Vesturbæjarblaðið - dec. 2022, Side 8
8 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2022
Öldrunar og hjúkrunar heimilið Grund varð 100 ára 29.
október sl. Grund var fyrsta heimili sinnar tegundar í
Reykjavík og var leiðandi í þjónustu við heldri borgara
um áratuga skeið. Auk Grundar teljast Ás í Hveragerði og Mörk
í Reykjavík til Grundarheimilanna. Haldið var upp á þessu
merku tímamót með afmæliskaffi. Fyrst á Mörk. Síðan var
afmæliskaffi fyrir heimilismenn Grundar sem stóð í tvo daga og
að lokum var blásið til afmæliskaffis í Ási í Hveragerði. Afmælinu
lauk með veglegri árshátíð starfsfólks þangað sem mættu
allt að 650 manns.
Í tilefni tímamótanna ritaði Gísli
Páll Pálsson, forstjóri Grundar
heimilanna grein á heimasíðu
Grundar. Hann segir frá upphafi
heimil anna sem rekja megi
til líknarfélagsins Samverjans
sem Sigurbjörn Ástvaldur
Gíslason langafi sinn hafði
forgöngu um ásamt fleiri góðum
mönnum. Félagið hafi haldið
skemmtisamkomur og safnaði
þannig fé auk þess að fá gjafafé frá
Reykvíkingum. Hann segir að býlið
Grund við Sauðagerðistún hafi
verið keypt og tekið í notkun þann
29. október árið 1922. Grund við
Hringbraut hafi síðan byggð og tekin
í notkun í september 1930.
Haraldur Sigurðsson var fyrsti
ráðsmaður Grundar en féll frá
haustið 1934 eftir skammvinn
veikindi. Gísli Páll segir að í
hans stað hafi afi sinn Gísli
Sigurbjörnsson verið ráðinn til að
stýra Grund. Fyrst tímabundið en
hann hafi síðan staðið vaktina þar
í 60 ár að hann féll frá. Móðir Gísla
Páls Guðrún Birna tók við Grund og
var forstjóri heimilisins í 25 ár eða til
1. júlí 2019 að Gísli Páll tók við.
Óþrjótandi tækifæri
Grípum hér beint niður í
grein Gísla. „Grund var lengi
eina hjúkrunarheimili landsins
og leiðandi í slíkri þjónustu
um áratugaskeið. Afi heitinn
byggði Grund upp, stofnaði til
elliheimilisrekstrar í Hvera gerði
árið 1952 í samstarfi við Árnesinga
og byggði við og bætti þar í bæ auk
þess að auka verulega við húsakost
við Hringbrautina. Grundarheimilin
í dag eru þrjú, Grund, Ás og
Mörk. Starfsemi í Mörkinni hófst
árið 2010 þegar við tókum að okkur
rekstur 113 rúma hjúkrunarheimilis
við Suðurlandsbraut 66 auk þess að
kaupa af Landsbankanum 78 íbúðir
og leigja þær út til 60 ára og eldri. Sú
starfsemi stækkaði verulega að
umfangi árið 2018 þegar við
byggðum 74 slíkar íbúðir til viðbótar
þeim sem fyrir eru. Á Grund stendur
til að halda áfram breytingum
herbergja þannig að allir heimilis
menn eigi kost á eins manns
herbergi með sér baðherbergi.
Þá stendur til að byggja kaffihús í
suðurgarði Grundar þar sem gengið
verður út frá núverandi matsal
starfsmanna. Hægt verður að ganga
út úr kaffihúsinu út í garð þar sem
verða bekkir, runnar, blóm og tré
og hægt að eiga þar notalega stund
með kaffi og kleinu eða léttvínsglas.“
Gísli Páll endar grein sína á að segja
framtíð Grundarheimilanna bjarta.
Aldurssamsetning þjóðarinnar
sé með þeim hætti að við blasi
óþrjótandi tækifæri til að veita
margskonar öldrunarþjónustu,
jafnt á vegum hins opinbera sem
og á einkamarkaði.
Hraðar þjóðfélags
breytingar
Þjóðfélagið breyttist hratt á
fyrstu áratugum 20. aldarinnar
en ekki voru komin eftirlaun og
ellilífeyrir. Fólk sem var þrotið að
vinnuþreki átti því erfitt uppdráttar.
Markmiðið með stofnun Grundar
var að bregðast við þessu. Fyrstu
íbúar fluttu inn dagana áður
en Grund var formlega opnuð.
