Víkurfréttir - 29.03.2023, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 29.03.2023, Blaðsíða 14
„skírnin er fyrst og síðast innganga í kristinn söfnuð. Það að ferma börn nær allt aftur til tólftu aldarinnar þegar kaþólska kirkjan tók upp ferminguna sem staðfestingu á skírninni,“ segir sr. Elínborg gísladóttir, sóknarprestur í grindavík. Elínborg man vel eftir sinni ferm- ingu en hún ólst upp í sveitinni. Hún var orðin þrítug þegar guð- fræðin togaði í hana og eftir að hafa þjónað á Ólafsfirði og leyst af á höfuðborgarsvæðinu, tók hún við prestakallinu í Grindavík og hefur verið síðan 2006. Gömul hefð „Ferming er staðfesting á skírninni en skírnin er innganga inn í kristið samfélag og í þessu samhengi hér, inn í evangelíska lúterska kirkju sem Þjóðkirkjan er. Í raun er það séríslensk hefð að gefa barni nafn á sama tíma og það er skírt. Guð- brandur Þorláksson, Hólabiskup beitti sér fyrir því að ferming yrði tekin upp í Hólabiskupsdæmi, fyrst árið 1596. Hin lútherska ferming var lögfest hér árið 1741 um leið og fermingin var lögfest um gjörvallt danska ríkið en Ísland var undir Danaveldi á þessum tíma. Heimildir herma að fermingar- aldurinn hafi verið um níu til tólf ára aldurinn hjá kaþólsku kirkj- unni en innan lútersku kirkjunnar hefur verið miðað við að barnið sé á fjórtánda ári. Ég hef verið spurð að því hvort ég teldi gáfulegra að miða þessa stóru ákvörðun í lífi hvers barns, við átján ára aldurinn en þá öðlast viðkomandi sjálfræði. Ég held að mjög erfitt yrði að snúa því við þó svo að það væri áhuga- vert að ræða við þau um undir- stöðu kristinnar trúar á átjánda árinu. Ég tel líka að þegar barn er á fjórtánda ári, að það sé góður aldur, það var aldurinn hér áður fyrr sem viðkomandi var tekinn í fullorðins manna tölu. Barnið er á tímamótum, er að breytast í ungling og er orðið meðvitaðra um lífið. Á þessum tímapunkti eru for- eldrarnir sömuleiðis búnir að ræða þessi mál við sitt barn, sum börn tilheyra öðrum trúar- og lífskoð- unarfélögum en Þjóðkirkjunni og fermast þá þar.“ Fjölbreytt fermingarfræðsla Fermingarundirbúningurinn byrjar alltaf í upphafi skólaárs. „Eitt það fyrsta sem við gerum er að fara í fimm daga ferðalag í Vatnaskóg, í lok ágúst. Þar fer m.a. fram fræðsla, leikur, söngur og gleði. Svo mæta börnin einu sinni í viku á skólaárinu í fermingarfræðslu fram að fermingu. Fræðslan snýst um grunngildi kristinnar trúar, að kynnast Biblíunni og kunna að fletta upp í henni. Að sjálfsögðu er farið yfir trúarjátninguna sem er játning kristinna manna í heim- inum, hún verður til sem skírnar- játning á þriðju öld. Börnin læra að biðja, læra bænir og læra hvað felst í því að vera kristin mann- eskja. Gullna reglan segir reyndar margt um það; „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra“ en mjög margt í trúararfinum snertir mannlegt líf, burtséð frá því hversu trúaður við- komandi telur sig vera. Bara þetta samfélag að koma saman, biðja saman, syngja saman, gleðjast saman og syrgja saman. Eitt af grunngildum trúarinnar er að rækta með sér kærleika til alls fólks. Börnum er kennt um jafnrétti, að allir eigi að hafa sömu réttindi, lýð- ræðið er fyrir alla, burtséð frá kyni eða kynþætti. N á m s e f n i ð t e k u r a l l t a f ákveðnum breytingum ár frá ári en í grunninn er alltaf verið að styðjast við það sama. Námsefnið er kannski sett í það form sem hentar betur m.v. tíðarandann en það sem ég hef tekið eftir á undan- förnum árum, að lestrarkunnáttu barnanna almennt hefur hrakað. Þetta er í takti við þær rannsóknir sem við höfum heyrt um varðandi lestrarkunnáttu barna, að skiln- ingur þeirra á íslenskri tungu er ekki eins og áður. Mín reynsla í fræðslunni er sú að þau hafa gaman af að láta segja sér biblíu- sögur, ekki lesa þær fyrir þau. Ég nota kraftaverkasögur Jesús Krists, þær eru líka skemmtilegar og vekja athygli barnanna. Ég bið þau um að tengja sögurnar við hið daglega líf okkar hér og nú, hvað eru þær að segja okkur í nútímanum og það skapast of áhugaverðar pælingar um kraftaverkin. Ég fylgi námskrá þjóðkirkjunnar en ræð nokkuð sjálf framsetningunni á efninu,“ segir sr. Elínborg. Fermingarveislan á sveitabænum Sr. Elínborg er fædd árið 1959 og ólst upp á sveitabænum Kýrholti sem er nálægt Hólum í Hjaltadal í Skagafirði. Það voru tveir biskups- stólar á Íslandi, í Skálholti og að Hólum í Hjaltadal en fyrrnefndur Guðbrandur Þorláksson (1542- 1627) ríkti þar. „Ég fermdist í Hólakirkju og þykir afskaplega vænt um það, þetta var kirkjan sem tilheyrði minni sveit en fyrir þá sem ekki vita þá er u.