Sókn - 01.02.1940, Blaðsíða 3

Sókn - 01.02.1940, Blaðsíða 3
SÓKN 3 Stórstúka Íslands lieíir gefið út ýmsar góðar bækur. Þar á meðal: Minningarrit góðtemplara, Alþýðleg sjálfsfræðsla, Bindindislireyfingin á íslandi, Bakkus konungur. Ennfremur bækur Æskunnar; sem allar eru úrvals barnabækur. Þessar bækur í'ást í Bókaverzlun Jónasar Tómassonar. þjóða, sem lítil skil kunna á réttu og röngu. Væntanlega kemur sú tíð, að íslenzkar stúlkur skipi sér í fylkingar- Ju jósti, í baráttunni gegn Bakk- usi, og leggi sitt lið til þess að áfengisbölinu létti af þjóðinni og nýjar kynslóðir rísi frjáls- bornar í anda og dáðríkar til starfa. En »sé að drepinu lilúð, visnar heillirigt líf og liefndin grær á þess leiði«. Kona. Skólar og bindindi. Fyrir nokkrum árum stund- aði ungur maður nám í Reykja- vík. Framtíðin blasti við honum björt og fögur. Þessi ungi mað- ur var gæddur frábærum gáfum og námshæfileikum, og við hann voru tengdar hinar björtustu framtíðarvonir. En svo tók liann upp á því að reykja sér til afþreyingar, og brátt var hann orðinn svo, að hann var daglegur gestur á alræmdustu drykkjukrám Ileykjavíkur. Þetta dæmi færir okkur heim sannin um það, að allra mestu hæfileikar og beztu gáfur mega sín einkis, þegar áfengið er annarsvegar. Hver maður getur sett sig í spor þess skólastjóra og þess kennara, er rekst á nemanda sinn dauðadrukkinn. Og hvern- ig álit fær svo sá skóli, er hefir þannig nemendur innan veggja sinna? Því reyni ég ekki að lýsa. Eg læt þig einan um það lesandi góður. Þetta litla dæmi, er ég gat um í upphafi þessara lína, er talandi vottur þess, að livorki andlegt atgjörvi, menntun eða lífsstaða eru nægilega sterkar varnir gegn árásum áfengis- nautnar. Einungis sterkur vilji og einlægur ásetningur mega sín í baráttunni gegn áfenginu. Og hversu mikinn álitshnekki bíður ekki sá skóli, er liefir innan vcbanda sinna nemend- ur, er eyða frístundum sínum í það eitt, að sitja með ein- hverjum vinum sínum að þjóri, í stað þess að lesa bækur sér lil fróðleiks og skemmtunar eða iðka íþróttir, sér og öðrum til gleði ? En ég ælla að minna þig á, nemandi góður, að þú getur l'orðast áfengisbölið, aðeins el' þú villt og kærir þig um. Til er máltæki, sem segir, að brennl barn forðist eldinn. Áður en þú leggur út í lífsstarf þitt skaltu brenna þig á ál'enginu. Ekki með því að smakka það sjálfur, lieldur brenna þig á þeim eldi cr drukkinn maður kveikir. Ef þú einhverntíma átt eftir að mæta drukknum manni á förnum vegi, þá skaltu brenna þig á þeim eldi eymdar og volæðis, er hinn drukkni mað- ur hefir kveikt, forðast hann. Því, eins og máltækið segir, liafir þú brennl þig, þá forð- astu eldinn. Og að lokum. Hafðu alltaf hugfasta þessa gullvægu lífsreglu: »Eins og maðurinn sáir, mun hann og uppskera.« Einar H. Eiriksson. (Nemandi i gagnfræðaskólanum.) Áfengisverzlunin, í siðuðu þjóðfélagi ætli að vera svo, að liver þegn ynni þarft verk og helzt við sitt hæfi. Allt starf stjórnenda ætti að stefna í þessa átt. Allra sízt ætli það að koma fyrir, að sjálf stjórn landsins léti vinlia þvert gegn þessu. Hjá okkur er þó svo, þar sem er Áfengisverzlun ríkisins og starfræksla hennar. Með starfrækslu verzlunar- innar er með ráðnum hug otað að mönnum eiturefni og hefir þegar bakað landsmönnum og þjóðarheildinni ó m e t a nlegt tj ó n. Forstöðumaður verzlunarinn- ar er dugnaðarmaður, fyrrum áhugasamur ungmennafélagi og fleira vel gefið. Ault forslöðumannsins eru í starfsliði verzlunarinnar margir velhæfir menn og sumir al- kunnir að gáfum. Betra væri að fá þessum mönnum annað starf við þeirra hæfi, eða ef þess er eigi kostur að senda þá út á landsbyggð- ina til að vinna að í'æktun landsins, sem mikil þörl' er á. Ekki er bugsanlegt að þeim væri óljúfara að vinna heiðar- lega sveitamannsvinnu, en það starf er þeir nú hafa. Bezt væri að í landinu væri engin verzlun með áfengi. Ef það er svo, að ríldð verði að hafa þessa verzlun vegna milliríkjasamninga, ætti bún að vera í sem minnstu broti að hægt er. Til starfrækslu verzlunarinn- ar ætti að velja lftilhæfa menn fyrir lítil laun. Forystumenn þjóðarinnar yrðn þá að leggja það á sig að finna ráð svo Iiægt yrði að færa til tekjur og gjöld ríkis- ins, svo arður af áfengisverzl- uninni mætti hverfa sem tekju- liður á ríkisreikningnum. S. Fyrsti febrúar. Baráttudagur bindindismanna verður af bindindisfélögum bæj- arins haldinn hálíðlegur með skemmti- og útbreiðslufundi í Alþýðuhúsinu kl. (S'/a e. h. Dagskrá: Ávarp. Guðm Sveinsson. Kórsöngur templara. Fyrirlestur. lvr. Arinbjarnar. Barnasöngur (Börn úr Glóbrún) Ræða. Jens Hólmgeirsson. Kvikmyndir. