Heimdallur - 20.01.1954, Síða 3

Heimdallur - 20.01.1954, Síða 3
HEIMDALLUR 3 Svo elskuðu þeir .... FIMMTUDAGINN 14. jan. birtist i Tímanum grein um bæjarstjórnar- kosningarnar í Reykjavík eftir Vig- fús Guðmundsson gestgjafa. Grein þessi var ákaflega hógvær og elsku- leg, eins og höfundarins var von og vísa; hún virðist einkum samin til að sýna. Reykvíkingum fram á, hvað fólkið á lista Framsóknarflokksins hér í borg sé af góðu kyni og hafi þótt efnilegt á æskuárum og er sannarlega mjög ánægjulegt tii þess skýrði, hver störf hann vinnur í fjár- málaráðuneytinu og hver laun hann þiggur fyrir þau. Enginn getur sagt, að ég sé þar ó- sanngjarn í vali, að bjóða mig, dæm- isgerða fígúru bitlingasnápanna, að Tímans sögn, til samanburðar við sjálfan postulann Svein, sem svo skel- egglega hefur barizt gegn spilling- unni og bitlingunum. Enginn þarf að ímynda sér, að slíkur maður hafi þeg- ið bitlinga! Að lokum vil ég svo vænta þess, aö Sveinn Vettvangsritstjóri sýni þann manndóm að játa það hreinskilnis- lega og opinberlega, að allar hans fullyrðingar um mig í margnefndri grein eigi sér enga stoð í veruleik- anum og séu samdar af honum sjálf- um, og að hann hafi sett grein þessa á prent í magnþrota reiði yfir því, að Heimdallur skyldi leyfa sér að gefa það lítillega í skyn, að sennilega væri ekki úr vegi að byrja hreinsun- ina við bitlingajötuna á því, að draga úr skrifstofukostnaði ríkissjóðs með því t. d. að fækka um einn mann í íjármálaráðuneytinu, og yrði þá auð- vitaö sá fyrir valinu, sem þar var bætt við fyrir nokkru, án þess að verulegt verkefni fyndist þó fyrir hann þar. Halldór Þ. Jónsson. að vita með fullri vissu, þótt auð- vitað hafi engum dottið í hug hið gagnstæða. Þarna er það staðfest, að t. d. hafi einn frambjóðandi flokksins verið mikils metinn af skólastjóra í menntaskóla og eigi auk þess framúrskarandi heiðarlegan og reglusaman embættismann að föður, annar hafi á unglingsárum lagt allra mest á sig — fyrir þó sáralítið kaup — við að skrifa í framsóknarblað, þriðji sé prestsdóttir úr Skagafirði og hafi lengi verið prestsfrú í Borg- arfirðinum, og svo mætti lengi telja. Sá fiokkur er ekki illa staddur, sem á slíka að. Og þótt ekki sé beinlínis sýnt fram á að þetta fólk varð tram- sóknarmenn, er það sjálfsagt af hæversku, sem höfundur ræðir ekki svo augljóst mál. Annað er það, sem gerir greinina aðlaðandi og frábrugðna öðrum blaðaskrifum í þessari óvægnu kosn- ingabaráttu. í henni er skýrt tekið fram, að á hinum listunum öllum sé einnig margt gott fólk. Þá dyggð að láta andstæðinga sína njóta sann- mælis, er vart lengur að finna nema í fornum bókum, það er einstaklega óvænt gleði að finna hana í síðasta tölublaði Tímans. En Vigfúsi hefur hlotnazt sú hamingja að sjá hið góða í manninum, hann finnur, að hann er hjá góðu fólki og fer ekki með það sem launungarmál. Og þá er ótalið hið þriðja og jafn- framt hið mikilvægasta í grein hans; aðeins ein setning en þessi setning er líka lykillinn að Skilningi á allri framkomu Framsóknarflokksins í bæjarmálum Reykjavíkur. Hún er svohljóðandi: ,,Á undanförnum tveimur ára- tugum, þegar ég hef dvaliti yfir skemmri eða lengri tíma í Reykja- vík á vetrum, hefur starfið stundum beinzt að almennum málum og þá einnig stundum að bæjarstjórnar- kosningum, þeg'ar þær hafa verið á dagskrá". Á yfirborðinu segir þessi setning ekkert annað en það, áð Vigfús gest- gjafi hafi undaníafná týo árátúgi oftlega dvalið í Reykjavík að vetrar- lagi og þá látið Reykvíkinga njóta starfskrafta hans við almenn mál, þar á meðal bæjarstjórnarkosning- ar. Og það er ekki eins og Reykvik- ingar hafi þurft að biðja um þessa aðstoð, sei, sei, nei. Hin sanna hjálp- arhönd er sú, sein kemur óbeðin til liðs og lætur ekki vanþakklæti heimsins aftra sér frá góðverkunum. Vigfús hefði sjálfsagt getað skvrt frá því, að oft hafi liðveizla hans vefið launuð mótþróa og jafnvel beinum fjandskap, en sem sannur höfðingi ber hann þann harm r hljóði óg læt- ur Reykvíkinga ercki gjalda ' glam- skyggni þeirra. En þetta á einnig við um marga aðra framsóknar- menn. Á undanförnum áratugum hafa Reykvíkingar kynnzt æ fleiri og fleiiú framsóknarmönnum, héðan og þaðan af landinu, sem allir elsk- uðu svo Reykjavík. að þeir yfirgáfu frændur og óðöl og' fluttu i borgina, sumir um stundai’sakii', eins og t. d. Halldór frá Kirkjubóli, aðrir að fullu og öllu, eins og t d. Hannes frá Undirfelli, og oft í þéim eina til- gangi að aðstoða Reykvíkinga við almenn mál, þar með taldar bæjar- stjórnarkosningar, þegar þær hafa verið á dagskrá. Mörgum hefui það verið mikil fórn að yfifgefa æsku- stöðvar og vini og setjast að meðal þess fólks, er fyllir að mestu leyli flokk andstæðinga, í því skyni að gefa því holl ráð fyrir sáralítið kaup. — En köllun sinm verður hver og einn að hlíða. Og þótt sumir þessara

x

Heimdallur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/1807

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.