Vesturbæjarblaðið - feb. 2023, Blaðsíða 5

Vesturbæjarblaðið - feb. 2023, Blaðsíða 5
Ég er í brattari hópnum E f v i ð s n ú u m o k k u r a ð nú tímanum og framtíðinni virðast skoðanir skiptar. Sumir segja að allt sá á leið á vonar völ en aðrir eru brattari. Sjá ljós við enda brautar­ innar. Gylfi kveðst vera í brattari hópnum. Ákveðnar áskoranir séu fyrir hendi. Sjá megi fyrir endann á sumum þeirra. „Kóvíd faraldurinn lék okkur grátt. Þótt margt væri með öðrum hætti heldur en fjár­ málakrísan. Ferðaþjónusta lamaðist og lagðist nær af. Fólk þurfti að vera heima. Vinna heima sem það gátu sem hafði bæði andleg og félagsleg áhrif en líka efnahagsleg áhrif. Áhrif faraldursins eru ef til vill ekki komin fram að öllu leiti. Til dæmis áhrif hans á fólk sem var í skóla og fékk menntun með þeim leiðum sem fundnar voru þegar fólk gat ekki komið saman. Námið sjálf gat komist til skila en fólk missti af þeim félags­ lega þroska sem fylgir skólagöngu og skólavist. Frímínúturn ar og félags­ lífið skipta miklu máli. Stundum lærir fólk meira af að tala við nemendur í frímínútum en af því að sitja í kennslustundum. Samtalið fór að miklu leyti forgörðum á þeim tíma sem við vorum bundin af þeim takmörkunum sem faraldurinn olli.“ Vinnuumhverfi hefur breyst Talið berst að því hvort ein af áhrifum faraldursins séu ákveðnar breytingar á vinnuumhverfi. Fólk sé ekki eins staðbundið við ákveðinn vinnustað. Geti unnið að heiman ef það hentar eða jafnvel frá öðrum stöðum. Umhverfi á vinnustöðum sé að breytast og ein afleiðing þess að vinnurými nýtist betur. Gylfi segir að ef til verði atvinnulífið aldrei eins og það var sem geti verið af hinu góða. „Eitt af því eru fundir sem margir stjórnendur og skrifstofufólk hefur jafnan setið kalli ekki á eins mikil ferðalög. Þau taka tíma. Akstur á milli staða og leit að bílastæðum. Ég tala nú ekki um ef fundarhöld fara fram í öðrum löndum. Þá bætast við ferðir til og frá flug völlum, biðtími í flugstöðvum og síðan sjálfar flug­ ferðirnar. Í slíkar ferðir fer oft mun meiri tími en í fundina sjálfa. Ég tel því að það geti verið af hinu góða að nýta þá samskiptamáta sem við neyddumst til að nota í far aldrinum. En það verður að vera einhver skynsamleg blanda því það skiptir líka máli að hitta fólk augliti til augliti. Þau samskipti sem eru í gegnum skjáinn geta verið góð upp að ákveðnu marki. En það er oft auðveldara að ná sambandi þannig ef maður hefur hitt fólkið áður í eigin persónu. Það myndast önnur tengsl.“ Gylfi segir að sama gildi um skólana. Hann bendir á að innan Háskólans hafi verið ákveðið að fara aftur í staðbundna kennslu. „Engu að síður verður trúlega áfram stuðst við rafræn samskipti að einhverju leyti og vonandi verður það til þess að bæta kennsluna en það á eftir að koma betri reynsla á það fyrirkomu­ lag. Það tekur smá tíma að fóta sig í nýjum veruleika. En hvað félagslegu hliðina varðar þá hefur fjarvinnslan ókosti hvort sem um nám eða störf er að ræða. Maður kynnist engum með því að vera í náttfötum að horfa á tölvuskjáinn.“ Við megum ekki búast við svartnætti „Ég er bjartsýnn. Þótt við séum ekki búin að vinda endanlega ofan af því sem varð til í faraldrinum en ég tel að við sjáum fyrir endann á því. Auðvitað geta ný áföll komið til. Heimsbyggðin er að kljást við afleiðingar stríðsins í Úkraínu. Áhrif þess ná hingað þótt við séum blessunarlega laus við sjálf átökin. Með fyrirvara um að það leynist ekki dökkar horfur framundan í heimsbúskapnum og þar á meðal á Íslandi. Við erum hins vegar að fara í gegnum smá skafl hvað verðbólguna varðar. Við erum ekki ein um þann vanda. Hann er til staðar bæði vestan hafs og austan og mörg ríki berjast við að halda henni niðri. Þetta er ekkert skemmtilegt viðfangsefni en vel þekki og á að vera leysanlegt. Ég minnist óðaverðbólgunnar sem