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Nefndin. Sæktu ekki gleði þína í áfenga drykki. Eg hefi spurt marga menn, eldri og yngri, hvers vegna þeir neyti áfengis, og svörin hafa verið mjög mismunandi. Sumir segja, að þeir verði svo fjörugir og kátir .— til í allt. Þetta er það svarið, sem mest hefir vakið athygli mína. Það er ömurlegt, að menn og' konur, sem ætla sér á einhver mannamót, dansleik eða annað slíkt, skuli þurfa að færa þess- um óviðfeldna vínguði fórn, og kaupa með henni dýru verði gleði sína litla stund, sem endar svo oft með því, að þeirra mannlegi máltur hverf- ur með öllu, og þessi fallvalta gleði verður allt í einu að hálfgerðri dauðastund, því þótt þeir að vísu vakni lil lífsins aftur, þá er lífsfjör og þróttur svo lamaður eftir hin banvænu áhrif þessa deyfilvfs. Hver rétt hugsandi maður á að stuðla að því, að þessi Svartidauði menningarleysis og vesalmennsku verði gerður út- lægur úr þjóðlífi voru. Þetta er það, sem Góðtemplarar hafa unnið að um marga áratugi. Þá hafa ýms félög, sem byggð eru upp af æskulýðnum, einnig hafið baráttu gegn áfengisnotk- uninni. Má þar til nefna Ung- mennafélög, Bindisfélög í skól- um og Yökumenn. En mikið vantar á, að fylkingin sé ennþá nógu stór og sterk, því þrátl fyrir allt, sem unnið hefir ver- ið lil styrktar bindindismálinu, hefir Bakkus enn þann dag í dag tælt marga góða menn og konur í sína óhamingjugröf og hrundið mörgum þeirra til fulls út úr mannheimi. Það er ve- sæll þjóðarbúskapur, sem þarf að afia sér tekna með því að troða slíkri ríkisútgáfu upp á þegna sína, sem áfengisverzl- unin er, og viðskiptamenn þessarar stofnunar fá það svo í kaupbæti.eftirað hafa kannske altæmt pyngju sína í afengis- búðinni, að verða oft lokaðir undirlásfangahússins eða Litla- lirauns, eins og óbótamenn. Við templarar og aðrir bind- indismenn mótmælum þessu, og hrópum allir: burt með slíkt þjóðarástand. Það skyldi því enginn sækja gleði sína í áfenga drykki. Þeir menn og konur, sem neyta áfengis, ættu að endurskoða vel afstöðu sína til þessa máls og athuga, hvort þeir ekki vilja hverfa frá notk- un þess og áhrifum og gerast liðsmenn í þeim félagssamtök- um, sem vinna að útrýmingu þessa vágestar. Sýnið drengi- legan þegnskap og sameinist í baráttunni gegn honum. Þið styrkið með því sjálfstæði okkar fámennu þjóðar. Heilir til verka. Páll Jánsson. Óvinur lífsins. Er haustið kemur, fellir allur gróður sumarskrúð, minnsta blómið á akrinum og öflugasti stórviður skógarins. Næðingar og stormar blása um heimkynni mannanna. Loks kemur vetur og spennir allt gróandi líf heljargreipum. Næsta lík áhrifum næðings og kulda á gróandi náttúru eru áhrif áfengis á einstaklingana og samfélag þeirra. Allir liafa eilthvað takmark, sem þeir stefna að með starfi sínu og lífi. Áfengið dregur úr viljaþrcki og lamar starfsþrótt. Alfir vilja hafa skarpa dóm- greind. Áfengið sviftir menn vitinu, svo þeir geta eigi greint rétt frá röngu. Allir vilja vera heilsugóðir, fallegir, glaðir. Áfengið spillir heilsunni, af- skræmir fegurð, breytir gleði í sorg. Allir vilja eignast góða vini, starfsfélaga. geðfellt starf. Áfengið eykur úlfúð, eyði- leggur starf og starfsfrið. Eins og kuldinn að lokum jafnvel drepur rætur trésins svo það visnar og deyr, þannig getur áfengið líka heltekið ein- staklinginn svo, að liann slepp- ur aldrei úr klóm þess. Þjóðfélag manna, er ofur- seldir eru áfengisnautn, mun líða undir lok. Allir ættu því að vera sam- taka, að útrýma óvini lífsins, áfenginu. S.

x

Sókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sókn
https://timarit.is/publication/1806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.