FLE fréttir - 01.11.1979, Page 1
FLE FRÉTTIR
Útgefandi:
Félag
löggiltra
endurskoðenda
2. árg. 4. tbl. november 1979.
HVAÐ ER FRAMUNDAN.
Fréttablað FLE hefur nú komið út i tvö ár. Þetta form virðist henta mjög
vel til þess að flytja félagsmönnum fréttir af félagsstarfinu. Nýskipuð
stjórn FLE hyggst þvi halda útgáfu blaðsins áfram með svipuðu sniði og
áður og mun ritari félagsins, Þorvaldur K. Þorsteinsson, hafa umsjón með
útgáfunni fyrst um sinn.
Skattamalm: A síðasta ari hefur skattamálin borið hæst allra málaflokka hjá
félaginu og er þá skemmst að minnast námsstefnu um þau 23. og 24. nóvember sl.
Enn er ýmislegt óljóst í þessu efni enda voru lög nr. 40/1978 algjör umbylting
á þessum víðamikla lagabálki.
Á næsta hádegisfundi, miðvikudaginn 9. janúar n.k. mun Jón Guðmundsson,
námskeiðsstjóri rikisskattstjóraembættisins, gera félagsmönnum grein fyrir
þvi starfi sem nú er í gangi hjá embættinu við frágang eyðublaða og leiðbein-
andi reglna varðandi framkvæmd laganna.
Reikningsskil: í nýju hlutafélagalögunum sem þegar eru í gildi að því er
varðar reikningsskil, eru nokkuð ítarleg ákvæði um innihald ársreikninga
hlutafélaga. Fyrstu ársuppgjör, sem taka verða mið af þessari löggjöf eru
framundan og þvi er fyllilega tímabært að taka þessi mál föstum tökum.
Félagið mun þvi efna til sérstakrar námsstefnu um reikningsskil að Hótel Esju
föstudaginn 18. janúar n.k. Reikningsskilanefnd FLE mun annast hina faglegu
hlið námstefnunnar og taka til meðferðar form ársreikningsins með tilliti
til laga um hlutafélög og bókhaldslaga. Þá verður reynt að taka afstöðu til
þess hvort eða að hve miklu leyti beri að láta hin nýju lög um tekjuskatt og
eignarskatt hafa áhrif á reikningsskilin. Stefnt er að því að senda félags-
mönnum efnið til skoðunar fyrir námstefnuna.
í reikningsskilamálum blasir við okkur annað verkefni ekki smærra í sniðum
en það sem er til meðferðar á námstefnunni, en það er áhrif verðbólgunnar á
reikningsskilin. Mönnum er nu orðið ljóst, að hin hefðbundnu reikningsskil
gefa alls ekki glögga mynd af rekstri og afkomu fyrirtækja. Þessi reiknings-
skil geta því verið villandi og leitt til rangrar ákvarðanatöku.
Til þess að störf okkar á þessu sviði séu einhvers virði þurfum við því
að taka á þessu máli og reyna að finna leið til leiðréttingar. Nágrannar
okkar í Evrópu, þar sem verðbólgan er í kringum 10%, ræða þessi mál af mikilli
alvöru, hvað þá um okkur?