Kaupsýslutíðindi - 12.12.1939, Page 3
Verðbréfafregnir
Skýrsla frá Kauphöllinni
Á þessum óráSnu tímum er erfitt að segja
fyrir um verðbréfamarkaðinn í landinu. En
í fljótu bragði virðist þar ekki vera um
neinar stórvægilegar breytingar að ræða.
Um veðdeildarbréf Landsbankans er það að
segja að 11. flokkur var opnaður til útlána
um mitt ár 1936, og var stærð hans sex
miljónir króna. Nú er útgáfu verðbréfa þessa
flokks þegar að verða lokið, og má gera
ráð fyrir þvi, að um miðjan þennan mánuð
verði flokknum lokið til fulls.
Samkvæmt lögum hefir veðdeild Lands-
bankans heimild til þess að opna nýjan út-
lánaflokk, sem sé 12. flokk, og má hann
vera af sömu fjárhæð og 11. flokkur. Verð-
bréf þessa nýja flokks verða að engu leyti
frábrugðin veðdeildabréfum síðari flokk-
anna. Vextir eru þeir söniu og tímalengdin
liin sama.
Reynslan við síðustu flokkaskipti var sú,
að verðbréf þess fiokks, sem lokið var,
hækkuðu nokkuð i verði, en verðbréf þess
ins, á burðarþoli þessara tvöföldu veggja,
er ekkert því til fyrirstöðu að einnar til
tveggja hæða íbúðarhús séu byggð úr vikri
á þennan hátt.
En vikurvinnslan er ekki eingöngu þýð-
ingarmikil sökum þeirra stoðmörgu fram-
tíðarmöguleika, sem hún á hér á landi.
Hún sýnir okkur einnig hvert stefnir í þjóð-
lífi okkar. Sá skilningur sem vikurvinnslan
hefir á margan hátt átt að mæta af hálfu
valdahafa landsins á viðurkenningu skilið.
Ög' sigur þeirra áhugamanna, sem fyrir máli
þessu hafa barizt, sannar að landsmenn eru
nú albúnir til stórræða til þess að nýta þær
auölindir, sem hingað til hafa legið ónot-
aðar.
floklcs, sem opnaður var, voru í svipuðu
verði og veðdeildarbréf höfðu áður verið.
Kreppulánasjóðsbréf hafa verið litið á
ferðinni undanfarið og miklu minna, held-
ur en á sama tima undanfarin ár. Þetta
stafar sennilega af því, að! stöðugt fara
minnkandi þeir möguleikar, að nota verð-
bréf þessi sem gjaldmiðil.
Mestur hluti kreppulánasjóðsbréfanna er
þegar frosinn fastur í peningastofnunum
landsins, og eins og áður hefir verið getið,
kaupir þau enginn til þess að ávaxta i
þeim fé. Þetta nær þó aðeins til kreppu-
lánasjóðsbréfa bænda, en kreppulánasjóðs-
bréf bæjar- og sveitarfélaga eru aðeins
keypt til þess að ávaxta í þeim fé. Mjög litið
er einnig af þeim á markaðinum, og fer
minnkandi umsetningur þeirra.
Gengi veðdeildarbréfa 11. flokks hefir ver-
ið sem næst 80% að undanförnu, en eldri
flokkarnir nokkuð dýrari og sala þeirra
farið fram eingöngu eftir tilboðum. Gengi
á kreppulánasjóðsbréfum bænda hefir einnig
að mestu farið fram eftir föstum tilboð-
um, og gengi þeirra verið frá 82—84%.
Kreppulánasjóðsbréf bæjar- og sveitarfé-
iaga hafa einnig selzt eftir lilboðum og
gengi þeirra verið mjög misjafnt, en alltaf
hærra, heldur en á kreppulánasjóðsbréfum
bænda.
Vigfds Guðbrandsson & Co.
Austurstræti 10 Reykjavik
Klæðskerar hinna
vandlátu.
Kaupsýslutíðindi
417