Víkurfréttir - 29.03.2023, Síða 14
„skírnin er fyrst og síðast innganga í kristinn söfnuð. Það að ferma börn nær allt aftur til tólftu
aldarinnar þegar kaþólska kirkjan tók upp ferminguna sem staðfestingu á skírninni,“ segir sr. Elínborg
gísladóttir, sóknarprestur í grindavík.
Elínborg man vel eftir sinni ferm-
ingu en hún ólst upp í sveitinni.
Hún var orðin þrítug þegar guð-
fræðin togaði í hana og eftir að
hafa þjónað á Ólafsfirði og leyst af
á höfuðborgarsvæðinu, tók hún við
prestakallinu í Grindavík og hefur
verið síðan 2006.
Gömul hefð
„Ferming er staðfesting á skírninni
en skírnin er innganga inn í kristið
samfélag og í þessu samhengi hér,
inn í evangelíska lúterska kirkju
sem Þjóðkirkjan er. Í raun er það
séríslensk hefð að gefa barni nafn
á sama tíma og það er skírt. Guð-
brandur Þorláksson, Hólabiskup
beitti sér fyrir því að ferming yrði
tekin upp í Hólabiskupsdæmi, fyrst
árið 1596. Hin lútherska ferming
var lögfest hér árið 1741 um leið og
fermingin var lögfest um gjörvallt
danska ríkið en Ísland var undir
Danaveldi á þessum tíma.
Heimildir herma að fermingar-
aldurinn hafi verið um níu til tólf
ára aldurinn hjá kaþólsku kirkj-
unni en innan lútersku kirkjunnar
hefur verið miðað við að barnið sé
á fjórtánda ári. Ég hef verið spurð
að því hvort ég teldi gáfulegra að
miða þessa stóru ákvörðun í lífi
hvers barns, við átján ára aldurinn
en þá öðlast viðkomandi sjálfræði.
Ég held að mjög erfitt yrði að snúa
því við þó svo að það væri áhuga-
vert að ræða við þau um undir-
stöðu kristinnar trúar á átjánda
árinu. Ég tel líka að þegar barn
er á fjórtánda ári, að það sé góður
aldur, það var aldurinn hér áður
fyrr sem viðkomandi var tekinn
í fullorðins manna tölu. Barnið
er á tímamótum, er að breytast í
ungling og er orðið meðvitaðra um
lífið. Á þessum tímapunkti eru for-
eldrarnir sömuleiðis búnir að ræða
þessi mál við sitt barn, sum börn
tilheyra öðrum trúar- og lífskoð-
unarfélögum en Þjóðkirkjunni og
fermast þá þar.“
Fjölbreytt fermingarfræðsla
Fermingarundirbúningurinn
byrjar alltaf í upphafi skólaárs.
„Eitt það fyrsta sem við gerum
er að fara í fimm daga ferðalag í
Vatnaskóg, í lok ágúst. Þar fer m.a.
fram fræðsla, leikur, söngur og gleði.
Svo mæta börnin einu sinni í viku
á skólaárinu í fermingarfræðslu
fram að fermingu. Fræðslan snýst
um grunngildi kristinnar trúar,
að kynnast Biblíunni og kunna að
fletta upp í henni. Að sjálfsögðu er
farið yfir trúarjátninguna sem er
játning kristinna manna í heim-
inum, hún verður til sem skírnar-
játning á þriðju öld. Börnin læra
að biðja, læra bænir og læra hvað
felst í því að vera kristin mann-
eskja. Gullna reglan segir reyndar
margt um það; „Allt sem þér viljið
að aðrir menn gjöri yður það skuluð
þér og þeim gjöra“ en mjög margt í
trúararfinum snertir mannlegt líf,
burtséð frá því hversu trúaður við-
komandi telur sig vera. Bara þetta
samfélag að koma saman, biðja
saman, syngja saman, gleðjast
saman og syrgja saman. Eitt af
grunngildum trúarinnar er að
rækta með sér kærleika til alls fólks.
Börnum er kennt um jafnrétti, að
allir eigi að hafa sömu réttindi, lýð-
ræðið er fyrir alla, burtséð frá kyni
eða kynþætti.
N á m s e f n i ð t e k u r a l l t a f
ákveðnum breytingum ár frá ári
en í grunninn er alltaf verið að
styðjast við það sama. Námsefnið
er kannski sett í það form sem
hentar betur m.v. tíðarandann en
það sem ég hef tekið eftir á undan-
förnum árum, að lestrarkunnáttu
barnanna almennt hefur hrakað.
Þetta er í takti við þær rannsóknir
sem við höfum heyrt um varðandi
lestrarkunnáttu barna, að skiln-
ingur þeirra á íslenskri tungu er
ekki eins og áður. Mín reynsla
í fræðslunni er sú að þau hafa
gaman af að láta segja sér biblíu-
sögur, ekki lesa þær fyrir þau. Ég
nota kraftaverkasögur Jesús Krists,
þær eru líka skemmtilegar og vekja
athygli barnanna. Ég bið þau um
að tengja sögurnar við hið daglega
líf okkar hér og nú, hvað eru þær
að segja okkur í nútímanum og það
skapast of áhugaverðar pælingar
um kraftaverkin. Ég fylgi námskrá
þjóðkirkjunnar en ræð nokkuð sjálf
framsetningunni á efninu,“ segir sr.
Elínborg.
Fermingarveislan á sveitabænum
Sr. Elínborg er fædd árið 1959 og
ólst upp á sveitabænum Kýrholti
sem er nálægt Hólum í Hjaltadal í
Skagafirði. Það voru tveir biskups-
stólar á Íslandi, í Skálholti og að
Hólum í Hjaltadal en fyrrnefndur
Guðbrandur Þorláksson (1542-
1627) ríkti þar.
