Feykir - 16.02.2022, Blaðsíða 7
Hrefna Jóhannesdóttir, formaður samstarfsnefndar í Skagafirði
Hrefna Jóhannesdóttir,
skógarbóndi á Silfrastöðum í
Blönduhlíð, er oddviti
Akrahrepps og formaður
samstarfsnefndar hreppsins
og Svf. Skagafjarðar. Í
nefndinni sitja tíu fulltrúar,
fimm frá hvoru sveitarfélagi
og tveir til vara. Hrefna er
ánægð með þátttöku á
íbúafundum og ekki síst fyrir
málefnalegar og góðar
umræður sem fram fóru. En
fyrst er hún spurð hvernig
sameiningarviðræður hafi
gengið hjá nefndinni.
Hrefna segir samhljóm hafa
verið innan nefndarinnar um
að það hafi verið afar áhugavert
að ráðast í þá greiningarvinnu
sem unnin var fyrir
samstarfsnefndina og jafnframt
forsenda álits nefndarinnar.
„Einkennandi fyrir vinnuferlið
var lausnamiðað viðhorf og
vilji til þess að sjá samfélagið
okkar eflast og dafna,“ segir
hún en hvaða mál ætli hafi
verið erfiðust eða tekið mestan
tíma að komast að niðurstöðu?
„Það er veikleiki að stjórnsýslu
almennt, ekki bara hér í
Skagafirði heldur út um allan
heim, virðist skorta nokkuð
upp á að vera nógu gagnsæ eða
skilvirk. Það þarf að ríkja traust
á milli íbúa og kjörinna fulltrúa
og ein leið til þess er að opna
stjórnsýsluna fyrir bæði virkari
þátttöku íbúa í ferlinu sem
leiðir að ákvarðanatöku og eins
með því að miðla betur
upplýsingum svo hægt sé að
fylgjast betur með þróun mála
og framkvæmdum sem varða
íbúana miklu. Sumir óttast að
vegalengdin verði of löng frá
íbúum til kjörinna fulltrúa eða
til þeirra sem taka ákvarðanir
en það er ekki síður mikilvægt
að fækka milliliðum þar sem
það er hægt. Skoða þarf
fyrirkomulag sem mun auka
skilvirkni í stjórnsýslu og er t.d.
verið að skoða
fullnaðarafgreiðsluheimildir
innan ákveðinna nefnda.“
Fjármálin töluvert rædd
Hrefna er bjartsýn á að
sameiningartillagan verði
samþykkt og segir það ljóst að
ef samfélagið vilji fara fram á
við, þá muni áhugi fólks aukast
á því að taka þátt í því starfi og
þeirri uppbyggingu. „Ég er því
bjartsýn og trúi því að fleiri en
færri sjái tækifæri sem felast í
því að leiða fólk saman til að
vinna að sameiginlegum
hagsmunum okkar allra en eins
og við vitum þá er samstarfið í
dag mikið á flestum sviðum.
Hvernig telur þú að
sameining eigi eftir að
breyta afkomu sameinaðra
Skagfirðinga?
„Fjármál sveitarfélaganna
tveggja hafa verið rædd
töluvert, annars vegar við-
kvæmur tekjugrundvöllur
Akrahrepps og hins vegar
skuldastaða Svf. Skagafjarðar.
Bæði sveitarfélögin uppfylla
helstu viðmið um fjármál og
rekstur í dag, en nefndin telur
að ef fara á í áætlaðar
fjárfestingar vegna nauðsyn-
legra framkvæmda á næstu
árum þá eigi sameinað
sveitarfélag auðveldara með að
standa undir því,“ segir Hrefna.
Erum við ekki öll
Skagfirðingar?
Hvaða nafn hún gæti hugsað
sér að sameinað sveitarfélag
bæri segir hún það algengt
verklag að kalla eftir tillögum
að nafni og bera því næst undir
íbúa í atkvæðagreiðslu. „Ég
ætla að bíða og sjá hvaða
tillögur koma upp úr hattinum
áður en ég tjái mig um það. Ég
á samt erfitt með að sjá fyrir
mér að einhver eigi eftir að
segja að hann búi í „Skagafirði
hinum forna“. Erum við ekki öll
Skagfirðingar?“
Góð þátttaka á íbúafundi
Tveir kynningarfundir voru
haldnir fyrir íbúa héraðsins
meðan á óformlegum við-
ræðum stóð og segir Hrefna að
eftir að formlegar viðræður
hófust hafi fjórir fundir farið
fram, tveir í októberlok til að
kynna stöðuna og niðurstöður
úr helstu málaflokkum og svo
tveir í febrúarbyrjun til að
kynna framtíðarsýn samstarfs-
nefndarinnar og forsendur
sameiningartillögunnar.
„Þetta voru allt staðfundir
sem þó var einnig streymt á
Netinu, nema fyrri fundurinn
nú í febrúar sem var alfarið
haldinn í gegnum streymi eða
gegnum fjarfundarboð. Þátt-
taka var góð, sérstaklega í
Akrahreppi þar sem fóru fram
fjörugar umræður. Ég vil nota
tækifærið og þakka öllum fyrir
málefnalegar og góðar um-
ræður,“ segir hún en
minnisblöð og kynningar-
myndbönd um helstu
málaflokkana hafa verið birt á
heimasíðum og samfélags-
miðlum sveitarfélaganna og
verkefnisins skagfirdingar.is.
Eins gerðu nemendur í
áfanganum lífsleikni við FNV
myndband um málið.
Að lokum vill Hrefna hvetja
alla til þess að kynna sér málið
vel, mæta á kjörstað og kjósa út
frá eigin sannfæringu. /PF
Hvetur alla til að mæta á kjörstað
og kjósa út frá eigin sannfæringu
Kjörstaðir sameiningarkosninga
Laugardaginn 19. febrúar næstkomandi fara
fram kosningar um sameiningu
Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Rétt til að kjósa hafa allir 18 ára og eldri sem eru á kjörskrá í
viðkomandi sveitarfélagi. Kjörskrár liggja frammi á skrifstofum
sveitarfélaganna. Einstaklingar geta athugað hvort þeir séu á
kjörskrá og hvar þeir eigi að kjósa á heimasíðu Þjóðskrár.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Kjörfundir fara fram í hvoru sveitarfélagi og verða þeir opnir sem hér segir:
Kjörfundur í Akrahrepp fer fram í Héðinsminni frá kl. 12
Kjörfundir í Sveitarfélaginu Skagafjörður:
- Bóknámshús FNV frá kl. 9
- Félagsheimilið Höfðaborg frá kl. 10
- Varmahlíðarskóli frá kl. 10
- Félagsheimilið Ketilás frá kl. 12
- Grunnskólinn á Hólum frá kl. 10
- Félagsheimilið Árgarður frá kl. 12
- Skagasel frá kl. 12
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því
að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá standa hafa greitt
atkvæði. Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er
sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00.
Aðsetur kjörstjórnar í Akrahreppi verður í Héðinsminni.
Aðsetur kjörstjórnar í Sveitarfélaginu Skagafirði verður í Bóknámshúsi FNV á Sauðárkróki.
Talning atkvæða fer fram þar sem kjörstjórn hefur aðsetur og hefst eftir að öllum kjörstöðum
hefur verið lokað. Verða atkvæða talin og úrslit birt í hvoru sveitarfélagi og á skagfirdingar.is
Um undirbúning, framkvæmd og frágang sameiningarkosninga fer eftir lögum
um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
Kjörstjórnir Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Hrefna Jóhannesdóttir, formaður samstarfsnefndar í Skagafirði. MYND AÐSEND.
07/2022 7