Feykir - 02.02.2022, Blaðsíða 21
Berglind Þorsteinsdóttir á Glóðeyri í
Akrahreppi starfar sem safnstjóri hjá
Byggðasafni Skagfirðinga, gift Guðmundi
Stefáni Sigurðarsyni, minjaverði MÍ á
Norðurlandi vestra, og eiga þau þrjú börn
sem öll eru í Varmahlíðarskóla; Jónu
Karítas 14 ára, Matthías 11 ára og
Katrínu 8 ára.
Hvernig líst þér á að sveitar-
félögin í Skagafirði verði sam-
einuð? -Mér líst nokkuð vel á
það. Mér skilst að skv. sveitar-
stjórnarlögum skuli stefnt að því
að lágmarksíbúafjöldi sveitar-
félaga verði ekki undir 1000
manns, til að auka sjálfbærni
sveitarfélaga og tryggja getu
þeirra til að annast lögbundin
verkefni. Það vantar talsvert upp
á fjöldann hjá okkur í Akrahreppi.
Þar sem þetta er stefna stjórnvalda
tel ég þetta ekki vera spurningu
um hvort við sameinumst heldur
hvenær.
Hvað telur þú jákvætt? -Ég held að íbúar
Akrahrepps muni ekki finna mikla breytingu
dagsdaglega þar sem við sækjum flesta
þjónustu til Svf. Skagafjarðar. Það jákvæðasta
myndi ég hiklaust telja að þau fjárframlög
sem renna til nýs sveitarfélags í gegnum
Jöfnunarsjóðinn muni alfarið verða nýtt til að
hraða uppbyggingu skólamannvirkja í Varma-
hlíð. Ég hlýja mér við þá tilhugsun að þá muni
börnin okkar, og núverandi nemendur, njóta
góðs af því. Einnig tel ég jákvætt að eitt
sveitarfélag sé að vinna að skipulagsmálum
fyrir allan Skagafjörð og berjast saman fyrir að
koma málum í gegn, t.d. með tilliti til
samgöngubóta innan alls fjarðarins og til
Akureyrar o.s.frv. Annað jákvætt sem mér
kemur til hugar er að við sem erum í
Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar gætum þá
loksins farið að veita Umhverfis-verðlaun til
fallegra bæja í Akrahreppi, það hefur nokkrum
sinnum komið til tals á meðal okkar systra að
við söknum þess að hafa þá ekki með - enda í
Skagafirði.
Hvað neikvætt? -Þá get ég ekki lengur farið
frítt í sund :)
Hvernig telur þú að sameining eigi eftir að
breyta þinni afkomu ef nokkuð? -Ég sé það
ekki fyrir mér, nema að þá þarf ég að borga í
sund :)
Hefur þú fylgst með umræðum og skrifum á
heimasíðu sameiningarnefndar, Skagfirðing-
ar.is? -Já, aðeins. Ég sótti einnig íbúafund sem
fór fram í Héðinsminni þann 26. október. Mér
fannst fundurinn einstaklega upplýsandi og
þær umræður sem sköpuðust voru mjög
gagnlegar við ákvarðanatökuna.
Er eitthvað sem þér finnst tortryggilegt sem
sett er fram um hugsanlega sameiningu?
-Nei, alls ekki.
Er eitthvað þar sem þú ert virkilega sammála?
-Það sem mér kemur einna helst til hugar er
það sem kom fram á íbúafundinum í
Héðinsminni að róðurinn sé að þyngjast hjá
Akrahreppi við að sinna þeim lögbundnum
verkefnum sem sveitarfélögum ber og standa
undir auknum kröfum hvað það varðar, t.a.m.
varðandi málefni fatlaðra, félagsþjónustu,
lögbundna skjalavörslu og farsældarlögin svo
dæmi sé tekið. Einnig fannst mér mjög um-
hugsunarvert það sem fram kom á fundinum
að kjörnir fulltrúar í Akrahreppi fá talsvert
minna greitt, eða 15-25 % af viðmiðunarkjör-
um nefndar- og sveitarstjórnarmanna. Við
viljum auðvitað getað boðið íbúum hreppsins
upp á samskonar þjónustu og önnur sveitar-
félög og vera samkeppnishæf.
Hvað gætir þú hugsað þér að sameinað
sveitarfélag myndi heita? -Þar sem við erum
öll Skagfirðingar finnst mér liggja beinast við
að það heiti Sveitarfélagið Skagafjörður.
