Feykir - 29.06.2022, Síða 6
6 25/2022
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.
ÁRGANGUR: 1991.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Sambúð, með einn hund og þrjá ketti.
BÚSETA: Búsett með maka í Bretlandi, en með annan fótinn á
Íslandi.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Fædd og uppalin á
Stóra-Búrfelli í Austur Húnavatnssýslu – foreldrar eru Jón Gíslason
og Kristjana Stefanía Jóhannesdóttir.
STARF / NÁM: Kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum
hinsegin fólks.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Það er ýmislegt. Ég starfa sem stendur sem
dálkahöfundur hjá dagblaðinu Metro í Bretlandi, ásamt því að reka
kvikmyndaverkefnið My Genderation, sem snýr að því að búa
til heimildamyndir og annað efni um transfólk og reynslu þeirra.
Svo er ég líka á fullu í réttindabaráttu fyrir hinsegin fólk bæði í
Bretlandi og á Íslandi. Ætli ég skelli mér ekki bara í pólítík fyrir
einhvern sniðugan flokk á næstu árum?
Ugla Stefanía
því miður oft stór hluti af starfi
dýralækna. Það er samt aldrei
að vita hvort ég láti ekki gamlan
draum rætast og fari í nám.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Ég lék mér nú með alls konar
leikföng – en ætli uppáhaldið
sem ungur krakki hafi ekki
verið öll loðdýrin mín sem töldu
eflaust á nokkrum hundruða
undir lokin! Svo átti ég líka
fjórar dúkkur sem ég kallaði
alltaf „konurnar mínar“.
Besti ilmurinn? Ég elska reyk-
elsi – er alltaf með reykelsi sem
heita nag champa heima hjá
mér. Kveiki á þeim helst daglega.
Hvar og hvenær sástu
núverandi maka þinn fyrst? Við
hittumst á ráðstefnu í borginni
Bologna á Ítalíu. Makinn minn,
Fox, var ráðinn til að taka viðtöl
við fólk á ráðstefnunni í tilefni
tíu ára afmælis samtakanna
Transgender Europe og ég var
ein af viðmælendunum hans.
Okkur kom rosalega vel saman
og það æxlaðist þannig að ég
missti af fluginu mínu aftur til
Íslands – og endaði á því að fara
með Fox til Brighton í Englandi.
Ég hef eiginlega bara verið
þar síðan!
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Uppáhalds
hljómsveitin mín hefur alltaf
verið Evanescence – en flest
ættu nú að kannast við lagið
Bring Me To Life sem þau gáfu
út 2003. Ég er ennþá mikill
aðdáandi og fór á tónleika
með þeim í fyrsta skipti fyrir
nokkrum árum – og skældi allan
tímann af hamingju.
Hvernig slakarðu á? Ég er
mikill nörd og hef alla tíð
haft áhuga á tölvuleikjum,
borðspilum og spunaspilum.
Finnst ekkert betra en að setjast
fyrir framan tölvuna á kvöldin
og spila tölvuleiki eða spila
spunaspil (t.d. Dungeons and
Dragons) með vinum. Svo er
ég líka algjör Star Trek nörd og
elska að horfa á Star Trek þætti
– bæði gamla og nýja. Captain
Janeway í Star Trek: Voyager
er auðvitað uppáhalds, enda
horfum ég og mamma á hana í
sjónvarpinu í gamla daga.
Hverju missirðu helst ekki
af í sjónvarpinu? Ég verð
nú að viðurkenna að ég á
ekki sjónvarp – en ég horfi
aðallega á þætti á netinu í
tölvunni. Ég fylgist þar grannt
með þáttum eins og Queer
Eye, RuPaul‘s Drag Race og
raunveruleikaþáttum á borð við
Real Housewives. Svo auðvitað
missi ég aldrei af Eurovision.
Besta bíómyndin? Ég á nú
eiginlega ekki uppáhalds
bíómynd eins hallærislegt og
það hljómar. Er mikið meira
fyrir að horfa á þætti – en
annars reyni ég alltaf að horfa á
Sister Act 1 og 2 í kringum jólin.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Mjög góð
vinkona mín er Íslandsmeistari
kvenna í frisbígolfi - sem mér
finnst mjög merkilegt! Hún heitir
Kolbrún Mist.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Ég þríf og
skipulegg rosalega vel - ef það
þarf að raða í geymslur eða
skottið á bílnum eða eitthvað þá
er ég alltaf best í það. Svo er ég
líka frekar handlagin og sé um
að gera við alls konar sem þarf
að laga eða redda.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Undanfarin ár hef
ég verið að reyna að fullkomna
að gera heimatilbúna pizzu -
held ég sé nú bara alveg að
ná tökum á því að gera deigið
allt rétt og safna saman góðu
áleggi. Set rauðan lauk, shallot
lauk, blaðlauk, döðlur, papriku,
spergilkál, ananas og (stundum)
jalapeno. Mjög góð blanda!
Hættulegasta helgarnammið?
Ég borða nú eiginlega ekki
nammi - en ef ég kaupi eitthvað
þá eru það þristar eða hraun.
Hvernig er eggið best? Mér
finnst það nú bara best spælt,
Hvernig nemandi varstu?
Ég var mjög samviskusamur
nemandi og gekk alltaf mjög
vel – allavega að eigin sögn! Ég
var allavega fengin til að flytja
útskriftarræðu og fékk verðlaun
fyrir góðan árangur í ensku,
þannig að ég hlýt að hafa verið
að gera eitthvað rétt.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Finnst nú
eiginlega eins og það sé heil
öld síðan! En ætli það séu ekki
skelfilegu fermingarmyndirnar
af mér sem hanga enn uppi
heima í stofu í sveitinni.
Foreldar mínir spurðu hvort
þau ættu ekki að taka þær niður
þegar ég kom út úr skápnum
sem trans og fór í gegnum
kynaðlögunarferli – en mér
fannst það nú alveg óþarfi,
myndirnar skána ekkert þó þær
séu ofan í skúffu.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Ég ætlaði
mér að verða dýralæknir – en
lífið tók nú víst aðeins aðra
stefnu! Held að það sem hafi
aftrað mér helst þar var að ég
myndi eiga svo erfitt með að
aflífa eða svæfa dýr – sem er
Ugla. MYND AÐSEND