Feykir - 22.06.2022, Page 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
24
TBL
22. júní 2022 42. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Álfaskip hjá Arnarbæli
Holt eitt með klettum og
grasi vaxið á milli klettanna
er upp í heiðinni milli
Býjaskerja og Sandgerðis
rétt fyrir ofan (sunnan)
túngarðinn, er Arnarbæli
heitir. Annar klettur er þar
fyrir neðan Sandgerði sem
brúkaður hefir verið fyrir
hróf á sumarinn, er heitir
Hamar. Þaðan þóttust menn sjá álfafólk vera að
setja skip sín og upp í Arnarbæli nóttina fyrir
Bátsendaflóðið - þann 4. janúar1798. - sem
mörgum sveitum olli hins mesta tjóns og töpunar.
/PF
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Álfar
Mannlíf í torfbæjum á 19. öld
70 ár frá opnun sýningar í Glaumbæ
Þann 15. júní sl. var merkur dagur í sögu
Byggðasafns Skagfirðinga, en fyrir 70 árum
síðan, eða árið 1952, opnaði megin sýning
Byggðasafnsins „Mannlíf í torfbæjum á 19. öld“ í
Glaumbæ. Á sýningunni í bænum má sjá yfir 800
gripi, í 16 mismunandi rýmum, og er áhersla
lögð á aðbúnað fólks við matargerð og daglegt líf.
Á Facebook-síðu safnsins er aðdragandi þess að
sýningin varð til rifjaður upp. Á sínum tíma var
mikill vilji fyrir því að lagfæra og varðveita
Glaumbæ þó ekki væri nægilegt fjármagn til þess
verkefnis. Árið 1938 mun Mark Watson hafa hrifist
af Glaumbæ og veitt 200 sterlingspund til viðgerða
á bænum.
„Þá var hægt að hefjast handa við lagfæringar
sem stóðu yfir til ársins 1946 en síðustu ábúendur
fluttu út ári síðar. Byggðasafn Skagfirðinga var
stofnað þann 29. maí 1948 (elsta byggðasafn á
Íslandi) og sama ár var tekið til við að safna
munum í bæinn. Árið 1951 voru þeir munir sem
safnast höfðu fluttir inn í Glaumbæ og ári síðar
opnaði loks sýningin sem enn stendur í dag, með
mörgum af þeim sömu munum og voru þá og að
miklu leyti í sömu mynd.
Síðan þá hefur safnið vaxið og dafnað og
sýningin dregið að sér hundraða þúsundir manna
og virðist ekkert lát á áhuganum á sýningunni
enda er sýningin sjálf raunar orðin mjög merkileg
og varðveisluverð fyrir aldurssakir. Til gamans má
geta að margir safngestir hafa haft orð á því hvað
sýningin hafi snortið þá og sumir jafnvel tilkynnt
safnvörðum að þessi bær og sýningin í honum sé
það fallegasta sem þeir hafi séð um ævina. Það er
því óhætt að segja að sýningin „Mannlíf í
torfbæjum á 19. öld“ standi fyrir sínu,“ segir í
færslu Byggðasafnsins.
Spennandi sýningar Byggðasafnsins
Síðastliðinn sunnudag opnaði ný sýning í Áshúsi
„Íslenskir þjóðbúningar og Pilsaþytur“,
samstarfsverkefni Byggðasafnsins og Pilsaþyts, þar
sem fróðleikur, búningahlutar og skart verða til
sýnis ásamt kyrtli Pilsaþyts sem vígður var í
Miðgarði þann 22. apríl síðastliðinn. Þar var einnig
afhjúpaður sýningaskápur sem geyma mun fimm
glæsilega þjóðbúninga og verða til sýnis.
Í Gilsstofunni opnaði sýningin „Torfbærinn:
Heimili og vinnustaður“ frá Skottu
kvikmyndafjelagi sem unnin var í samstarfi við
Byggðasafnið. Þar verður hægt að ferðast aftur í
tímann með 360° gleraugum.
Þá má skoða spjaldasýninguna „Villtar erfðalindir
nytjaplantna“ sem fjallar um villtar plöntur
náskyldum landbúnaðarplöntum og
möguleikunum sem felast í þeim, sérstaklega í
sambandi við loftslagsvána, líffræðilegan
erfðafjölbreytileika og fæðuöryggi. Sýningin er sett
upp í samstarfi við Náttúrustofu Norðurlands
vestra og er fengin að láni frá Grasagarðinum í
Reykjavík og stendur í Glaumbæ út júní. / PF
Mynd tekin 2019. MYNDIR FENGNAR AF FACEBOOK-SÍÐU BYGGÐASAFNS SKAGFIRÐINGA.
Tugþúsundir fólks koma árlega að skoða Glaumbæ.
Mynd tekin 1959. Gunnar Rúnar Ólafsson tók.
Í lok maí fór fram Lands-
keppni MAKEathons,
nýsköpunarkeppni
Grænna Frumkvöðla
Framtíðar. Þar kepptu
skólarnir þrír, Nesskóli,
Grunnskóli Bolungarvíkur
og Árskóli, til úrslita. Hver
skóli sendi inn myndband
þar sem þeir útskýrðu
sínar lausnir á umhverfis-
áskorunum í sinni
heimabyggð.
Keppnin var hnífjöfn
en á endanum var það
Grunnskóli Bolungar-
víkur sem bar sigur úr
býtum. Þeim innan hand-
ar voru Hildur Ágústs-
dóttir kennari og Gunnar
Ólafsson frá Djúpinu
frumkvöðlasetri.
Grunnskóli Bolungar-
víkur glímdi við áskorun-
ina:
„Hvernig er hægt að nýta
úrgang frá fiskeldi betur “
og lausnin sem vann bar
yfirskriftina: "Að nýta
úrgang frá fiskeldi á
sjálfbæran hátt"
Hér er fyrir neðan má
lesa endurgjöfina sem
sigur-liðið fékk frá dóm-
nefndinni:
“Þið eruð hugvitssöm og
lausnamiðuð. Þið komuð
auga á umhverfisvandamál
sem skapast vegna fisk-
eldis í sjó og leituðuð
lausna. Það var frábært að
fá að sjá skítinn sem
safnast hefur fyrir, en það
sjónarhorn fær almenn-
ingur yfirleitt ekki. Ykkar
verkefni gengur út á að
breyta úrgangi og botnfalli
í auðlind sem nýtist, og
gæti því komið bæði
náttúru og sjávarútvegs-
fyrirtækjum að gagni. Við
hvetjum ykkur til að vinna
lausnina áfram og hafa í
huga mikilvægi líffræði-
legs fjölbreytileika í
vistkerfum í sjónum, en
eldi í sjó getur skaðað
hann sé ekki að gætt.“
Í dómnefnd sátu:
• Lenya Rún Taha Karim
varaþingmaður Pírata og
lögfræðinemi.
• Margrét Hugadóttir
vefstjóri og verkefnastjóri
hjá Landvernd.
• Þóra Valsdóttir
verkefnastjóri hjá Matís.
/IÖF
Grunnskóli Bolungar-
víkur bar sigur úr býtum
Landskeppni Grænna Frumkvöðla