Akrahreppur verður áfram kallaður Akra-
hreppur líkt og aðrir hreppar í Skagafirði sem
hafa sameinast í eitt sveitarfélag.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
-Kannski annað sem mér dettur í hug varðandi
galla þess að hafa fámennan hrepp, það er að
þá er erfiðara að finna fólk sem tilbúið er til að
bjóða sig fram til sveitarstjórnarmála. Þess í
stað er fólk kjörið sem hefur kannski hvorki
tíma til að sinna því almennilega eða kærir sig
endilega um það, ekki það að þetta fólk hafi
ekki staðið sig vel og tekið þeirri áskorun, en
mér finnst ekki sanngjarnt að setja fólk í þá
stöðu. Það er jákvæðara þegar fólk er kjörið
sem hefur gefið kost á sér til starfa. Mér finnst
Hrefna Jóhannesdóttir hafa staðið sig
stórkostlega vel sem oddviti Akrahrepps og ég
dáist að því hvernig hún hefur tekist á við þetta
krefjandi starf. Ég myndi gjarnan vilja sjá hana
vinna áfram að málefnum íbúa hreppsins, sem
og sveitarfélagsins alls, innan sveitarstjórnar
sameinaðs sveitarfélags.
FEYKIR SPYR | Berglind Þorsteinsdóttir Glóðeyri
Akrahreppur verður áfram
kallaður Akrahreppur
Helgi Fannar Gestsson er
búsettur á Höskuldsstöðum í
„fríríkinu Akrahreppi“ eins og
hann kemst sjálfur að orði. Þar
býr hann ásamt bróður sínum
með 100 vetrarfóðraðar ær og
nokkur hross. Þá starfar hann
einnig sem alhliða landbúnað-
arverktaki, við afleysingar á
búum ásamt rúningi og hin
ýmsu sveitastörf og í haust hóf
hann búfræðinám við
Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri.
Hvernig líst þér á að sveitar-
félögin í Skagafirði verði
sameinuð? -Frá minni sýn þá
líst mér illa á sameiningu, en
það er út af því að við þurfum að
hafa öflugt dreifbýlissveitarfélag
sem hugsar um hagsmuni
framhéraðsins.
Hvað telur þú jákvætt? -Í stuttu
máli sé ég ekkert jákvætt við
sameiningu sveitar-félaganna
því hlutirnir hérna í hreppnum
virka vel líkt og samstarf okkar
við Sveitarfélagið Skagafjörð.
Hvað telur þú neikvætt við
þær? -Mér persónulega finnst
að skipulagsvaldið eigi að vera
hjá íbúum hreppsins því það er
eðlilegast að það eigi að vera
sem næst jarðar- og landeig-
endum.
Hvernig telur þú að sameining
eigi eftir að breyta þinni af-
komu ef nokkuð? -Ef að sam-
eining sveitarfélaganna verður
raunin þá breytir þetta afkomu
minni ekki neitt þar sem
Akrahreppur hefur keypt út alla
þjónustu af Sveitarfélaginu
Skagafirði hingað til og mun að
öllum líkindum ganga vel áfram.
Hefur þú fylgst með umræðum
og skrifum á heimasíðu sam-
einingarnefndar, Skagfirðing-
ar.is? -Í sannleika sagt þá hef ég
ekki skoðað hana mikið en þessi
síða er að mínu mati frekar ein-
hliða með sameiningu en spurt
og svarað þótti mér þó skemmti-
legasti parturinn af þessari síðu
þar sem margar skemmtilegar
spurningar komu fram.
Er eitthvað sem þér finnst
tortryggilegt sem sett er fram
um hugsanlega sameiningu?
-Já, fjárhagsstaða Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar er ekki góð og
er því ekki spennandi að
sameinast inn í Sveitarfélag þar
sem hver íbúi skuldar um
2.000.000 kr.
Er eitthvað þar sem þú ert
virkilega sammála? -Það er
ekkert sem ég er virkilega sam-
mála.
Hvað gætir þú hugsað þér að
sameinað sveitarfélag myndi
heita? -Sveitarfélagið Sauðár-
krókur og co.
Eitthvað sem þú vilt koma á
framfæri? -Já, ég vona bara að
flestir kjósi eftir sinni sann-
færingu og fólk hérna í Akra-
hreppi kynni sér málin betur og
hugsi fleiri leiki fram í tímann
því að Akrahreppur er mjög
mikilvægur fyrir uppbyggingu í
framhéraðinu og láta rödd þess
heyrast.
FEYKIR SPYR | Helgi Fannar Gestsson Höskuldsstöðum
Sé ekkert jákvætt
við sameiningu
05/2022 21