þ.b. þrjátíu kílómetrar frá Hólum í Hjaltadal inn á Sauð- árkrók. Ég man vel eftir þessum degi, það var yndislegt veður. Þetta var á Hvítasunnunni og við vorum sex börn sem fermdust, presturinn hét Björn Björnsson. Veislan var haldin heima, mamma og systir mín bökuðu, í minningunni voru þrjátíu til fjörutíu gestir, mest skyldmenni og vinir úr sveitinni. Eftirminnilegasta gjöfin var arm- bandsúr sem var vinsælt að gefa á þessum tíma, ég fékk líka skart- gripi og fékk óvenju mikla peninga en það voru sjaldgæfar gjafir á þessum tíma.“ Þrítug í guðfræði Ég var orðin þrjátíu og tveggja ára þegar ég skráði mig í guðfræði. Ég hafði menntað mig sem lyfjatæknir og vann í apóteki en fann svo að ég vildi breyta til. Ég hafði mikinn áhuga á bókmenntum, var búin að skrá mig í íslensku og hóf nám þar en þarna var guðfræðin farin að toga í mig. Kennsla í henni byrjaði viku seinna og ég sótti um að færa mig yfir í guðfræði og komst inn. Ég útskrifaðist árið 1997 en í upp- hafi náms míns hafði ég ekki í huga að gerast prestur en hægt og rólega óx það innra með mér, að gerast prestur. Eftir útskriftina fór ég að vinna hjá SÁÁ og gerðist áfengis og vímuefnaráðgjafi. Árið 2001 vígðist ég hins vegar til prests- embættis á Ólafsfirði. Ég var þar í þrjú ár, leysti þá af í Reykjavík, kem síðan til Grindavíkur árið 2006 og hef verið sóknarprestur í Grindavík síðan. Mér líður vel hér í Grindavík, það er gott að búa hér,“ sagði sr. Elínborg að lokum. Um hvað snýst fermingin? Fjölbreytt fræðsla. GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is Fermingarhefðin nær allt til tólftu aldar „það sem ég hef tekið eftir á undan- förnum árum, að lestrarkunnáttu barnanna hefur hrakað. Þau eiga erfiðara með að leggja hluti á minnið“ Elíza Newman fermdist í keflavíkurkirkju árið 1989. Hún fékk fullt af bókum í fermingargjöf, sem hún var misánægð með. samheitaorðabókina hefur hún hins vegar notað mikið Hvað kemur fyrst upp í hugann þegar þú rifjar upp ferm- inguna? Roast beef og vandræðagangur! Af hverju léstu ferma þig? Mig langaði að komast í fullorð- inna manna tölu eins og það var kallað og ég vildi fá gjafir hugsa ég ef ég á að vera hreinskilin. Á þessum tíma var ekki mikið svigrúm fyrir því að ferma sig ekki, það var ekki algengt. Hvernig var fermingarundir- búningurinn, presturinn og kirkjan? Ég man að ég var send í hár- greiðslu og myndatöku sem mér fannst vandræðalegt eins og allt í lífinu þá en ég fékk að lita hárið mitt sem gladdi mig og fara í Reykjavík að kaupa kjól sem var mjög spennandi. Mér fannst fyndið að vera í hvítum kufli á fermingadaginn og ég var með stóran kross um hálsinn út af því það var töff (fannst mér). Prest- urinn var fínn en minningin sem kemur upp um kirkjunni á fermingardaginn er sú að ég var að horfa á altaristöfluna á Jesú og að reyna að senda honum hugboð um það að ég væri í al- vörunni að reyna mjög mikið að leggja mig fram og trúa þessu öllu en ég væri ekki alveg viss og hvort hann myndi ekki örugg- lega fyrirgefa mér ef hann væri til og ég hefði rangt fyrir mér! Var haldin veisla og hvað er eftirminnilegast úr henni? Það var mjög fín veisla heima á Faxabrautinni stýrt af mömmu og ömmu. Svo man ég eftir að það var roastbeef í matinn í veislunni sem ég var rosa ánægð með. Mér fannst svaka vanræða- legt að þurfa að heilsa öllum með handabandi og ég man að það voru svaka uppstillingar fyrir myndatökur sem var stýrt af Ömmu Stellu. Í minningunni var þetta góður dagur í faðmi fjölskyldunar og mér fannst ég verða aðeins meira fullorðin eftir hann. Eru einhverjar fermingar- gjafir sem þú manst eftir? Já ég fékk rosa mikið af bókum, orðabækur, samheitaorðabók, Íslendingasögur og ljóðabækur sem ég var ekkert sérstaklega ánægð með, en þær komu sér svo mjög vel í námi seinna meir og ég get sagt að samheitaorða- bókinn var mjög mikið notuð! Ég fékk líka ferð til Oxford í Englandi í enskuskóla það sumarið frá foreldrum mínum sem var algjörlega frábær gjöf, opnaði huga minn fyrir stóra heiminum og var byrjunin á ástarævintýri mínu við England og allt því tengdu. Ertu að fara í einhverjar ferm- ingarveislur? Ekki í ár nei en ég bíð spennt eftir næstu! Reyndi að senda Jesú á altaris- töflunni hugboð FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Öldungar í ballskák 14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.