Feykir - 12.10.2022, Blaðsíða 10
Unnur Sævarsdóttir er fædd og
uppalin í Skagafirði og hefur búið
með honum Sævari sínum á Hamri
í Hegranesi í 33 ár.
Hve lengi hefur þú stundað hann-
yrðir? -Ég held að ég hafi byrjað að
prjóna og sauma út í handavinnu-
kennslu í barnaskólanum og það
voru þær heiðurskonur Friðbjörg
Vilhjálmsdóttir (Bíbí) og Sólveig
Arnórsdóttir sem kenndu mér að
sauma, prjóna og hekla.
Hvaða handavinna þykir þér
skemmtilegust? -Ég elska að prjóna,
mér finnst það veita svo mikla
slökun og hugarró, en ég hef gaman
að öllu handverki og finnst t.d
bútasaumur og leðurvinnsla mjög
skemmtileg, og frábært þegar hægt
er að tvinna það saman. Annars er
gert mjög mikið grín að mér í fjöl-
skyldunni því þegar ég fæ áhuga á
einhverju nýju þá þarf ég að kaupa
allt sem því tilheyrir og helst mjög
mikið þar sem ég bý í sveit og get
ekkert skotist út í búð ef eitthvað
vantar. Ég fékk til dæmis mikinn
áhuga á að vinna úr ullarkembu eitt
árið og pantaði kembu frá Álafoss en
áttaði mig ekki á hvað kemban er
létt, ég pantaði eitt kíló af flestum
litum og fékk tvo fulla ruslapoka.
Hverju ertu að vinna að um þessar
mundir? -Ég er aldrei með eitt verk-
efni í gangi. Núna er ég að prjóna
peysu eftir mynstrinu Skipperinn
frá knits.by.linda virkilega skemmti-
legt að prjóna þetta mynstur, hekla
dúllur í teppi og sauma út.
Hvar færðu hugmyndir? -Hér áður
fyrr fór ég mikið á bókasafnið og
skoðaði bækur og einnig keypti ég
mikið af handavinnubókum, en nú
er það mest netið, þar finnur maður
allt. Ég er í mörgum handavinnu-
hópum og finnst gaman að skoða
hvað aðrir eru að gera.
Hvaða handverk sem þú hefur
unnið ertu ánægðust með? -Ég
held mjög mikið upp á klukku-
streng sem ég saumaði þegar ég var
14 ára og hefur hangið upp á vegg
hjá mér síðan, en líklegast er ég
ánægðust með skírnarkjóla sem ég
gerði, annar er heklaður og hinn
saumaður.
- - - - -
Unnur skorar á
Stefaníu Ósk Stefánsdóttur.
„Pantaði eitt kíló af flestum litum
og fékk tvo fulla ruslapoka,,
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) klara@nyprent.is
Unnur Sævarsdóttir Hamri í Hegranesi
Hér er Unnur að prjóna einhverja snilld.
AÐSENDAR MYNDIR
Vöggusett.
Klukkustrengur sem ég saumaði 14 ára.
Lopapeysur sem fóru í jólapakkana eitthvert árið.
Vöggusett sem ég hef saumað handa barnabörnum,
á myndinni er Sólon Helgi, sonur Ragnars Smára.
Skírnarkjólar sem ég heklaði handa Eyrúnu dóttir minni og saumaði handa
Kristni syni mínum þegar þau áttu von á sínum fyrstu börnum árið 2015.
Púðar úr fiskiroði.
Heimfararsett.
10 38/2022