„Ég fermdist í Hólakirkju og
þykir afskaplega vænt um það,
þetta var kirkjan sem tilheyrði
minni sveit en fyrir þá sem ekki
vita þá er u.þ.b. þrjátíu kílómetrar
frá Hólum í Hjaltadal inn á Sauð-
árkrók. Ég man vel eftir þessum
degi, það var yndislegt veður. Þetta
var á Hvítasunnunni og við vorum
sex börn sem fermdust, presturinn
hét Björn Björnsson. Veislan var
haldin heima, mamma og systir
mín bökuðu, í minningunni voru
þrjátíu til fjörutíu gestir, mest
skyldmenni og vinir úr sveitinni.
Eftirminnilegasta gjöfin var arm-
bandsúr sem var vinsælt að gefa
á þessum tíma, ég fékk líka skart-
gripi og fékk óvenju mikla peninga
en það voru sjaldgæfar gjafir á
þessum tíma.“
Þrítug í guðfræði
Ég var orðin þrjátíu og tveggja ára
þegar ég skráði mig í guðfræði. Ég
hafði menntað mig sem lyfjatæknir
og vann í apóteki en fann svo að
ég vildi breyta til. Ég hafði mikinn
áhuga á bókmenntum, var búin að
skrá mig í íslensku og hóf nám þar
en þarna var guðfræðin farin að
toga í mig. Kennsla í henni byrjaði
viku seinna og ég sótti um að færa
mig yfir í guðfræði og komst inn.
Ég útskrifaðist árið 1997 en í upp-
hafi náms míns hafði ég ekki í huga
að gerast prestur en hægt og rólega
óx það innra með mér, að gerast
prestur. Eftir útskriftina fór ég að
vinna hjá SÁÁ og gerðist áfengis
og vímuefnaráðgjafi. Árið 2001
vígðist ég hins vegar til prests-
embættis á Ólafsfirði. Ég var þar
í þrjú ár, leysti þá af í Reykjavík,
kem síðan til Grindavíkur árið
2006 og hef verið sóknarprestur í
Grindavík síðan. Mér líður vel hér
í Grindavík, það er gott að búa hér,“
sagði sr. Elínborg að lokum.
Um hvað snýst fermingin? Fjölbreytt fræðsla.
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
Fermingarhefðin
nær allt til tólftu aldar
„það sem ég hef
tekið eftir á undan-
förnum árum, að
lestrarkunnáttu
barnanna hefur
hrakað. Þau eiga
erfiðara með að
leggja hluti á
minnið“
Elíza Newman fermdist í keflavíkurkirkju árið 1989. Hún fékk
fullt af bókum í fermingargjöf, sem hún var misánægð með.
samheitaorðabókina hefur hún hins vegar notað mikið
Hvað kemur fyrst upp í hugann
þegar þú rifjar upp ferm-
inguna?
Roast beef og vandræðagangur!
Af hverju léstu ferma þig?
Mig langaði að komast í fullorð-
inna manna tölu eins og það var
kallað og ég vildi fá gjafir hugsa
ég ef ég á að vera hreinskilin.
Á þessum tíma var ekki mikið
svigrúm fyrir því að ferma sig
ekki, það var ekki algengt.
Hvernig var fermingarundir-
búningurinn, presturinn og
kirkjan?
Ég man að ég var send í hár-
greiðslu og myndatöku sem mér
fannst vandræðalegt eins og allt í
lífinu þá en ég fékk að lita hárið
mitt sem gladdi mig og fara í
Reykjavík að kaupa kjól sem
var mjög spennandi. Mér fannst
fyndið að vera í hvítum kufli á
fermingadaginn og ég var með
stóran kross um hálsinn út af því
það var töff (fannst mér). Prest-
urinn var fínn en minningin
sem kemur upp um kirkjunni á
fermingardaginn er sú að ég var
að horfa á altaristöfluna á Jesú
og að reyna að senda honum
hugboð um það að ég væri í al-
vörunni að reyna mjög mikið að
leggja mig fram og trúa þessu
öllu en ég væri ekki alveg viss og
hvort hann myndi ekki örugg-
lega fyrirgefa mér ef hann væri
til og ég hefði rangt fyrir mér!
Var haldin veisla og hvað er
eftirminnilegast úr henni?
Það var mjög fín veisla heima á
Faxabrautinni stýrt af mömmu
og ömmu. Svo man ég eftir að
það var roastbeef í matinn í
veislunni sem ég var rosa ánægð
með. Mér fannst svaka vanræða-
legt að þurfa að heilsa öllum
með handabandi og ég man að
það voru svaka uppstillingar
fyrir myndatökur sem var stýrt
af Ömmu Stellu. Í minningunni
var þetta góður dagur í faðmi
fjölskyldunar og mér fannst ég
verða aðeins meira fullorðin eftir
hann.
Eru einhverjar fermingar-
gjafir sem þú manst eftir?
Já ég fékk rosa mikið af bókum,
orðabækur, samheitaorðabók,
Íslendingasögur og ljóðabækur
sem ég var ekkert sérstaklega
ánægð með, en þær komu sér
svo mjög vel í námi seinna meir
og ég get sagt að samheitaorða-
bókinn var mjög mikið notuð!
Ég fékk líka ferð til Oxford
í Englandi í enskuskóla það
sumarið frá foreldrum mínum
sem var algjörlega frábær gjöf,
opnaði huga minn fyrir stóra
heiminum og var byrjunin á
ástarævintýri mínu við England
og allt því tengdu.
Ertu að fara í einhverjar ferm-
ingarveislur?
Ekki í ár nei en ég bíð spennt
eftir næstu!
Reyndi að senda
Jesú á altaris-
töflunni hugboð
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Öldungar í ballskák
14 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM