Nýja skákblaðið - 01.11.1940, Qupperneq 3

Nýja skákblaðið - 01.11.1940, Qupperneq 3
NtJA SKÓKBLRÐIÐ 1. árgangur. Reykjavík, okt.—nóv. 1940. 5. tölublað. Taflfélag Reykjavíkur 40 ára STOFNUN FÉLAGSINS. Þegar ég var í Kaupmanna- höfn árin 1898—1900 á verzl- unarskóla, iðkaði ég mikið skák og var meðlimur í tafl- félagi þar. Þegar ég kom hingað til Reykjavíkur, sumarið 1900, voru hér margir góðir tafl- menn er ég kynntist strax og tefldi við. íþróttafélög voru hér engin, nema Skautafélagið, og var þeim ekki hugað líf. Mér fannst samt, að rétt væri að stofna hér taflfélag, og ræddi málið við móðurbróður minn, Sturla kaupmann Jónsson og síðan við Sigurð fangavörð Jónsson, en þeir voru þá beztu taflmenn bæjarins, og vorum við sammála um, að gera til- raun til að reyna hvert ekki væri auðið að stofna taflfélag. Við bjuggum út lista til að safna meðlimum á og síðan birtum við auglýsingu bæði í ísafold og Þjóðólfi. Þegar á fundinn kom, mættu 29 menn, er gengu í Taflfélag Reykjavíkur, en svo nefndum við félagið. í stjórn þess voru kosnir Sigurður Jónsson (for- maður), Pétur Zóphóníasson (ritari) og Pétur Pétursson bæj- argjaldkeri (gjaldkeri). Stofnendur félagsins voru (sem ég man eftir): 1. Pétur Zóphóníasson, 2. Sigurður Jónsson, 3. Sturla Jónsson, 4. Pétur Pétursson, 5. Friðrik Jónsson, kaupm., 6. Einar Benediktsson, skáld, 7. Björn M. Ólsen, rektor, 8. Indriði Einarsson, rithöf., 9. Jakob Jónss., verzlunarstj., 10. Ingvar Pálsson, kaupm., 11. Helgi Helgason, verzl.stj., 12. Júlíus Guðm.sson, kaupm., 13. Pétur Bogason, læknir, 14. Skúli Bogason, læknir, 15. Sturla Guðmundss., cand. phil.,

x

Nýja skákblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja skákblaðið
https://timarit.is/publication/1803

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.