Feykir - 02.02.2022, Síða 2
Það má segja að íslenska landsliðið í handbolta hafi gert
garðinn frægan á Evrópumótinu sem nú er nýafstaðið og fór
fram í Ungverjalandi og Slóvakíu. Væntingar voru ekki miklar
fyrir mót og voru menn helst að vonast til að komast í hóp tíu
bestu liða álfunnar á ný en það hafði ekki gerst síðan 2014
þegar Ísland endaði í 5. sæti á EM
sem fram fór í Danmörku.
Til að rifja upp árangur á stór-
mótum síðan þá, endaði íslenska liðið
í 11. sæti á HM í Katar árið 2015, 13.
sætið var þess á EM í Póllandi 2016, á
HM í Frakklandi endaði Ísland í 14.
sæti 2017, á EM í Króatíu 2018 endaði
liðið í 13. sæti, 14. sætið varð niður-
staðan á HM 2019 í Þýskalandi og í
Svíþjóð 2020 munaði litlu að drengirnir kæmust í topp tíu þegar
þeir kræktu í 11. sætið á EM.
Strákarnir okkar lutu í lægra haldi gegn Noregi í úrslitaleik
um 5. sæti nú fyrir helgi en mikið var í húfi þar sem sigurliðið
fékk farmiða á HM 2023. Sjötta besta liðið í Evrópu er ekki
slæmur árangur, hvað þá eftir allt sem á undan hafði gengið. Ef
einhver skyldi nú ekki vita það þá lék kórónuveiran liðið grátt
þar sem hver leikmaðurinn á fætur öðrum greindist með hana
og voru þar með útilokaðir frá keppni. Reyndi það að sjálfsögðu
á færni þjálfarans, og hans aðstoðarmanna, að bregðast við
breyttum forsendum dag frá degi. Það sem svo sannarlega kom
á óvart var frammistaða þeirra sem tóku við keflinu af „sýktum“
lykilleikmönnum og verður lengi í minnum haft.
Það sem hins vegar hefði getað gerst, og var raunar alveg
að fara að gerast, var að Íslendingar kæmust í undanúrslit með
hjálp Dana sem áttu leik gegn Frökkum í milliriðli. Með sigri
þeirra færu Íslendingar áfram á kostnað Frakka sem börðust
hatrammlega fyrir því sæti. Svo fór að Danir, sem voru yfir allt
fram á síðustu stundu, töpuðu með einu marki sem þýddi að
Íslendingar léku um 5. sætið.
Í kjölfarið á tapi Dana fór af stað stórskrítin atburðarrás á
samfélgasmiðlunum þar sem ausið var yfir okkar ágætu frænd-
ur svívirðingum að hætti hússins. Sumt mætti flokka sem góð-
látlegt grín en annað var hrein afurð úr koppnum og sumt af því
rataði í danska fjölmiðla. Ég ætla ekkert að hafa neitt eftir sem
skrifað var en fátt ef nokkuð var okkur til sóma og langar mig
að biðja danska vini mína, hér í Skagafirði sem og annars
staðar, afsökunar á þessu frumhlaupi landa minna.
Ég hef heldur aldrei skilið þetta rótgróna Danahatur
Íslendinga gegnum tíðina enda voru þeir okkur hliðhollir á
margan hátt. Á Sauðárkróki hafa danskir sett mikinn svip á
bæjarbraginn og segir m.a. á vef Svf. Skagafjarðar að Ludvig
Popp, kaupmann m.m. mætti kalla föður Sauðárkróks. „Hann
kom að, eða stóð fyrir fjölmörgum framfaramálum í kauptúninu
unga og skipulagði bæinn sem var í hraðri uppbyggingu. Svo
margar þóttu verslanir í bænum um aldamótin 1900 að
gárungar kölluðu plássið Kaupmannahöfn.“
Góðar stundir!
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Undskyld, danske venner
AFLATÖLUR | Dagana 23. til 29. janúar á Norðurlandi vestra
Drangey SK 2 með rúmt 181 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Guðrún Petrína GK 107 Landbeitt lína 6.966
Gulltoppur GK 24 Lína 13.258
Hafrún HU 12 Dragnót 4.034
Hópsnes GK 77 Lína 14.772
Jóhanna Gíslad. GK 357 Botnvarpa 79.371
Sturla GK 12 Botnvarpa 56.803
Sæfari HU 212 Lína 4.571
Alls á Skagaströnd 179.775
HVAMMSTANGI
Sjöfn SH 4 Handfæri 6.722
Ragnar Alfreðs GK 183 Lína 5.756
Alls á Hvammstanga 12.478
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 181.016
Lundey SK 3 Þorskfisknet 4.587
Málmey SK 1 Botnvarpa 149.951
Alls á Sauðárkróki 335.554
Á Króknum var landað tæpum 336 tonnum í
síðustu viku af þrem bátum/togurum og var
Drangey SK 2 aflahæst með rúmt 181 tonn.
