Vesturbæjarblaðið - dec 2022, Qupperneq 2
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Eiðistorgi 13-15 • 172 Seltjarnarnes • Pósthólf 171
Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími: 893 5904
Netfang: thordingimars@gmail.com
Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298
Heimasíða: borgarblod.is
Net fang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son
Um brot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreif ing: Póstdreifing ehf.
12. tbl. 25. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107, 102 og 101.
Hér í blaðinu er rætt við Björn G. Björnsson leikmyndahönnuð.
Hann hefur tekið saman bók um verk Einars Erlendssonar
sem vann við húsateikningar í Reykjavík í um hálfa öld og gegndi
starfi húsameistara ríkisins um lengri tíð.
Í bókinni kemur fram að eftir Einar liggja teikningar að fjölda
bygginga sem margar voru reistar á fyrri hluta liðinnar aldar.
Mörg þessara mannvirkja bera þess merki að engu hefur verið
til sparað við byggingu þeirra. Bæði á það við um opinberar
byggingar sem hann teiknaði en ekki síður íbúðarhúsnæði.
Mörg af húsum Einars eru viðamikil og setja sterkan svip á
umhverfi sitt. Einkum í Miðborginni og Vesturbænum sem þá
var að byggjast upp.
Mörg húsanna eru byggð á svokölluðum millistríðsárum.
Árunum á milli tveggja heimsstyrjalda. Íslendingar höfðu
efnast aðeins á þeim tíma og birtast þau efni meðal annars í
byggingum frá tíma Einars.
Því fer þó fjarri að almenningur hafi haft ráð til að reisa sér þvílík
hýbýli. Þarna voru einkum á ferð athafnamenn sem komist
höfðu í álnir og aðilar sem áttu sér sterka stöðu í stjórnkerfi landsins.
Þessi mynd af glæsilegum ferli Einars sem húsahönnuðar og
arkitekts dregur einnig upp mynd af mikilli misskiptingu auðs
og eigna á meðal landmanna.
Á síðari árum er oft rætt um vaxandi um misskiptingu lífsgæða.
Stundum á þann hátt að sú þróun sé næstum nýtilkomin. Hafi
jafnvel átt sér stað að loknu bankahruni 2008.
Vissulega má til þess líta að ýmsar eignir hafi færst á færri
hendur á síðari árum. En misskiptingin hefur verið til
allt frá því að landsmönnum uxu álnir eftir allsleysi fyrri alda.
Stjórnmálamönnum ber að hafa í huga að halda verði þróun
misskiptingar innan takmarka.
Misskipting
DESEMBER 2022
ALHLIÐA MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR
www.husavidgerdir.is/hafa-samband
info@husavidgerdir.is - Sími 565-7070
Finndu okkur á
Fegrun og lenging líftíma
steyptra mannvirkja er
okkar áhugamál. Við
höfum náð góðum árangri
í margs konar múr- og
steypuviðgerðum,
múrfiltun, steiningu og
múrklæðningum. Hafðu samband
Við skoðum og gerum tilboð!
Verðlaunaafhending í hönnunarsamkeppni
um Grófarhúsið fór fram 29. nóvember sl. í
Borgarbókasafninu í Grófinni, Tryggvagötu 15,
Einnig verður opnuð yfirlitssýning á tillögum þeirra
fimm aðila sem valin voru í forvali til þess að taka þátt
í samkeppninni.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Pálína
Magnúsdóttir borgarbókavörður fluttu ávörp og Halldór
Eiríksson, arkitekt Tark, sem var fulltrúi dómnefndar,
gerði grein fyrir niðurstöðum nefndarinnar. Hugmyndin
er að bókasafnið fái allt húsið til afnota og markmiðið
með breytingum og endurbótum á þessu húsnæði
er að uppfylla sem best þær kröfur sem gerðar eru til
nútíma bókasafna sem hýsa fjölbreytta þjónustu og
dagskrá fyrir íbúa og aðra. „Við viljum að Grófarhús
fái nýtt líf sem opin og skemmtileg bygging, lifandi
samfélags- og menningarhús í takt við vel heppnuð
dæmi hjá nágranna- og vinaþjóðum okkar,“ segir
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Vinningstillagan er
hönnuð af hollensku arkitektastofunni JVST í samstarfi
við Inside Outside, Hanrath Architect, Kreatíva
teiknistofu, VSÓ Ráðgjöf og Örugg verkfræðistofu. Í
greinargerð dómnefndar segir meðal annars að tillagan
sé leikandi og skemmtileg og svari vel væntingum
um fjölbreyttan ævintýra- og fróðleiksheim fyrir
fólk á öllum aldri. Einnig er talað um að tillagan hafi
burði til að verða framsækin, leiðandi og vakandi fyrir
síbreytilegum þörfum samfélagsins. Dómnefnd þakkar
í dómnefndaráliti öllum þátttakendum fyrir heildstæð,
ítarleg og metnaðarfull skil. „Allar tillögurnar sýna
djúpan og ígrundaðan skilning á þeim markmiðum
sem Borgarbókasafnið vill ná er varðar væntingar til
byggingarinnar þar sem öll eru velkomin á sínum
forsendum í fjölbreyttum vistarverum.“
Vinnuhópur frá JVST arkitektum, Inside Outside, Hanrath Architect, Kreatíva teiknistofu, VSÓ ráðgjöf og Örugg
verkfræðistofu varð hlutskarpast í hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar og Arkitektafélags Íslands um
breytingar og endurbætur á Grófarhúsi. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tilkynnti úrslitin við hátíðlega athöfn
í Grófarhúsi.
Vinningstillaga um
Grófarhúsið kynnt
Hugmynd að nýju útliti Grófarhúsins.
Gleðilega hátíð
og heillaríkt nýtt ár!
Bestu þakkir fyr ir ánægjulegt samstarf á ár inu sem er að l íða
Vesturmiðstöð