Vesturbæjarblaðið - des. 2022, Blaðsíða 6

Vesturbæjarblaðið - des. 2022, Blaðsíða 6
6 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2022 Drafnarstígur 3 er horfinn Húsið við Drafnarstíg 3 hefur verið rifið. Húsið var lengi í eigu Jóhönnu Kristjónsdóttur blaðamanns, ferða­ málafrömuðar og rithöfundar. Þor steinn Máni Hrafnsson barnabarn hennar festi kaup á húsinu af frændsystkinum sínum eftir hennar dag. Þar sem húsið var talið ónýtt vegna myglu var sótt var um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara og steyptar undirstöðu. Kjallari og milliplata jarðhæðar, útveggir, milliplata efri hæðar og þak verða úr timbri og klætt bárujárni, á lóð nr. 3 við Drafnarstíg. Þorsteinn Máni Hrafnsson kvikmyndagerðarmaður sem búsettur hefur verið í Kanada er sonur Hrafns heitins Jökulssonar, sonar Jóhönnu, og Elísabetar Ronaldsdóttur sem er velþekkt í alþjóðlegum kvikmyndaheimi fyrir kvikmyndaklippingar sínar. Nú er húsið horfið af lóðinni og Þorsteinn Máni ætlar að byggja annað á sama stað. Þorsteinn Máni Hrafnsson og Joey Chan kona hans ásamt frændsystkinum hans þeim Veru Illugadóttur Jökulssonar og Kristjóni Kormáki syni Elísabetar Jökulsdóttur í garðinum við gamla á Drafnarstíg sem nú er horfið. Nýjar reglur og lög um flokkunarkerfi sorps taka gildi um áramótin. Eftir það verður að flokka lífrænan úrgang eins og matarúrgang sér. Hann má ekki vera með öðrum blönduðum úrgangi. Þennan lífræna úrgang má ekki setja í plastpoka, heldur sérstaka pappírspoka. Þessari reglu hefur verið fylgt um árabil hjá mörgum sveitarfélögum víða um land, en ekki á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mismunandi flokkunarreglur eru í gildi. Nú verður flokkun í sorptunnur við íbúðarhús og fyrirtæki fjórþætt. Pappír, plast, lífrænn úrgangur og blandaður úrgangur. Gler, járn og textíll verður síðan að setja í grenndargáma. Tunnur fyrir þessa fjóra flokka verða settar upp við íbúðarhús og fyrirtæki. Hægt verður að fá tvískiptar tunnur ef menn kjósa svo. Áætlað er að núverandi fyrirkomulagi verði skipt út í áföngum á næsta ári á höfuðborgarsvæðinu. Sorpmagn á íbúa hefur dregst saman á milli ára. Reykvíkingar skila af sér minnstu magni úrgangs á höfuðborgarsvæðinu, eða 129,9 kg á íbúa en Garðbæingar mestu, 155 kg á íbúa. Þetta kemur fram í rannsókn Sorpu á húsasorpi fyrir árið 2021 en með húsasorpi er átt við þann úrgang sem settur er í gráu tunnuna. Lífrænn úrgangur vegur þyngst í húsasorpinu og plast kemur þar á eftir. Fjórir sorpflokkar teknir upp - verður endurbyggður á lóðinni Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu. BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is Sérhæfð lögfræðiþjónusta með áherslu á 60+ Vill byggja við Urðarstíg 4 Sótt hefur verið um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu með steyptum kjallara, timburmilliplata, útveggir og þak við suðurhlið hússins við Urðarstíg 4. Húsið var byggt árið 1922 fyrsti eigandi var Þorsteinn Jónsson. Árið 1981 fékkst leyfi til að byggja viðbyggingu við húsið. Þá var gerður nýr og stærri inngangur við norðurvesturgafl hússins, steinsteyptur og með timburklæðningu. Árið 1987 var og samþykkt að byggja sólpall og garðskála úr timbri og gleri við húsið. Sólpallur var þá reistur við suðurgafl hússins og garðskáli við bakhlið inngönguskúrsins. Núverandi eigandi hússins er Þórir Jónsson Hraundal miðaustur­ landafræðingur og háskólakennari. Unnið við flokkun sorps í Sorpu. Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu. Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Við eigum frábært úrval af yfirhöfnum í stærðum 38-60

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.