Leyfi til að elska - feb. 2023, Side 3
Þekking á foreldraútilokun hefur aukist hægt
en jafnt og þétt frá því fyrst hófust rannsóknir
á fyrirbærinu á fimmta áratug síðustu aldar.
Rannsóknir hafa á hinn bóginn aukist gífurlega
síðasta áratuginn og hafa sem dæmi 40% allra
rannsókna um foreldraútilokun verið framkvæmdar
frá árinu 2016 og þannig skapað mikla
vitundarvakningu í fræðasamfélaginu. Í þessu
öðru tölublaði Leyfi til að elska birtum við íslenska
þýðingu á nýlegri ritrýndri vísindagrein Jennifer
J Harman, William Bernet og Joseph Harman
um þessa þróun. Greinin birtist fyrst í ritrýnda
vísindaritinu Current Directions in Psychological
Science árið 2019.
Foreldraútilokun er ein birtingarmynd heimilis-
ofbeldis. Rannsóknir á orsökum foreldraútilokandi
hegðunar byggja á skráningu tilfella á síðustu
áratugum. Í greininni komast rannsakendur að
niðurstöðu um hvaða hegðun megi flokka sem
foreldraútilokun og hvernig hún hafi áhrif á börn
og fjölskyldur þeirra í heild. Einnig er gerður
greinarmunur á foreldraútilokun og samskiptavanda
foreldra og barns og sýnt fram á að foreldraútilokun
er ekki aðeins ofbeldi gagnvart barninu, heldur
einnig birtingarmynd heimilisofbeldis sem beinist
bæði gegn barninu og útilokaða foreldrinu.
Með því að nota afleiðsluaðferð við greiningu á
birtum vísindagreinum um foreldraútilokun og
tíðni hennar eru vísbendingar um að 1% allra
barna í Bandaríkjunum séu útilokuð frá öðru
hvoru foreldri sínu. Rannsóknir bendi einnig til að
29% barna fráskilinna foreldra upplifi útilokandi
hegðun af hendi annars foreldris síns. Séu þessar
tölur yfirfærðar á Ísland má ætla að um 800 börn
séu útilokuð á hverjum tíma hér á landi og að
þúsundir barna upplifi útilokandi hegðun foreldris
síns gagnvart hinu. Í greininni kemur einnig fram
að yfir 22 milljónir fullorðinna Bandaríkjamanna
telji sig hafa upplifað útilokandi hegðun af hálfu
annars foreldris síns og að af þeim tilvikum hafi um
helmingur verið alvarleg útilokun.
Séu þær tölur einnig heimfærðar á Ísland væri um
24 þúsund manns að ræða. Af þessu leiðir að mjög
mikilvægt er að rannsaka þessa tegund ofbeldis á
Íslandi. Örfáar rannsóknir hafa verið framkvæmdar
hér á landi um foreldraútilokun og aðeins af
nemendum í BS eða Meistaranámi. Fæstar eru
opinberar. Þær hafa ýmist verið teknar úr birtingu
eða bíða þess að verða birtar. Sú staðreynd hjálpar
ekki til við greiningu á vandamálinu hér á landi.
Niðurstaða rannsóknar Jennifer, William og
Joseph er að þrátt fyrir að fagaðilar séu sammála
um skilgreiningar og ástæðu foreldraútilokunar
þá sé full þörf á frekari rannsóknum innan
sviðsins. Þar ætti að leggja áherslu á rannsóknir
sem miðast við að breikka fræðilegan grunn,
samþætta aðferðafræði til að bæta íhlutun
þegar foreldraútilokun á sér stað og koma með
meðferðarúrræði byggð á vísindalegri þekkingu.
Ísland gæti leikið mikilvægt hlutverk í baráttu gegn
þessu ofbeldi, líkt og við höfum áður gert varðandi
annars konar ofbeldi.
Ritstjórn
Blómaskeið rannsókna á foreldraútilokun
3
LEYFI TIL AÐ ELSKA FORELDRAJAFNRÉTTI