Röst - 04.11.1940, Síða 3
R Ö S T
3
Bsiðið
í skolannm
Það hefir lengi verið talin tilfinnan-
leg vöntun á heitu og köldu baði hér
við skólann, sem nota mætti í sam-
bandi við leikfimi, bæði til hreinlætis
og aukinnar heilbrigði.
Skólanefnd hefir undanfarin ár lagt
til, að fé væri áætlað til þess að koma
því á fót, og bæjarstjórn samþykkt dá-
litla uphæð í því skyni.
En allir, sem um málið hafa fjallað,
hafa vitað það, að grundvöllur þeirra
framkvæmda er meira vatn en brunnar
skólans nú geyma, sem bæta mætti úr
að nokkru með því að byggja nýjan,
stóran brunn, til þess að treysta mætti
á, að vatnsmagn væri nægilegt, þótt
baðið væri notað allverulega eftir þörf-
um.
Á þessari aðalframkvæmd hefir
staðið fjárhagsins vegna. Og með því,
að ég bjóst við, að enn kynni að standa
nokkuð lengi á brunninum, þá kom ég
því til vegar, að fjárhæð sú, sem ætluð
var til baðs í skólanum á þessu ári var
notuð í sumar til þess að koma heitu
vatni í samband við baðtæki í klefa
þeim, er til þess var ætlaður.
Síðan höfum við svo veitt meiri
hluta bamanna ágætt ræstubað, einu
sinni í viku, í sambandi við fimleika og
imdir stjóm fimleikakennarans, Frið-
riks Jessonar. Hefir því verið vel tekið,
og er bömunum til ómetanlegs gagns
og ánægju.
En vegna misskilnings, sem ég hefi
orðið var við hjá ýmsum þeim, sem
nota fimleikasalinn af hálfu íþrótta-
félaganna og annarra utan bamaskól-
ans, vil ég skýra málið sem greinileg-
ast.
Með því að ekki er enn byggður við-
bótarbrunnur, þá er vatnsmagnið mjög
takmarkað, svo takmarkað, að varla er
hugsanlegt, að hægt verði að starf-
rækja baðið að þessu leyti fyrir bömin,
hvað þá í stærri stíl, ef nokkur veru-
legur kuldakafli eða þurrkatíð kæmi,
sem ætíð verður að gera ráð fyrir. Og
á meðan vatnsmagnið er svo takmark-
að, þá vænti ég, að allir láti sér skilj-
ast, að útilokað er að færa notkun
baðsins út fyrir barnaskólann, þar sem
ég geri ekki einu sinni ráð fyrir, að
unnt verði að halda uppteknum hætti
kenndu stúlkum sínum „munst-
ur“ heima og létu þær koma
með þau í skólann. Ég ætla
hér meS að bjóða henni að skoða
það litla safn, sem ég hefi afl-
að mér. Gæti það kannske leitt
til þess, að samvinna hæfist á
milli min og hennar, því að
sjálfsagt höfum við hvor í sínu
lagi hjálpargögn við kennsluna,
sem hin ekki hefir, því að ekk-
ert væri mér kærara en að
handavinnukennsla barna og
handavinnukennsla fullorðinna,
sem ég aðallega hefi haft með
höndum, væru sem nánast
tengdar hvor annarri.
Valgerður Bjamason
með bað bamanna allan veturinn. Því
þrátt fyrir nauðsyn baðsins, þá er þó
önnur nauðsyn vatnsins enn þá brýnni,
þar sem verið er með um 500 böm dag-
lega, svo sem til drykkjar, í salemin,
til ræstingar skólans o. s. frv.
Ég hefi átt tal um þetta við hr.
Þorst. Einarsson kennara og formann
íþróttaráðsins hér, og lagði ég fram
þá spurningu við hann, hvort íþrótta-
félögin myndu ekki vilja leggja fram
orku sína til þess að koma upp stórum
brunni, sem gera myndi það mikla
gagn, að nota mætti baðið í stærri
stíl, t. d. í sambandi við fimleika í-
þróttafélaganna. Leit Þ. E. á þetta,
eins og önnur framfaramál, með fullum
skilningi og góðum vilja, enda hafði
hann haft hið sama í hyggju, og mun
hann nú vera að vinna málinu gengi
með íþróttafélögunum.
Til frekari skýringar skal þetta tekið
fram:
Þegar miklar rigningar ganga, eink-
um þegar það á sér stað á þeim árs-
tíma, sem minnst starfsemi fer fram
í skólanuin, eins og t. d. átti sér stað
í sumar, þá fer óhemju vatn forgörðum,
sem safna mættí í nýjan brunn, þótt
magn þess sé ekki rannsakað að fullu.
