Sókn - 01.02.1940, Síða 1

Sókn - 01.02.1940, Síða 1
Ávarp, Fyrir nokkrum árum hól'u skólar landsins sókn móli á- lengisnautninni. Bindindisfélög í skólum voru stofnuð til að vinna að hindindi meðal þeirra æskumanua, er skólaua sóttu. Bindindisfélögum skólanna fjölgaði ört og cru nú í Heslum unglingaskólum, og svo æðri skólum landsins.starfandi bind- indisfélög. Til þess að treysta samstarfið milli hinna mörgu iélaga, var Samband bindindis- lélaga í skólum stofnað. Ákvað Sambandið að gera einn dag á ári að baráttudegi og valdi lii þess 1. febrúar og liefir ár hvert þann dag hafið baráttu í út- varpi, með fundahöldum og blaðaútgáfu fyrir framgangi bindindismálsins. Templarar hafa ekki haft neinn sérstakan dag lil sams- konar starfsemi, en hafa þó víða haft samstarf við bindindisfélög skólanna um starfsemi 1 .febrúar. í fyrsta skipti ætla ísfirzkir templarar að gera 1. febrúar að sínum degi, til baráttu móti hinni miklu óheillafylgju mann- anna, víndrykkjunni. Allar stúk- urnar á ísaflrði, og svo Bind- indisfélag Gagnfræðaskólans, taka þátt í því starfi, og er út- gáfa þessa blaðs einn liðurinn í starfinu. í kvöld verður samkoma í Alþýðuhúsinu, verða þar ræður fluttar og söngur. Aðgangur er ókeyp- is og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, og er þess vsenst að þar verði ekkert sæti óskipað. Við undirskriftasöfnun þá, er hér fór nýlega fram, undir á- skorun til ríkisstjórnarinnar, um lokun áfengisverzlunarinn- ar hér í bæ, skrifuðu um 80 —00 °/(, kjósenda undir áskor- nnina og sýndu þar með ský- lausan vilja sinn í því máli. En vilji meirihlutans hefir verið léttvægur fundinn og er því þörl' nýrrar baráttu og nýrra átaka. Allir þeir, er bindindismálum unna, verða að sameinast lil nýrrar sóknar móti ómenningu, víndrykkju og vínsölu. Þér, sem unnið framgangi bindind- ismálanna, og standið utan samlaka templara, gangið í stúkurnar og aukið álxrif þeirra. Beitum svo áhrifum vorum á aðra til starfa og notum hvert tækifæri til sóknar. Sköpum það sanna og jákvæða almennings- álit, að vansæmandi sé að ncyla víns og andstætt menningarleg- um þroska hvers einstaklings. Látum ei þá ómenningu spyrj- ast, að fleiri tugum þúsunda — já, hundrað þúsundum króna sé varið bér lil vínkaupa, meðan aðkallandi verkelni bíða óleysl, lil aukinnar atvinnu og til aukinnar menningar l’yrir alla íbúa þessa bæjar. Kjörorð okkar sé: ísafjörður vínlaus bær sem allra fyrst. Þ. B. Jón Jóhannsson: Hvert stefnir? Undanfarnar vikur hafa víða koinið fram allháværar raddir um það, að etla beri nú vöxt og viðgang bindindismálsins. Er það mjög að vonum, því að bæði má segja, að þjóðinni sé bráð hætta búin ef ekki tekst að draga verulega úr þeirri óhófsneyzlu á áfengi,sem nokkur hluti þjóðarinnar hefir tamið sér að undanförnu, og svo það, að ekki sýnist mikið samræmi í því að takmarka verulega kaup á brýnustu lífs- nauðsynjum um leið og áfengis er neytt í stærri stíl en nokkru sinni fyrr. Nýjasta og minnis- stæðasta dæmið um sókn bind- indismanna gegn áfenginu, er undirskriftasöfnun sú, er fram l’ór í vetur meðal kjósenda í bæjunum um.það, livort loka skyldi útsölustöðum áfengis- verzlunarinnar í kaupstöðun- um. Eins og kunnugt er, varð árangurinn sá, að mikill meiri- hluti kjósenda taldi lokun sjálfsagða og nauðsynlega. í sumum kaupstöðunum voru allt að t)0°/o kjósenda með lok- uninni. Þennan vilja kjósend- anna vissi Alþingi, þegar rætt var þar um frumvarp þeirra Finns Jónssonar, Péturs Otte- sens o. II., en samt sáu þessir háu herrar, meiri hluti alþing- ismannanna, sér l'ært að liafa þennan vilja fólksins að engu. Finnst mörgum það lítf skilj- anleg afgreiðsla á slíku máli sem þessu. Ekki má þó þessi afgreiðsla málsins verða til þess að lama vilja og draga ur starfi, sem miðar að útrýmingu eitur- lyfjanna, heldur bvöt til öíl- ugra átaka og farsælla starfa þessum málum til framþró- unar. í>að