Feykir - 29.06.2022, Page 10
Langaði að verða atvinnumaður
í fótbolta frá því hún var lítil stelpa
Hannah Jane Cade. „Frábær fyrirmynd og mikill leiðtogi,“ segir Donni. MYNDIR: ÓAB
[ ERLENDIR TUÐRUSPARKARAR ] oli@feykir.is
Hannah Jane Cade | spilar með kvennaliði Tindastóls
Nú heilsum við upp á nýja
liðskonu Stólastúlkna sem
spila í Lengjudeildinni í sumar.
Það er Hannah Jane Cade en
hún er ein þriggja bandarískra
stúlkna sem leika með liði
Tindastóls. Hinar tvær
kannast flestir við enda búnar
að staldra talsvert við á
Króknum en það eru þær
Murielle Tiernan og Amber
Michel. Hannah tekur í raun
sæti Jackie Altshculd sem
hafði spilað með liði
Tindastóls þrjú síðustu ár en
spilar nú sinn fótbolta í
Bandaríkjunum.
„Hannah Cade er fyrsta flokks
leikmaður og karakter. Hún er
alltaf tilbúin að hjálpa liðinu
sínu á vellinum og líka utan
vallar. Alltaf brosandi, jákvæð
og gefst aldrei upp. Hannah er
frábær fyrirmynd og mikill
leiðtogi auk þess sem hún er
geggjuð i fótbolta,“ segir
Donni, þjálfari Stólastúlkna,
þegar Feykir spyr hvernig leik-
maður og karakter hún sé.
Hannah er 24 ára gömul og
spilar á miðjunni. Hún er frá
Lakeville í Minnesota. Mamma
hennar er Melanie, pabbinn
Bill og þau eiga eina dóttur að
auki en það er Maggie. Ekki má
gleyma hundinum Jimmy!
Hannah hefur lokið námi frá
Iowa State University með
gráðu í líffræði og sálfræði.
„Ég kom til Íslands til að
spila fótbolta vegna þess að
Christopher Harrington bauð
mér ótrúlegt tækifæri til að
koma til Fram til að spila,“
segir Hannah þegar hún er
spurð hvers vegna hún hafi
komið til Íslands en hún lék
með liði Fram í 2. deildinni í UPPÁHALDS ÍSLENKA SNAKK-
IÐ: Trítlar, súrt nammi, hefur
verið uppáhalds snakkið mitt
sem ég hef prófað hér!
LAG SUMARSINS? Ég á mjög
erfitt með að velja eitt uppá-
hald því það breytist í hverri
viku en eins og er er ég mjög
hrifin af Kilby Girl með The
Backseat Lovers.
SKRÍTNASTI MATURINN SEM
ÞÚ HEFUR BRAGÐAÐ Á ÍS-
LANDI? Þurrkaður hákarl.
UPPÁHALDS FÓTBOLTALIÐ?
Uppáhaldsliðið mitt er Barce-
lona undir stjórn Pep Guardiola.
stutta
spilið
hóp sem hefur verið saman svo
lengi en allir hafa tekið
virkilega vel á móti mér og
látið mér líða eins og ég sé
heima. Allir styðja hver annan
mjög og við erum eins og stór
fjölskylda hér.“
Þú spiaðir með liði Fram í
Reykjavík í fyrra. Hver er
munurinn á að vera á höfuð-
borgarsvæðinu eða hér úti á
landi? „Einn helsti munurinn á
því að búa og spila fótbolta á
Sauðárkróki í stað Reykjavíkur
er örugglega stærð bæjarins. Á
síðasta ári var ég í návígi við
fjölbreytta afþreyingu og staði
en hérna uppi búum við til
okkar eigin afþreyingu og
erum dugleg að skoða okkur
um – sem hefur verið frábært
hingað til.“
Hvernig finnst þér gæðin í
Lengjudeildinni, er þetta mikið
betri fótbolti en í 2. deild? „Ég
held að það að spila í
Lengjudeildinni hafi verið
skref upp á við í gæðum miðað
við fótboltann í 2. deildinni.
Það er mjög gaman að spila á
móti þessum hágæða liðum og
prófa okkur líka gegn sumum
Bestu deildar-liðum.“
Hver er uppáhalds liðsfélagi
þinn eða skemmtilegasti? „Ég
elska svo sannarlega allar stelp-
urnar í liðinu. Allir eru alveg
frábærir á mismunandi hátt en
sú líflegasta og skemmtilegasta
í búningsklefanum er svo
sannarlega Anna Margrét!
Hún kemur öllum í gott skap!“
Hverjar eru vonir þínar fyrir
tíma þinn hér á Íslandi? „Á
meðan ég er á Íslandi vonast ég
virkilega til að eignast vini og
mynda tengsl við fólk sem
munu endast alla ævi. Þetta er í
raun svo ótrúleg reynsla sem
ég er svo heppin að upplifa. Ég
vonast líka til að geta hjálpað
liði Tindastóls að komast upp!“
Hvaða fótboltamaður hefur
verið þín fyrirmynd? „Uppá-
halds fótboltamaður minn
allra tíma er Andrés Iniesta. Ég
elskaði alltaf að horfa á hann
spila með Spáni og Barcelona
því hann spilaði svo einfalt en
var einstaklega hæfileikaríkur
og áhrifaríkur miðjumaður.
Hann var ekki of áberandi en
þú vissir alltaf að hann myndi
gera leikmennina í kringum
sig betri.“
Hvað gerir þú annað á Króknum
en að spila fótbolta? „Fyrir
utan fótbolta eyði ég miklum
tíma með herbergisfélögum
mínum, Murr og Amber. Við
gerum mikið saman. Við
eyðum líka miklum tíma með
liðsfélögum okkar í íbúðinni
okkar. Ég hef reyndar fengið
gesti nýlega! Mamma, pabbi og
systir komu hingað nýlega og
náðu að sjá einn heimaleik.
Það var svo gaman að fá að
sýna þeim og skoða norðrið
með þeim. Ég á líka von á að
fleiri í fjölskyldunni komi
hingað í ágúst.“
Hefur dvölin á Íslandi verið
erfið að einhverju leyti? „Það
erfiðasta við Ísland hefur verið
tímamismunurinn hér og þar
sem fjölskyldan/vinirnir mínir
eru. Það er svolítið erfitt að
skipuleggja tíma til að tala
með fimm tíma mun,“ segir
Hannah hlæjandi.
komið mér mest á óvart. Ég
gerði mér ekki grein fyrir
hversu oft við myndum spila í
roki – ef ekki verra!“
Hvernig finnst þér að vera hluti
af liði Tindastóls? „Ég elska að
vera hluti af liði Tindastóls! Ég
var mjög kvíðin að koma inn í
Cade-fjölskyldan á Króknum. Melanie, Bill, Hannah og Maggie. MYND AF FB
fyrra. Christopher Harrington,
eða Glichy, er Tindastólsfólki
vel kunnur enda bæði þjálfaði
hann og spilaði með Stólunum
fyrir nokkrum árum. „Mig
hafði alltaf langað til að fara í
atvinnumennsku frá því ég var
lítil stelpa svo ég stökk á
tækifærið. Áður en ég kom
hingað var ég að spila háskóla-
bolta við Iowa State háskólann,
þjálfa og vinna á sjúkrahúsi.“
Hvað hefur komið þér mest á
óvart á Íslandi? „Síðan ég kom
til Íslands hefur vindurinn
Stólastúlkur. Frá vinstri: Bergljót, Murr, Bryndís, Amber, María, Lara og Hannah.
10 25/2022