Nýja skákblaðið - 01.11.1940, Page 8
riði Einarsson, og er sú skák
prentuð í Þjóðólfi 5. sept. 1902.
Næsta ár, 1903, tefldum við
Einar skáld Benediktsson. í
bæði skiptin voru mjög margir
áhorfendur. Ég efa ekki að
þetta hefði þótt hin bezta
skemmtun hefði það verið gert
á Alþingishátíðinni 1930 og tel
illa farið að svo var ekki. Vet-
urinn 1902—’03 dvaldi hér einn
af alþjóða skákmeisturum
heimsins, W. Napier blaðamað-
ur. Hafði hann teflt á alþjóða-
mótum, þar á meðal í Buffalo,
þar sem hann fékk 2. verðlaun,
en Pillsbury varð efstur. Tók
hann þátt í skákum í félaginu,
og mátti heita að hann væri allt
af reiðubúinn til að tefla. Var
það mjög gott fyrir okkur, og
lærðum við margir margt af
honum.
SKÁKSTYRKLEIKINN.
Ég hefi oft verið spurður að
skákstyrkleika okkar. Það er
afar erfitt að svara því svo rétt
sé. Við rituðum niður úrslit
allra skáka, sem við tefldum,
og við athugun á þeim kom
það fram, að ég hafði unnið yf-
ir 70 af 100 töflum, og hið sama
var enn 1913—’14. Ég hefi því
ekki annað að miða við en mig
sjálfan, og verð því að setja mig
á metaskálar, og skal ég reyna
að gera það samvizkusamlega.
Þegar ég var 1 Kaupmanna-
höfn, tefldi ég kappskák við
meistaraflokksmann, en hann
var að ég hygg ekki mjög ofar-
lega, en ég vann hann líka mjög
léttilega, og eins í lausaskák.
Ég tefldi talsvert við 3 meist-
araflokksmenn, og var fyllilega
jafnoki þeirra, og í kappskák,
er fjöldi tók þátt í, varð ég
langefstur. Ég hygg því að ég
hafi þá verið gjaldgengur með-
al beztu taflmanna Dana. Þeg-
ar ég kom heim, fannst mér ég
geta unnið hvern mann hér ef
ég hugsaði um skákina, nema
Sturla Jónsson, hann þurfti
sérstaka aðgæzlu, og það var
enginn tryggur móti honum,
því hann er ágætur cmobina-
tions-maður. Ég geri því ráð
fyrir, að beztu mennirnir hér
hafi verið fyrsta flokks menn
— nema Sturla. Eftir að félag-
ið hér var stofnað, þá fór þeim
fram, en þó ekki svo að það
breytti neinu. Rétt eftir að íé-
lagið var stofnað gekk Björn
Kalman málaflm. í það. Hann
tók miklum framförum, og var
munur okkar um 1904 mjög lít-
ill. 1905 fór hann til Canada,
og tefldi 1907—’08 (hafði þá
ekki farið fram) mikið við
skákmeistara Canada, íslend-
inginn Magnús Smith og var
NÝJA SKÁKBLAÐIÐ
70