Feykir


Feykir - 29.06.2022, Blaðsíða 3

Feykir - 29.06.2022, Blaðsíða 3
Golf Íslandsmót golfklúbba Íslandsmót golfklúbba 16 ára og yngri og 14 ára og yngri fóru fram dagana 24.–26. júní á Strandarvelli á Hellu og Garðavelli á Akranesi. Þar átti Golfklúbbur Skagafjarðar flotta fulltrúa í tveim sveitum, blandaða sveit og sameigin- lega stúlknasveit með GA (Golfklúbbur Akureyrar). Blandaða sveitin endaði í 9. sæti og skipuðu sveitina þau Alexander Franz Þórðarson, Brynjar Már Guðmundsson, Hallur Atli Helgason, Markús Máni Gröndal, Tómas Bjarki Guðmundsson og Una Karen Guðmundsdóttir. Liðsstjóri var Atli Freyr Rafnsson. Stúlknasveitin, sem var sameiginleg með Golfklúbbi Akureyrar, endaði í 5. sæti. Sveitina skipuðu Dagbjört Sísí Einarsdóttir (GSS), Gígja Rós Bjarnadóttir (GSS), Björk Hannesdóttir (GA), Bryndís Eva Ágústsdóttir (GA), Birta Rán Víðisdóttir (GA) og Lilja Maren Jónsdóttir (GA) og liðsstjóri var Ólafur Gylfason. Krakkarnir sýndu leikgleði og prúðmennsku á vellinum og voru klúbbum sínum til mikils sóma. GSS vill óska þeim til hamingju með frábæran ár- angur. Áfram GSS! /Sylvía Dögg Handbendi handhafi Eyrarrósarinnar Heiðursmóttaka á Listahátíð í Reykjavík Fram kemur á vef Byggðastofnunar að brúðu- leikhúsið Handbendi á Hvammstanga hafi verið handhafi Eyrarrósarinnar 2021 og móttaka haldin þeim til heiðurs á Listahátíð í Reykjavík í Iðnó 16. júní síðastliðinn. Handbendi var stofnað árið 2016 af Gretu Clough sem jafnframt er leikstjóri, brúðuleikari og listrænn stjórnandi. Eyrarrósin hefur verið veitt frá árinu 2005 en það eru Byggðastofnun, Listahátíð í Reykjavík og Icelandair sem staðið hafa í sameiningu að viðurkenningunni, sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Verndari Eyrarrósarinnar er frú Eliza Reid forsetafrú og heiðraði hún samkomuna með nærveru sinni. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði lista og menningar. /IÖF Stúlknasveitin skipuð efnilegum kylfingum frá GSS og GA. MYND AÐSEND Sú meinlega villa slæddist inn í ferðasögu Kvennakórsins Sól- dísar í síðasta Feyki að stjórnandi kórsins frá upphafi væri Helga Rós Indriðadóttir sem ekki er alveg rétt. Sólveig S. Einarsdóttir stjórnaði kórnum frá stofnun hans en Helga Rós tók við haustið 2015. Beðist er velvirðingar á þessu. /PF Leiðrétting Helga Rós annar stjórnandi Sóldísar Stund milli stríða. Blandaða sveitin stóð sig með mikilli prýði. MYNDIR: SYLVÍA DÖGG Fram kemur á Skagafjordur.is að Elín Berglind Guðmundsdóttir hafi verið ráðin aðstoðarleikskólastjóri Leikskólans Ársala og að hún hefji störf þann 15. ágúst næstkomandi. Elín Berglind tekur við stöðunni af Sólveigu Örnu Ingólfsdóttur sem var nýlega ráðin leikskólastjóri við Leikskólann Ársali. Elín Berglind lauk B.ed. prófi í leikskólakennarafræðum árið 2008 og fékk leyfisbréf kennara sama ár. Að auki lauk hún námi til viðbótardiplómu í menntavísindum með sérhæfingu í stjórnun og forystu í lærdómssamfélagi frá Háskólanum á Akureyri árið 2019. Elín Berglind hefur tekið fjöldamörg námskeið í gegnum árin, m.a. Tras, Gerd Strand, Íslenska þroskalistann, TMT (tákn með tali) auk annarra styttri námskeiða. Elín Berglind hefur mikla reynslu af starfi í leikskóla og hefur til að mynda yfir 20 ára samfellda starfsreynslu hjá sveitarfélag- inu, en hún starfaði bæði á Furukoti og Glaðheimum áður en leikskólarnir voru sameinaðir í Leikskólann Ársali. / IÖF Trostan Agnarsson ráðinn Á heimasíðu Skagafjarðar kemur fram að Trostan Agnarsson hafi verið ráðinn skólastjóri við Varmahlíðarskóla og muni hefja störf við upphaf næsta skólaárs þann 1. ágúst næstkomandi. Alls bárust tvær umsóknir um starfið. Trostan lauk námi til kennsluréttinda frá Háskóla Íslands og fékk leyfisbréf kennara árið 2007. Þar áður hafði hann lokið BA prófi í íslensku frá Háskóla Íslands. Trostan hefur 15 ára kennslu- reynslu en hann starfaði í Laugargerðisskóla á tímabilinu 2007-09 sem umsjónarkennari og vann einnig að félagsmálum nemenda. Hann var í Tálknafjarðarskóla skólaárið 2009-10, þar sá hann um umsjónarkennslu ásamt því að vera staðgengill skólastjóra. Árin 2010-15 starfaði Trostan í Höfðaskóla þar sem hann var um- sjónarkennari en einnig aðstoðarskólastjóri í eitt ár sem og staðgengill skólastjóra. Trostan hóf störf í Varmahlíðarskóla árið 2015 og hefur aðallega verið með umsjónarkennslu þar. Trostan hefur jafnframt starfað í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra eina önn þar sem hann sá um kennslu í ensku og íslensku. / IÖF Ráðið í stjórnendastöður við Leikskólann Ársali og Varmahlíðarskóla Elín Berglind og Tristan ráðin Elín Berglind Guðmudsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Ársala MYND AF FB Trostan Agnarsson, skólastjóri Varmahlíðarskóla. MYND AF FB Frá heiðursmóttöku á Listahátíð í Reykjavík 2022. MYND AÐSEND 25/2022 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.