Kaupsýslutíðindi


Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Blaðsíða 3

Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Blaðsíða 3
Oullverð íslenzkrar krónu. Ritstjóri Kaupsýslutíðinda hei'ir beðið mig að skýra það lítillega, hvernig gullverð ís- lenzkrar krónu sé reiknað út, en það er nú sem kunnugt er 33,90%. Standi einhver mynteining í ákveðnu verðhlutfalli við gull og sé þessu verðhlut- falli haldið raunverulegu, er myntin gull- mynt (t.d. gullkr.), en standi mynteiningin ekki i neinu ákveðnu, raunverulegu verð- hlutfalli við gull eða annan góðmálm, er hún pappírsmynt (pappirskróna). f Landsbankalögunum frá 15. april 1928 eru ákvœði um ákveðið verðhlutfall milli gulls og íslenzkrar krónu, þannig að i 1 kilói af skíru gulli séu 2480 krónur, og er þetta sama verðhlutfallið og lögum sam- kvæmt ér milli gulls og hinna Norðurlanda- myntanna. En þetta verðhiutfall var þá og er enn ekki raunverulegt, þ. e. a. s. 1 kg. af gulli er raunverulega meira virði (dýr- ara) en 2480 kr., enda var skotið aftan við lögin bráðabirgðaákvæðum, sem ieystu bank- ann frá þeirri skyldu að innleysa seðla sína samkvæmt þessu verðhlutfalli. En þegar fyrsti seðlabankinn á íslandi, eða íslands- banki, var stofnaður 1903 og innleidd ís- lenzk gullmynt hér á landi, var þetta sama verðhlutfall ákveðið milli gulls og myntein- ingarinnar, krónunnar, og var þetta verðhlut fall þá raunverulegt, þar eð íslandsbanka bar skylda til að innleysa seðla sína i gulli, ef þess var krafizt, og gerði það. En þetla var sama verðhlutfallið, sem ákveðið hafði verið milli danskrar krónu og gulls með dönsku seðlabankalögunum frá 1875, en þau lög giltu einnig hér á landi. Á heimsstyrjaldarárunum og þar á eftir komst mikil ringulreið á peningamál öll og verðgildi peninga, bæði hér og annars stað- ar. Féll verðgildi peninganna, þ. e. a. s. kaupmáttur þeirra varð minni en hann hafði áður verið, þar eð vöruverð steig, og hið lögákveðna verðhlutfall milli gull* og peninganna varð óraunverulegt, enda hafði bankinn verið leystur frá þeirri skyldu sinni að innleysa seðla sína. Verðhlutfall- inu var samt haldið á pappírnum og er haldið enn, þótt raunverulegt verðmæti krónunnar, þ. e. a. s. kaupmáttur hennar á vörum, hafi breytzt, ýmist aukizt eða minnkað. Meðan ofangreint verðhlutfall milli krón- unnar og gulls var raunverulegt, þ.e.a.s. með- an krónan var i fullu gullgildi (var gull- króna) ákvaðst hlutfall hennar við aðrar myntir eða gengi erlends gjaldeyris eðli- lega eftir hlutfallinu á milli gullmagnsins í myntunum. í einum dollar var t. d. 3,7315 sinnum meira gull en í einni krónu, jafn- gengi dollars og krónu því 3,7315 og gengi dollars, mælt í íslenzkum krónum, því jafn- an kringum 3,73 kr. Þegar nú horfið hafði verið frá gullinnlausn seðlanna, vöruverð allt steig, og verðgildi krónunnar þannig rýrnaði, hlaut auðvitað gengi erlends gjald- eyris, t. d. dollara, að stíga. Verðrýrnun krónunnar gagnvart gulli mátti því mæla með því að reikna út, hversu mikið gengi einhverrar erlendrar gullmyntar hefði stigið miðað við jafngengið. Ef t. d. gengi dollars hefði tvöfaldast frá því krónan var i fullu gullgildi, en gullgildi dollars enn hið sama, þýddi það, að krónan væri fallin um helm- ing eða ofan í 50% af sinu fyrra gullgildi. Gilti auðvitað einu, hvaða erlend gullmynt yrði lögð til grundvallar slíkum útreikn- ingi. En nú er útreikningurinn orðinn talsvert flóknari, þvi að gullmyntirnar, sem áður var miðað við, eru nú ýmist alls ekki gullmyntir lengur, heldur hafa verið leyst- ar frá sínu fyrra ákveðna verðhlutfalli við gullið, svo sem pundið og frankinn, eða gamla verðhlutfallið hefir verið afnumið og annað nýtt ákveðið í staðinn, svo sem átti sér stað með dollarann. Fram til 19/4. KAUPSÝSLUTÍÐINUI 107

x

Kaupsýslutíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kaupsýslutíðindi
https://timarit.is/publication/1798

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.