Kaupsýslutíðindi - 24.04.1940, Page 4
193S voru 20,67 dollarár i einni únsu gulls,
en þó var þetta hlutfall afnumið, og dQll-
arinn látinn falla í verði miðað við gull
þar til 31/1. 1934, að nýtt hlutfall var á-
kveðið, og voru nú 35 dollarar í einni únsu
af gulli. Dollarinn hafði m. ö. o, verið felld-
ur ofan í 59,06% af sinu fyrra gullgildi. Gengi
dollarsins í öðrum myntum féll auðvitað
sem þessu svaraði. Ef gengi dollarsins i
íslenzkum krónum á því að notast til þess
að reikna út, hvert sé gullgildi íslenzkrar
krónu eða m. ö. o. hversu mikið íslenzka
krónan hafi fallið í verði miðað við gull,
siðan hún var i fullu gullgildi, þarf að
sjálfsögðu að taka tillit til þess, að sjálfur
dollarinn, sem miðað er við, hefir verið
felldur í verði miðað við gull, eða ofan
i 59,06%.
Að reikna út gullgengi krónunnar er að
finna, hversu margar gullkrónur jafngildi
100 pappírskrónum, en gullkróna er sú
króna, sem jafngildir 1:2480 kg. af skíru
gulli, eða m. ö. o. stendur í hinu lögákveðna
verðhlutfalli við gull. Gullgildi krónunnar
má þvi reikna út með því að miða við
gengi einhverrar gullmyntar, t. d. dollars,
en taka tillit til þess, að gullinnihald doll-
arsins hefir breytzt, síðan hlutfallið: 1 doll-
ar = 3,7315 gullkrónur var raunverulegt.
Er þá einfaldast að setja dæmið upp í
keðjureglu, og yrði hún þannig, ef miðað
er við meðalgengi dollars hér (meðaltal
kaup- og sölugengis) kr. 6,50:
x gullkrónur = 100 pappírskrónur, ef
6,50 pappirskr. = 1 $ eftir 31/1. ’34, en
35 $ e. 31/1. ’34 = 20,67 $ f. 19/4. ’33 og
1 $ f. 19/4. '33 = 3,7315 gullkrónur.
100 x 1 X 20,67 x 3,7315
100 pappírskrónur jafngilda þannig 33,90
gullkrónum, þ. e. a. s. gullgildi pappírs-
krónu er 33,90%.
Gullgildi krónunnar táknar þannig, hversu
mikið verðmæti hennar hefir breytzt gagn-
vart gulli frá því að hlutfallið: 1 kg. af
gulli = 2480 kr. var raunverulegt. En það
ber að taka skýrt fram, að þótt verðgildi
krónunnar gagnvart gulli hafi rýrnað svo
og svo mikið, er þar með engan veginn
sagt, að almennt verðgildi hennar, þ. e. a. s.
gagnvart vörum, og þar með kaupmáttur
hennar, hafi rýrnað að sama skapi. Þegar
pundið var leyst úr tengslum við gullið
og fellt um 40% gagnvart gullinu 1931,
var íslenzka krónan látin fylgja pundinu,
og féll þannig gullverð hennar að sama
skapi. Vöruverð steig hér hinsvegar ekk-
ert, þrátt fyrir þessa verðfellingu krónunn-
ar gagnvart gullinu. Kaupmáttur krónunnar
féll m. ö. o. ekkert og almennt verðgildi
hennar hélzt óbreytt, þótt gullgildi hennar
lækkaði stórum. Við gengislækkunina á
síðastliðnu ári lækkaði gullgildi krónunn-
ar auðvitað sem gengislækkuninni nam, en
vöruverð hækkaði hinsvegar ekki að sama
skapi, svo að þrátt fyrir lækkun gullgildis
krónunnar lækkaði almennt verðgildi henn-
ar litið. Eftir að stríðið skall á, hefir vöru-
verð hinsvegar' stigið mjög, kaupmáttur
krónunnar því minnkað allmikið og verð-
gildi hennar rýrnað, þótt gullgildi hennar
hafi verið óbreytt síðan í september síðast-
iiðnum, að farið var að miða krónuna við
dollarinn, sem er gullmynt, en ekki pundið,
svo sem áður hafði verið.
Hátt eða lágt gullgildi krónunnar gefur
þannig eiginlega ekkert til kynna um al-
mennt verðgildi hennar, sem fer eftir kaup-
mætti hennar á vörum, heldur aðeins,
hversu mikið verðmæti hennar hefir breytzt
gagnvart einni vöru, gullinu, siðaa 2480 kr.
jafngiltu 1 kílói af skiru gulli.
G. Þ. G.
-Klæðist Gefjnnarfotnm -
108
KA UPSÝSLUTÍÐINDI