 206
tonn í fjórtán og Vörður ÞH með
163 tonn í níu róðrum, allir á netum.
Kópur GK var með 162 tonn í þremur,
Skarfur GK með 156 tonn í þremur,
Eldeyjar Hjalti GK með 134 tonn í
fimm og Hrungnir GK með 132 tonn
í þremur róðrum, allir þessir á línu.
Minni bátarnir voru t.d. Máni GK
með 42 tonn í tólf, Eldhamar GK 29
tonn í átta, Þorsteinn Gíslason GK 28
tonn í sjö og Reynir GK með 26 tonn
í sjö róðrum, allir á balalínu.
Sandgerði hafði um tuga ára skeið
verið stærsta löndunarhöfn Íslands
ár eftir ár, árið 1993 var þar engin
undantekning og heildarafli sem
kom á í Sandgerði það ár var 2.450
tonn í 537 löndunum og bátarnir sem
lönduðu í Sandgerði voru samtals 58,
í þeim hópi voru þrír togarar. Árið
2023 var alls landað 830 tonnum í
110 löndunum.
Aflahæsti báturinn í Sandgerði árið
2023 var Sigurfari GK með 155 tonn
í þrettán róðrum en rétt er að hafa í
huga að báturinn stoppaði 24. janúar
vegna sviptingar veiðileyfis. Á eftir
honum kom Siggi Bjarna GK með 134
tonn í fimmtán og Benni Sæm GK
með 129 tonn í fjórtán róðrum, allir
á dragnót. Margrét GK var með 103
tonn í ellefu á línu.
Í janúar árið 1993 var togarinn
Sveinn Jónsson KE aflahæstur í
Sandgerði með 316 tonn í fjórum
löndunum, netabáturinn Arney KE
kom þar á eftir með 175 tonn í sex
róðrum, Særún GK með 162 tonn í
þremur á línu, Ólafur Jónsson GK
togari með 111 tonn í tveimur og
Haukur GK, sem líka var togari, 111
tonn í einum túr.
Aðrir bátar voru að mestu á línu,
t.d. Þorri GK með 81 tonn í níu
róðrum, Freyja GK með 80 tonn
í átta, Jón Gunnlaugs GK með 79
tonn í átta, Sigþór ÞH með 78 tonn í
níu, Njáll RE með 78 tonn í tuttugu,
Hafnarberg RE með 69 tonn, Ósk KE
með 64 tonn í nítján róðrum, allir á
netum en þessi bátur heitir Maron
GK árið 2023.
Guðfinnur KE var með 61 tonn í tíu
róðrum, Björgvin á Háteig GK með 37
tonn í níu og var hann hæstur drag-
nótabátanna. Seinna fékk þessi bátur
nafnið Benni Sæm GK. Hafdís KE var
hæstur smábátanna í Sandgerði árið
1993 með 31 tonn í fjórtán róðrum.
Eins og sést á þessu að ofan var
mikið um að vera í höfnunum þremur
fyrir 30 árum síðan .
Hvorki loðnu eða síld var landað á
Suðurnesjum í janúar 1993 og 2023.
Hins vegar kom ansi mikið magn af
loðnu á land í febrúar 1993 – en eins
og við vitum núna þá kemur ekki eitt
gramm af loðnu til löndunar á Suður-
nesjum.
aflafrÉttir á SuðurNeSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Hvað hefur breyst á þrjátíu árum?
Ísland tekur um þessar mundir, þátt í BPart! sem er tveggja ára alþjóðlegt listaverkefni sem á uppruna
sinn í Tékklandi en er unnið í samstarfi við okkur Íslendinga. Verkefnið nýtir sköpun til að stuðla að
inngildingu og auka sýnileika á fjölbreytileika samfélagsins í gegnum dans og leik. Samhliða er unnið
að gerð heimildarmyndar og rannsóknar um verkefnið sem lýkur með ráðstefnu síðar á árinu þar sem
niðurstöður verða kynntar.
Verkefnið fer fram á þremur stöðum,
í Brno og Prag í Tékklandi og á Ís-
landi. Í Brno var lögð áhersla á
Rómafólk, í Prag verður lögð
áhersla á geðheilsu og hér á Íslandi
er sjónum beint að fólki á flótta.
Vinnustofur hófust í Reykjanesbæ,
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði
fyrir skemmstu og eru þær leiddar
af ítalska danshópnum Zerogrammi,
í samstarfi við íslenskt og tékknest
listafólk.
Í vinnustofunum eru tengdir
saman ólíkir hópar fólks sem vinna
í gegnum leik og dans að sameigin-
legri lokasýningu - sem fer fram hér
í Reykjanesbæ á laugardag kl. 15, í
óhefðbundnu rými gamals rútuverk-
stæðis SBK í Grófinni 2. Svo verður
sýnt í Reykjavík daginn eftir, sunnu-
daginn 12. febrúar. Sýningin heitir
Elegìa delle cose perdute (Elegy of
Lost Things) og er innblásin af skáld-
sögunni Os Pobres eftir portúgalska
rithöfundinn og sagnfræðinginn
Raul Brandao og endurspeglar þrár
og minningar, rætur og uppruna.
Verkið fjallar um siðferðilega útlegð,
drauminn um ógerlega afturkomu,
reiðina gagnvart tímanum sem ger-
eyðingarafli og landakortið sem býr
innra með okkur öllum.
Það var mikið líf og fjör mánu-
daginn 6. janúar þegar Víkurfréttir
kíktu í heimsókn á meðan hópurinn
æfði og voru þær Halla Karen Guð-
jónsdóttir, verkefnastjóri viðburða-
halds hjá Reykjanesbæ, Sigríður
Láretta Jónsdóttir, leikkona og þátt-
takandi úr hópi listamanna, og Ás-
laug Jónsdóttir, þátttkandi úr hópi
íbúa Reykjanesbæjar, teknar tali.
Afraksturinn má sjá í næsta þætti
Suðurnesja magasíns á sjónvarps-
stöðinni Hringbraut á fimmtudags-
kvöld kl. 19:30.
Alþjóðlegur
listviðburður
í Reykjanesbæ
L I S T A V E R K Á L A U G A R D A G I N N | M E Ð A L A N N A R S M E Ð Þ Á T T T Ö K U F Ó L K S Á F L Ó T T A
BPart!
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERNA MARSIBIL
SVEINBJARNARDÓTTIR
fyrrverandi kennari og skólastjóri,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 20. janúar.
Útför hennar verður gerð frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 10. febrúar
klukkan 12.
Þeir sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinafélag Unu í Sjólyst:
0142-05-71020, kt. 590712-0190.
Jón Sverrir Garðarsson
Sigrún Eugenio Jónsdóttir Vitor Hugo Rodrigues Eugenio
Ásta Björg Jónsdóttir
Marcosa Medico
og fjölskyldur
6 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM