Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 12.12.1939, Side 2

Kaupsýslutíðindi - 12.12.1939, Side 2
að einangruarefni, svo sem korkplötur og timbur „forskjalling“, þar sem flytja þurfti hann svo langa leið i bílum. Úr því fóru menn aftur fyrir alvöru að hugsa um að gera vikurinn að útflutnings- vöru. Fóru þá erlend firmu að sýna meiri áhuga fyrir því að fá vikur héðan. Segir Jón Loftsson, að fyrirspurnir hafi komið frá þeim erlendu firmum, sem áður fengu sýnishorn, um kaup á miklu vikurmagni, og fór hann þá að rannsaka möguleika þá, sem hér voru fyrir þvi að flytja vikur út. Samtímis gerði Sveinbjörn Jónsson, bygg- ingarmeistari áætlun um að flytja vikur frá Dyngjufjöllum niður Jökulsá og skipa hon- um út í Buðlungahöfn. Um þessar mundir mun Jón Loftsson hafa fundið vikurnámur á Snæfellsnesi, og vegna hagkvæmari aðstöðu þar, var horfið frá fyrirhuguðum framkvæmdum í Axarfirði, en undirbúningur hafinn þarna á vikurnánvi af sameignarfélagi, sem síðar var breytt í Vikurfélagið h.f. Hefir það nú alla vikur- vinnsluna með höndum undir forystu Jóns Loftssonar. Á síðastliðnu sumri var vikurnámið rekið af miklu kappi, en það mun vera fyrsta sumarið, sem vikurvinnsla hefir verið rekin með sæmilegum árangri hér á landi. Vikur- inn er fluttur til Arnarstapahafnar með vatns- krafti, þannig að vatn, sem rennur frá Snæ- fellsjökti yfir sumarmánuðina, er látið flytja vikurinn til hafnarinnar eftir gömtum lækj- arfarvegi og að nokkru leyti eftir trérenn- um. Þar tekur vélarhús við þeim vikri, sem með vatninu berst, og malar hann í 0—12 mm. stór korn. Þaðan er vikursandurinn flutlur sjóleiðis og fer útskipunin þannig fram, að vikurinn er látinn renna með vatni i gegnum gúmmíslöngur, sem liggja um borð í flutningaskipin. Hér í Reykjavík hefir Vikurfélagið reist verksmiðjuhús við Lágholtveg. Eru þar steyptar og þurrkaðar einangrunarhellur úr 416 þeim vikursandi, sem ekki er fluttur óunn- inn út úr Íandinu. Mun ársframleiðsla verk- smiðjunnar núna nema um 10.000 m2 samtals af 5, 7 og 10 cm. þykkum vikurhellum, sem bæði eru notaðar til bygginga hér í Reykja- vík og úti um land. Um 15 manns hafa að jafnaði unnið' við vikurvinnsluna á þessu ári. Enn sem komið er hefir tiitölulega litið verið flutt út af vikri. Þrír skipsfarmar hafa verið sendir til Norðurlanda og líkað ágæt- lega. Er álitið að um verulegan útflutning verði að ræða á venjulegum tímum. Vikuriðnaður er hér enn fábreyttur. Nokk- uð er þó notað .af vikurdufti við cromhúð- un, í þvottaefni o. fl., en sökum þess, að vélar þær, sem vinna vikurduft eru mjög dýrar, hefir ekki enn orðið úr framkvæmd- um í þessu efni. Mjög athyglisverðar eru þær tilraunir, sem gerðar hafa verið hér á landi með vikur til bygginga. T. d. var að tilhlutun Jóns Lofts- sonar byggt eitt stórt einnar hæðar íbúðar- hús, við Arnarstapa á Snæfellsnesi, úr vik- urheltum því nær eingöngu. Eru útveggirnir hlaðnir tvöfaldir, þannig, að hellurnar i ytra borði veggjarins eru límdar við hetlurnar í innra borði hans með þunnu steypulagi. Hellunum er þannig komið fyrir, að láréttu og lóðréttu samskeytin i ytra borði veggj- arins standast hvergi á við samskeytin á innra borðinu og verða veggirnir með þessu móti bæði sterkari og hlýrri en ella. Hefir Jóni Loftssyni verið veitt einka- leyfi (patent) á þessari byggingaraðferð. Kristján Guðmundsson forstjóri Pípugerð- arinnar hefír einnig byggt einnar hæðar íbúð- arhús úr vikursteini (holsteini). Hafa þessi hús reynzt lilý og að ýmsu leyti fullt eins vel og steinsteypuhús. Af þessari reynslu má ætla að vikur éigi mikla framtíð fyrir sér sem byggingarefni. Samkvæmt tilraunum, sem Vikurfélagið h.f. lét gera hjá rannsóknarstofu sænska ríkis- Kaupsýslutíðindi

x

Kaupsýslutíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.