En hinu má þó aldrei gleyma, aS þrátt
fyrir alla væntanlega brunna, verður
vatnið, sem af skólahúsinu fæst, þó svo
miklum takmörkum háð, að gera verð-
ur ráð fyrir sparsemi í meðferð þess
og algerri stöðvun á öllum böðum undir
mörgum kringumstæðum.
En notaðir skyldu allir möguleikar,
og bætt úr því sem bætt verður.
H. G.
Bíóin og börnin
Hér í bænum heyrast oft allháværar
raddir um það, að börnum sé leyft að
horfa á ljótar og spillandi kvikmyndir,
og er bamaverndamefnd einatt borin
þeim sökum, að hún vanræki það eftir-
lit, sem hún eigi að hafa með þessu.
Barnavemdarnefnd hefir borið af sér
þessar sakir, með því að benda á, að
hennar eftirlit sé ekki fólgið í öðra en
að fylgjast með því, að kvikmynda-
húsin fari eftir fyrirmælum ríkiseftir-
litsins, sem framkvæmt er í Reykjavík.
En auðvitað er það engin lausn á
málinu, þó að hægt sé að koma sér
undan ábyrgðinni, og ásaka aðra um
mistök eða vanrækslu.
Og ég álít að eftir þeim reglum, sem
nú gilda um eftirlit með kvikmyndum,
sé engum manni fært að framkvæma
það svo vel sé.
Ég legg þess vegna til, að þessum
reglum verði snúið við, þannig að í
stað þess, að nú em flestar myndir
leyfðar, en aðeins fáar bannaðar, þá
verði börnum (sem ekki eru í fylgd með
fullorðnum) bannaður aðgangur að
öllum kvikmyndasýningum, en að
undanþága frá því banni yrði veitt,
þegar um væri að ræða myndir, sem
að góðra manna yfirsýn teldust böm-
um hollar.
Ég geri ráð fyrir, að þó að margar
myndir séu þannig að ekki verði bein-
línis um þær sagt, að þær séu siðspill-
andi, þá séu þær svo lítils virði, að
þessi ráðstöfun geti engu tjóni valdið.
Steingrimur Benediktsson.
Líðandi stund
Almennir foreldrafundir
voru haldnir hér í bamaskólanum
27. sept. og 18. okt. sl. Rædd voru þar
ýmis vandamál, sem nauðsyn ber til
um nánari samvinnu milli heimila og
skóla en hingað til hefir átt sér stað.
Allmikil aðsókn var og þó eigi sem
skyldi. Svipaður fundur var haldinn
að Breiðabliki, sunnudaginn 6. október,
með aðstandendum gagnfræðanema.
Skólastjórar og kennarar viðkomandi
skóla beittu sér fyrir fundum þessum.
Óskandi er, að þessi frumspor til auk-
ins skilnings milli heimila og skóla
séu fyrstu vísar farsællar samvinnu
þeirra, sem láta sig uppeldismál varða.
Aðsókn að framhaldsskólum
er með mesta móti nú í vetur, auk
þess, sem allmargt ungmenna héðan
úr bæ hefir farið til framhaldsnáms
annars staðar á landinu.
Bókasafnið
Utlánstími í vetur:
Þriðjudaga kl. 8,30-10 e. h.
Fimmtudaga — 8,30-10 e. h.
Laugardaga— 5-7 e. h.
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIB
Yinnuhanskar
sterkir og ódýrir
%
Gefjnn
M.unið að panta
jölafötin
Hangikjöt,
frosið kjöt,
saltkjöt,
miðdagspylsnr.
ÍSHIJSIÐ
tímanlega.
Klæðsker av erkstæði
önnu Gunnlaugsson
LINOLEUM
nýkomið
Vöruhúsið
Skriftarnámskeið
fyrir fólk á öllum aldri, heldur undir-
ritaður hér í bænum innan skamms.
Nánari upplýsingar gefur
Fríðbjörn Benonysson
Hásteinsveg 4, sími 53.
Athygli foreldra skal vakín á 10 ára áætl-
un sr. Halldórs Jónssonar á Reynivöllum.
Húgmyndin er i pví fólgin, að leggja fé í
sparisjóðsbók, en innistæðu bókarinnar má
ekki hreyfa fyr en eftir 10 ár.
Mjög heppileg sparnaðaraðferð fyrir börn
og unglinga.
ÚTVEGSBANKI ISLANDS H. F.
Hitaflöiskur
aðeins kr. 4,25 stk.
]ST eytendaféla^ið
\