fór hæst á árunum 1983 og 1984. Það er langsótt að við förum aftur í slíkt ástand. Við erum hins vegar ekki búin að komast út úr þessum skafli. En ég vil vona að við ráðum við þetta og væri verulega slæmt ef við misstum algerlega tökin á henni. Með hóflegri bjartsýni að leiðarljósi vil ég vona að það verði fljótgert án þess að úr því verði kreppu ástand með tilheyrandi látum á vinnu­ markaði. Þetta er allt innan þeirra marka sem eru leysanleg. Við megum ekki búast við svartnætti. Krónan hefur bæði kosti og galla Talið best að krónunni sem er umdeild í samfélaginu. Gylfi segir hana bæði hafa kosti og galla. Hann segir erfitt að sá betri kost í stöðunni eins og hún er núna. „Við verðum að halda vel utan um krónuna en auðvitað eigum við aðra kosti til lengri tíma. Í því efni er fyrst og fremst horft til Evrunnar. En það er engin góð leið til að taka hana upp önnur en að ganga í Evrópu­ sambandið. Innganga í það er ekki í sjónmáli og kannski förum við aldrei þangað. En á meðan við getum það ekki er tæpast til önnur leið en að vera með krónuna.“ Gylfi segir að hægt sé að vera með eigin krónu með öðrum hætti en við erum með í dag. „Það væri hægt með því að festa gengi hennar við einhverja vísitölu, dönsku krónuna eða Evruna sem væri í raun það sama. Fastgengið hefur bæði kosti og galla. Lífskjör batna ekki og fólk er ósátt Gylfi kveðst alltaf hafa gætt sín á að dragast ekki inn í pólitísk átök. Hann segir að mikið rót hafi verið í stjórnmálum á undan förnum árum. Eiginlega alveg frá því að hrunið varð. „Þetta er svipað og við sjáum í sumum nágrannal­ anda okkar. Fólk er ósátt. Það á sér að hluta til hagrænar skýringar. Í mörgum löndum hefur fólk vanist því að lífskjör bötnuðu tiltölulega hratt. Voru betri frá einni kynslóð til þeirrar næstu. Á 21. öldinni hefur lægt mjög á þeirri þróun. Í Banda­ ríkjunum hafa lífskjör ekki batnað að neinu ráði á milli kynslóða. Sumir eru jafnvel að upplifa verri lífskjör en kynslóð foreldra þeirra hafa búið við. Þetta skapar gremju sem hefur áhrif í stjórnmálunum. Fólk er skiljanlega að leita að þeim sem það telur að geti leysi þessi vandamál. Þessi viðleitni hefur fært fólk meira út á jaðrana í pólitík. Til beggja átta. Við sjáum þetta í Evrópu og einnig í Bandaríkjunum þar sem öfl sem við teljum nánast vera öfgahópa eru orðin áberandi í þjóðmála­ umræðunni. Þau hafa komið fyrir hófsamari öfl. Þetta hefur blessunar­ lega ekki birst hér með sama hætti og sums staðar í Evrópu. Í Ungverja­ landi og jafnvel í Póllandi sem dæmi séu nefnd. Þarna hafa öfl komist til valda sem ekki eru hefðbundin evrópsk lýðræðisleg stjórnmálaöfl. Sums staðar er mjög tvísýnt hvort lýðræðisöflin hafa betur eða ekki.“ Gylfi nefnir nýlega afstaðnar forseta­ kosningar í Tékklandi. „Þar munaði mjóu að þau héldu velli. Þegar fólki finnst að sér vegið verður óánægja.“ 5Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2023 Ríkisráðsfundur 10. maí 2009. Talið frá vinstri: Árni Páll Árnason, Jón Bjarnason, Gylfi Magnússon, Ögmundur Jónasson, Össur Skarphéðinsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Steingrímur J. Sigfússon, Kristján L. Möller, Katrín Jakobsdóttir, Ragna Árnadóttir, Katrín Júlíusdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Ragnhildur Arnljótsdóttir ríkisráðsritari. Í þessari ríkisstjórn sátu tveir ráðherrar án þingsetu. Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir núverandi skrifstofustjóri Alþingis. Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu. BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is Sérhæfð lögfræðiþjónusta með áherslu á 60+hreinsum fyrir þig við Ægisíðu 115 - Sími 552 4900 hradi@fatahreinsun.is HRAÐI fatahreinsun www.fatahreinsun.is Alhliða fatahreinsun og þvottahús síðan 1966

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.