Fréttir - Eyjafréttir - 09.05.2022, Qupperneq 25
9. júní 2022 | | 25
Sendum sjómönnum
og fjölskyldum bestu kveðjur
á sjómannadaginn
Sendum sjómönnum
og fjölskyldum bestu kveðjur
á sjómannadaginn
Sendum sjómönnum
og fjölskyldum bestu kveðjur
á sjómannadaginn
Við hjá Sjálfstæðisflokknum
byrjuðum í vor með prófkjöri sem
kveikti líf í flokknum sem við
nýttum okkur inní sjálfa kosninga-
baráttuna. Okkar framboðslisti
var myndaður af hópi fólks úr öll-
um röðum samfélagsins þar sem
allir lögðu sig fram um að gera
kosningabaráttuna metnaðarfulla
og líklega til árangurs. Samheldni
og samgleði einkenndi hópinn og
vinátta myndaðist á milli fólks
sem lítið eða ekkert þekktist áður.
Úrslit kosninganna voru okkur
vonbrigði, en við fundum fyrir
miklum meðbyr síðustu dagana
og vonuðumst eftir hreinum
meirihluta. Við fengum 1151
atkvæði eða 44,1% og erum
langstærsta stjórnmálaaflið í Eyj-
um. Erfitt er að meta hvað olli því
að árangurinn varð ekki eins og
stefnt var að. Sumir gerðu mikið
úr því að við værum ekki með
bæjarstjóraefni og gáfu til kynna
að óboðlegt væri ef hann yrði sótt-
ur uppá land.
Var það okkur að falli? Eða voru
landsmálin eða síðustu fjögur árin
í minnihlutanum að gera okkur
erfitt fyrir? Engin ástæða er til
þess að dvelja við þessar vanga-
veltur þar sem svarið mun aldrei
fást.
Mætt til að gera
góðan bæ betri
Það sem við tökum út úr þessum
vikum sem eru liðnar er það að
við gerðum okkar besta. Ótrú-
lega margir komu að baráttunni
og lögðu hönd á plóg. Ég er
þess fullviss að við erum búin
að undirbúa jarðveg fyrir öflugt
flokksstarf á næsta kjörtímabili
með okkar öflugu liðsheild sem
varð til í vor.
Ég vil þakka öllum sem studdu
okkar framboð með einum eða
öðrum hætti. Hvort sem það var
undirbúningur að stefnuskrá,
sælkerakvöldi, prófkjöri, bakstri
í veislurnar, greinarskrifum eða
útburði á kosningaefni.
Ég átti samtöl við forystumenn
E og H lista og lýsti yfir áhuga á
viðræðum með meirihlutasamstarf
í huga, en því var tekið fálega og
þau mynduðu meirihluta án þess
að hleypa okkur að borðinu. Þrátt
fyrir vonbrigðin með úrslitin,
þá munum við mæta til starfa á
komandi kjörtímabili til að gera
góðan bæ betri.
Eyþór Harðarson
– oddviti Sjálfstæðisflokksins:
Vonbrigði en
fundum mikinn
meðbyr