leikur ekki á tveim lungutn hvílíkur skaðvaldur áfengisneyzlan er andfegu og líkamlegu heilbrigði manna, enda eru dæmi þess deginum Ijósari. Heilsuleysi, fátækt, heimilisspilling, glæpir og ör- yggisleysi siglir óðfluga í kjöl- far áfengisneyzlunnar, enda á hún í þúsundum tilfella sterk- asta þáttinn í því, að lama og leggja í rústir marga góða eig- inleika í fari manna, sem hefðu getað orðið þeim og öðrum að ómetanlegu gagni. I>að er hryggileg staðreynd, að við Islendingar, sem erum fátækir og fámennir og búum við örðugan kost strjálbýlis og óblíðrar veðrátlu, höfum á undanförnum árum eytt til áfengiskaupa um þrjár og hálfa miljón króna árlega. Þetta eru geigvænlegar tölur, sem hljóta að vekja hvern góðan dreng til alvarlegrar íhugunar og hvetja til viðnáms gegn slíku athæfi. Hér er þó aðeins talið áfengi það, sem áfengisverzlun ríkis- ins hefir af hendi látið. Auk þessa er svo áfengi það, sem fengið er á annan hátt, svo og brennsluspíritus, sem árlega er seldur fyrir tugi þúsunda króna, og að langmestu leyti er drukk- inn. Hvílík feikna verðmæti þetta eru, verður ennþá ljós- ara ef við hugsum okkur, að þessu fé hefði verið varið til einhvers annars en áfengis- kaupa. Gerum ráð fyrir að byg'gðar hefðu verið úr stein- steypu 230 þriggja herbergja nýtízku íbúðir, og hver þeirra hefði kostað 15 000 krónur, en það mun vel ílagt miðað við verðlag á sl. ári. Útkoman verður sú, að allar þessar var- anlegu l)yggingar hefðu kostað 3,450,000 kr., eða nokkru minna en varið er til áfengis- kaupa á einu ári, sé miðað við fjögur árin l’rá 1935 til 1938. Sé nú reiknað með 5 manna fjölskyldu í hverri íbúð, liefðu 1150 manns getað nolið þessa. El' við nú öll árin hel'ðum var- ið þessu fé á sama hátt, liefði verið hægt aö bvggja 920 íbúð- ir, m. ö. o. liúsnæði fyrir 4000 manns. Tökum annað dæmi og gerum ráð fyrir, að þessu fé hel’ði verið varið lil kaupa á einhverjum brýnustu lífsnauð- synjum, t. d. kolum. Áður en verðhækkun varð á kolum á sl. sumri, kostuðu þau hér 48 krónur smálestin. Fyrir áður greinda árseyðslu til áfengis- kaupa, hefði verið hægt að fá með því verði um 73000 smá- lestir af kolum. Væri það álit- legar birgðir nú, þegar allir af eðlilegur ástæðum óttast enn- þá hækkandi verð á þessari vörutegund. A árinu 1939 seldi áfengis- útsalan hér í bænum áfengi fyrir 116 515 krónur. Er það um 11 000 kr. hærri upphæð, en árið áður. Geta menn sér til l'róðleiks athugað, hversu mikið af öðrum verðmætum hefði mátt kaupa fyrir þetta fé, t. d. báta, eins og b. f. Njörður hefir látið smíða. Hér verður það ekki gert. En þegar mér voru gefnar upp þessar tölur um sölu áfengisbúðarinnar, ílugu mér í hug þessar alkunnu Ijóðlínur Hávamála: »lítilla sanda, lítilla sæva, lítil eru geð guma«, og býst ég við, að líkt muni fleiri hugsa. Hér að ofan heflr með fáum orðum verið drepið á hið beina fjárhagslega tjón, sem áfengis- neyzlan hefir í för með sér. Er það þó aðeins önnur hlið þessa máls, og sú þýðingar- minni. Ótalin eru enn þau hin andlegu verðmætin, sem for- görðum fara, svo og það af- hroð, sem þjóðin geldur árlega og fram kemur í auknu fá- tækraframfæri, auknum sjúkra- kostnaði, spilltu samkvæmislífi, minnkandi sjálfsbjargarviðleitni o. 11. o. fl. Væri freistandi að tala nánar um þessa hlið máls- ins, en sökum takmarkaðs rúms, verður það ekki gert hér. Það mun nú raunar vera svo, að flestir, sem um þessi mál hugsa og gera sér fulla grein fyrir hversu þeim er komið, viðurkenna að á móti þessum ófarnaði beri að vinna, og fjölmargir munu leysa al' hendi mikið óeigingjarnl starf í þágu bindindismálsins. Tiler þó, því miður, allstór liópur manna, sem með tómlæti og kæruleysi horfir á meðbræður sína »fljóta sofandi að feigðar-

x

Sókn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sókn
https://timarit.is/publication/1806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.