Nesfréttir - 01.03.2022, Síða 16
16 Nesfrétt ir
Einn óvenjubjartan morgun í mars
sit ég við vinnuborðið með rjúkandi
kaffibolla og renni augunum sifjulega yfir tölvupóstinn. Skyndilega segir
einhver nálægt mér út í loftið, alvöruþrunginni röddu:
Það er önnur lægð á leiðinni.
Dauðaþögn ríkir á skrifstofunni. Kaffið kólnar í bollunum.
Svona hefur þetta verið síðustu vikurnar. Veðrið er greinilega
langleitt á því að vera ekki helsta umræðuefni Íslendinga og hefur
heldur betur minnt á sig. Hér hafa farið um hyldjúpar lægðir með
stormviðri og snjó, hver á eftir annarri, svo við höfum varla haft tíma
til að vinda úr vatnssósa yfirhöfnum og djammgöllum áður en skollið
er á annað óveður, enn kræfara en það síðasta. Þetta finnst mörgum
eðlilega leiðinlegt og þreytandi til lengdar, sérstaklega ef færðin er
slæm og fjölskyldubíllinn fastur inni í hnausþykkum klakabing.
En í storminum býr líka hreinsandi kraftur. Frumafl sem oft hefur
orðið skáldum yrkisefni. Þekktasta dæmið úr íslenskum bókmenntum
er líklega kvæðið „Stormur“ eftir Hannes Hafstein. Þar segir meðal
annars:
... þegar þú sigrandi‘ um foldina fer,
þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig, kraftur, sem öldurnar reisir,
ég elska þig, máttur, sem þokuna leysir.
Storminum fylgir nefnilega ekki bara eyðilegging og glundroði,
heldur kraftmikil umbreyting og endurnýjun. Fátt beintengir okkur
við náttúruna með sama hætti og þegar óumflýjanlegt illvirði skekur
húsin okkar svo rúðurnar svigna og rafmagnslínur slitna. Sjáðu mig!
segir stormurinn. Sjáðu hvað ég get gert!
Í skáldsögunni Kafka on the Shore segir Haruki Murakami að þegar
þú kemur út úr storminum verður þú ekki sama manneskjan og sú sem
gekk inn í hann. Það er það sem þessi stormur snýst um.
Munum því þegar næsta lægð skríður upp að landinu að stormurinn
er millibilsástand. Ekki bara veður heldur umbreytingarafl og
þegar honum slotar er heimurinn að einhverju leyti nýr og annar
og það er gott.
Nema þú hafir fengið trampólín nágrannans inn um eldhúsgluggann.
TRYGGVI STEINN STURLUSON
Bókavörður á Bókasafni Seltjarnarness
BÓKAÐ MÁL
StormurPÚTT, LEIKHÚS OG GAMAN SAMAN
Góð þátttaka hefur verið í allri dagskrá félags og tómstundastarfsins
undanfarnar vikur þ.e.a.s. eftir að fjöldatakmarkanir voru rýmkaðar og
er það von okkar allra að nú sé takmörkunum lokið. Á undanförnum
vikum höfum við spilað félagsvist, bingó og sungið í hverri viku. Öll
námskeiðin hafa verið í gangi ásamt jóga og allri hreyfingu sem í boði
er í dagskránni. Nýja púttaðstaðan á Austurströnd 5, er frábær aðstaða
sem okkur í félagsstarfinu stendur til boða að nýta og eigum við fastan
tíma þar alla þriðjudagsmorgna kl. 10.30. Allir mjög ánægðir, mátulega
mikil keppni í gangi, alltaf góður kaffisopi í boði og notarleg stemming.
Góður rómur var gerður að leikhúsferðinni á sýninguna Er ég
mamma mín í Borgarleikhúsinu 3. mars síðastliðin. Verið er
að skipuleggja aðra leikhúsferð, sem auglýst verður bráðlega.
Miðvikudagskvöldið 16. mars var svo komið því að hafa gaman
saman í salnum á Skólabrautinni. Fólk almennt komið í þörf fyrir
að lyfta sér aðeins upp. Allir mættir uppábúnir með hatta og fínerí
og skemmtu sér og öðrum með góðum sögum og vísnasöng. Góðar
veitingar og frábærir skemmtikraftar sem sungu og sprelluðu og
gerðu kvöldið skemmtilegt.
LIONS, HÓTEL HOLT OG PÁSKAEGGJABINGÓ
Þriðjudaginn 22. mars verður Lionsklúbbur Seltjarnarness
með félagsvist í salnum á Skólabraut kl. 19.00. Þetta er árviss
viðburður sem haldist hefur í áraraðir að Lions bjóði í eldri
borgurum í félagsvist. Hvetjum fólk til að fjölmenna og njóta.
Þriðjudaginn 5. apríl nk. verður farið í bæjarferð. Nú er ferðinni
heitið á Hótel Holt þar sem tekið verður á móti hópnum með
leiðsögn, kynningu og listagöngu um staðinn. Heimsókninni lýkur
með kaffiveitingum á hótelinu. Farið verður með rútu frá Skólabraut
kl. 13.30. Verð kr. 3.500. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og
Eiðismýri. Einnig má skrá sig hjá Kristínu í síma 5959147 / 8939800.
Þess má geta að þessi ferð var á dagskrá í byrjun mars 2020, en
vegna lokana og covid var henni frestað um óák. tíma, en er sem
sagt komin á dagskrá aftur nú tveimur árum síðar. Sama má segja um
páskaeggjabingóið, það hefur ekki verið haldið í tvö ár vegna sömu
ástæðu, en nú er það komið á dagskrá. Páskaeggjabingóið verður
haldið í safnaðarheimili kirkjunnar mánudagskvöldið 11. apríl kl. 19.30
og eru allir velkomnir.
HEILSUEFLING OG AÐALFUNDUR FÉLAGS ELDRI BORGA
Nýr hópur í heilsueflingarátakinu Janus heilsuefling 65+ fór af stað
nú um áramót. Almenn ánægja er með þetta frábæra verkefni sem
hefur náð til mjög margra. Æft er undir stjórn þjálfara sem gerir
æfingaplan fyrir hvern og einn og vel er fylgst með þátttakendum.
Aðalfundur félags eldri borgara verður haldinn í salnum á
Skólabraut 3-5 þriðjudaginn 5. apríl 2022 kl. 17.00. Dagskrá skv. lögum
félagsins. Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara
verður sérstakur gestur fundarins og heldur erindi um starfsemi
sambandsins. Umræður og kaffi.
FÉLAGS- OG TÓMSTUNDASTARF
ELDRI BÆJARBÚA