Daginn fyrir formlega opnun
sagði Morgunblaðið að sex væru
þegar fluttir inn og líklega sex til
viðbótar þann sama dag. Efnt var til
opnunarhátíðar með fjölda ávarpa
og söng. Engum var boðið með
sérstökum boðsbréfum, meðal
annars vegna þess að heimilið
vantar enn stóla í stofurnar,
en allir eru velkomnir, einkum
bæjarstjórn, fátækrafulltrúar og allir
styrktarmenn hælisins. Nokkrum
dögum síðar sagði Morgunblaðið
frá þeim ræðum sem voru fluttar.
Þar var opnun Grundar tekin sem
dæmi um breytt viðhorf fólks.
Sigurður Jónsson, sem var settur
borgarstjóri á þessum tíma, sagði að
áður fyrr hefðu óvinnufærir menn
orðið að deyja drottni sínum en nú
kæmi slíkt ekki til greina. Sigurbjörn
Á. Gíslason, einn forvígismanna
að stofnun Grundar, þakkaði
fyrir örlæti og góðan stuðning
sem gerði kleift að opna hús sem
rúmaði 22 til 23 einstaklinga.
Fjárhagurinn væri ekki mjög góður
en þó ekki hætta á gjaldþroti. Hann
taldi þó líklegt að húsið fylltist
fljótlega og að stofna yrði fleiri
gamalmennahæli. Hann sagði engar
reglur gilda um heimilisfólk nema
kannski eina að fólk ætti að „bera
hvers annars byrðar“.
Öldrunar- og hjúkrunarheimilið Grund við Hringbraut.
Grund
100 ára
Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna og barnabarn Gísla
Sigurbjörnssonar.
Fimmtudagur 15. desember
Jólatónleikarnir hjá Menntaskólanum
í tónlist klukkan 18:00.
Laugardagur 17.desember
Rakarakvartettinn Barbari heldur jólatónleika með
bandarískum blæ kl. 17.00.
Flutt verða bæði hugljúf og hress jólalög,
en áhersla er á djassaðan og drífandi hljómagang.
Miðasala á tix.is eða við hurð.
Sunnudagur 18. desember
Messa kl. 11.00.
Séra Sveinn Valgeirsson prédikar,
Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn.
Mánudagur 19. desember
Samsöngstónleikar Hljómeykis kl. 21.00.
Á tónleikunum mun kórinn flytja áheyrendum nokkur falleg
jólalög og leiða jólalegan samsöng með tónleikagestum
Þriðjudagur 20. desember
Tíðasöngur kl. 9.15
og bæna-og kyrrðarstund kl.12.00.
Miðvikudagur 21. desember
Tíðasöngur kl. 9.15.
Dásamlegir jólatónleikar Dómkórsins kl. 22.00.
Aðgangur er ókeypis.
Fimmtudagur 22. desember
Mozart við kertaljós kl. 21.00.
Að venju lýkur tónleikunum á jólasálminn góða
„Í dag er glatt í döprum hjörtum“.
24. desember aðfangadagur jóla
Dönsk messa kl. 15.00.
Prestur séra María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir
Kári Þormar organisti
Aftansöngur kl. 18.00.
Sr. Elínborg Struludóttir prédikar,
sr. Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari.
Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn.
Miðnæturguðþjónusta kl. 23.30.
Þá verða lesnir og sungnir níu lestrar og sálmar
í Dómkirkjunni. Guðsþjónustan á sér fyrirmynd í
guðsþjónustu sem fram hefur farið í Kings College í
Cambridge á Bretlandi óslitið frá 1918 og hefur þessari
guðsþjónustu verið útvarpað á BBC frá 1928.
Á milli lestra syngur söfnuðurinn jólasálma.
Dómkirkjuprestarnir og Pétur Nói Stefánsson organisti
leiða guðþjónustuna.
Jóladagur 25. desember
Hátíðarguðþjónusta kl. 11.00.
Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og séra
Elínborg Sturludóttir þjónar fyrir altari.
Mánudagur 26. desember
Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari,
Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn.
Þriðjudagur 27.desember
Bach tónleikar Ólafs Elíassonar kl. 20.00-20.30.
Gamlársdagur 31.desember
Aftansöngur séra Sveinn Valgeirsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Guðmundur Sigurðsson organisti og
Dómkórinn.
Nýársdagur 1. janúar 2023
Hátíðarmessa klukkan 11.00.
Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og
séra Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. Guðmundur
Sigurðsson organisti og Dómkórinn.
Helgihald í Dómkirkjunni
um jól og áramót
Starfsfólk og sóknarnefnd Dómkirkjunnar
óska sóknarbörnum og landsmönnum öllum
gleðiríkra jóla og Guðs blessunar á nýju ári.
Hársnyrtistofa
Eiðistorgi 13 - 15
símar: 561 1160 og 561 1162
Óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Starfsfólk
Hársnyrtistofunnar Permu
Þökkum viðskiptin