Uppistaða aflans var þorskur og var skipið meðal
annars á veiðum við Kögurgrunn og Þveráls-
horn. Á Skagaströnd voru aðeins fleiri við veiðar,
eða sjö bátar, og var heildaraflinn tæp 180 tonn.
Aflahæst var Jóhanna Gísladóttir GK 357 með
rúm 79 tonn. Tveir bátar lönduðu á Hvammstanga
rúmum 12 tonnum, Sjöfn SH 4 og Ragnar Alfreðs
GK 183. Enginn landaði á Hofsósi og var þá heildar-
afli á Norðurlandi vestra 527.807 kg. /SG
Varmahlíð
Uppbygging skólamannvirkja
Tillögur VA Arkitekta að
breytingum á Varmahlíðaskóla
og samþættingu skólanna
þriggja, leik-, grunn- og
tónlistarskóla, á sama stað hafa
verið opinberaðar á heimasíðu
Svf. Skagafjarðar en í lok árs
2019 var sett fram sameiginleg
viljayfirlýsing sveitarfélaganna í
Skagafirði þar sem samþykkt
var að stefna að þeirri
uppbyggingu og verkefnisstjórn
skipuð um framkvæmdina.
Markmiðið er að þær breytingar
sem gerðar verða á húsnæðinu
og umhverfi þess uppfylli þarfir
og kröfur sem gerðar eru í dag
til skólahalds leik-, grunn- og
tónlistarskóla. Á Skagafjörður.
is segir að við undirbúning
verkefnisins hafi verið stuðst
við svokallað „Design Down
Process“ sem á íslensku mætti
kalla undirbúningsferli hönn-
unar, frá hinu almenna til hins
sérstæða og voru VA Arkitektar
fengnir til að stýra þessu sam-
ráðsferli.
„Var ákveðið að boða til
samráðsfunda með íbúum
Skagafjarðar og Akrahrepps til
að ná fram sjónarmiðum sem
flestra við gerð þarfagreiningar
skólanna og umhverfis þeirra.
Markmið þessarar undirbún-
ingsvinnu var að safna og
greina þarfir og óskir nemenda,
starfsmanna, foreldra og ann-
arra íbúa, auk þeirra sem sækja
þjónustu á svæðinu.
Einnig var lögð áhersla á að
skoða nánar hvernig nýta megi
húsnæðið fyrir samfélagið í
heild sinni. Í því samhengi
hefur verið nefnt námskeiða-
hald og félagsstarf þar sem
aðstaða skólans kemur að
notum eftir að hefðbundnum
skóladegi lýkur og opna þannig
húsnæði skólanna fyrir nær-
samfélagið og leitast við að
skapa sameiginlegan vettvang
fólks á öllum aldri til að sinna
áhugamálum og félagsstarfi.
Við sjálfa hönnunina var
svo, eftir því sem unnt var
,komið til móts við þau
sjónarmið sem fram komu í
samráðsferlinu. Markmiðið var
að skapa hagnýtt námsum-
hverfi sem er í senn örvandi
fyrir nemendur og starfsfólk en
hefur líka möguleika á því að
verða grunnur að „hjarta“ sam-
félagsins í sveitarfélaginu,“ segir
í frétt sveitarfélagsins. /PF
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is | Klara Björk Stefánsdóttir, klara@nyprent.is
Prófarkalestur: Fríða Eyjólfsdóttir
Auglýsingastjóri: Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 649 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 795 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Aðkoma að leikskóla í Varmahlíð eins og tillaga að breytingu skólamannvirkja
gerir ráð fyrir. MYND AF TILLÖGU VA ARKITEKTA
Þingeyrarklaustursprestakall
Fimm sóttu um starf sóknarprests
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir,
auglýsti fyrir nokkru eftir prestum í fjögur störf og
rann umsóknarfrestur um þau út á miðnætti 24.
janúar sl. og var eitt þeirra sóknarprestsstarf í
Þingeyrarklaustursprestakalli. Á heimasíðu
Þjóðkirkjunnar kemur fram að fimm hafi sóst eftir
því að þjóna Húnvetningum.
Störfin fjögur voru prestsstarf í Egilsstaða-
prestakalli, sóknarprestsstarf í Víkurprestakalli,
sóknarprestsstarf í Skálholtsprestakalli, og sókn-
arprestsstarf í Þingeyrarklaustursprestakalli.
Um starf sóknarprests í Þingeyrarklausturs-
prestakalli sóttu fimm:
Árni Þór Þórsson, mag. theol.
Bryndís Böðvarsdóttir, mag. theol.
Edda Hlíf Hlífarsdóttir, mag. theol.
Helga Bragadóttir, mag. theol.
Fimmti umsækjandinn óskaði nafnleyndar. /PF
2 05/2022