Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 12.12.1939, Page 4

Kaupsýslutíðindi - 12.12.1939, Page 4
Yfirlit. Vísitölur 1. nóv. Vísitala matvöru hefir hækkað úr 196 í byrjun október upp í 219 í nóvember eða um 12%. 1. nóvember í fyrra var hún 190 og er því nú 29 stigum eða 15% hærri en þá. Sýna smásöluverð- skýrslur Hagstofunnaj' að allir matvöru- flokkar, nema fiskur, hafa hækkað frá 1. október. Mest hefir sykur hækkað, um 74% og brauð um 33%. — Eldsneytis- og Ijós- metisflokkurinn hefir einnig hækkað í októ- ber. Er hann nú 225 stig og er það 13% hækkun frá þvi sem var 1. október, en 39 stiga hækkun frá því í fyrra um sama leyti. — Aðrir liöir vísitölureiknings Hag- stofunnar eru ekki birtir í nóvemberhefti Hagtíðinda, en ef þeir eru teknir óbreyttir frá þvi í október hækkar aðalvísitalan úr 271 í októberbyrjun í 283 í nóvember- byrjun, eða um 4%%. Væri hún þá 8% hærri en á sama leyti í fyrra, en þá var hún 262. Verzlunarjöfnuðurinn var 1. desember orðinn hagstæður um 7,1 milj. kr. Hefir út- flutningurinn í nóvember numið samkv. bráðabirgðaskýrslum Hagstofunnar, 10.5 miljónum króna, en innflutningurinn 5.7 milj. kr. Alls hefir verið flutt út þá 11 mánuði ársins, sem liðnir eru að fullu, fyrir um 63 mitj kr., en innflutt fyrir 55.9 milj. í fyrra nam útflutningurinn á sama tíma 51.9 milj. kr. og innflutningurinn i5.8 milj. — Reikningur Reykjavíkurbæjar fyrir árið 1938 er nýlega kominn út. Heildargjöldin á rekstursreikningi eru 7.087 þús. kr. eða kr. 617.4 hærri en árið 1937. — Reksturshalli á árinu varð 231.2 þús. kr. Valdimar Hansen, framkvæmdastjóri, varð fimmtugur 8. desember. Hann á og á þessu ári þrjátíu ára starfsafmæli hjá Hinu ís- lenzka steinolíuhlutafélagi. Hefir hann unn- ið hjá því, fyrst sem bókari og síðar sem framkvæmdastjóri í þau þrjátíu ár, sem hann hefir dvalið hér á landi. Hansen hefir aflað sér mikilla vinsælda hér í bæ. Lárus Jóhannesson hæstaréttarmálaflutningsmaður Suðurgötu 4 Símar {3294 Málflutningur. Samningsgerðir. — Innheimta. iasteigna- & Verðbréfasalan Suðurgötu 4 Sími} Kaup og sala fasteigna og allskonar verðbréfa. Ólafur Gíslason & Co. H. f. Reykjavik Umboðssala — Heildsala I Sími 1370 (tvœr linur). - Simnefni Net. I Kartöfluuppskeran hefir verið ákaflega góð í sumar. í fyrra var heildapkartöflu- uppskeran 63 þús. tunnur, en samkvæmt þeim skýrslum, sem Búnaðarfélag íslands hefir fengið af kartöfluuppskerunni í haust, má ætla að hún hafi orðið í kringum 120 þús. lunnu’r. Er það meir en tvöfalt upp- skerumagn miðað við meðaluppskeru sið- ustu 10 ár. og á stríðsárunum vai" kart- öfluuppskeran aðeins 20.800 tiinnur að með- altali á ári. 418 Kaupsýslutíðindi

x

Kaupsýslutíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.