FLE fréttir - 01.11.1979, Síða 2

FLE fréttir - 01.11.1979, Síða 2
Endurskoðun: í hinum nýju lögum um hlutafélög eru nú í fyrsta sinn ákvæði um það, að ákveðin félög skuli endurskoðuð af mönnum með þekkingv: á þessu sviði. Þær raddir hafa heyrst að þessi ákvæði skapi löggiltum endurskoðendum ákveðin forréttindi. Ekki má þó gleyma því að vandi fylgir Vegsemd hverri og þær skyldur sem þessi ákvæði leggja okkur á herðar eru verulegar. T.d. segir í 86.gr. laganna, "endurskoðendur skulu í samræmi við góða endurskoðunarvenju endurskoða ársreikninginn" o.s.frv. Hvað er þá "góð endursköðunarvenja"? Endurskoðunarnefnd FLE er þegar búin að vinna mikið starf, sem að gagni má koma til þess að undirbúa okkur fyrir það að takast þessar skyldur á herðar. Félagið hefur þegar gefið út fyrsta staðal nefndarinnar um framkvæmd endurskoðunar og staðall nr. 2, um áritanir, var lagður fyrir á nýloknum aðalfundi í tillöguformi. En betur má ef duga skal. Ákvæði hlutafélagalaganna um endurskoðun taka gildi 1980 og tryggja þarf að löggiltir endurskoðendur rísi undir nafni, sem "menn með þekkingu á þessu sviði". Kristinn Sigtryggsson. AÐALFUNDUR 1979. Aðalfundur félagsins var haldinn 24. nóvember að Hótel Sögu, og sátu fundinn 59 félagsmenn. Ólafur Nilsson, formaður félagsins setti fundinn, bauð fundarmenn velkomna og minntist látins félaga. Bað hann síðan Eyjólf K. Sigurjónsson að taka við fundarstjórn. Formaður félagsins flutti skýrslu stjórnar sem jafnframt var dreift meðal fundarmanna. 1 skýrslunni kom m.a. fram að haldnir voru 8 hádegisfundir á starfsárinu auk námstefnu og sumarráðstefnu. Sagt var frá útgáfustarfsemi og gerð grein fyrir erlendu samstarfi. í félaginu eru 111 félagsmenn. Á árinu lést einn félagi en 3 gengu í félagið. 1 forföllum gjaldkera, gerði Kristinn Sigtryggsson grein fyrir ársreikningi félagsins. Samkvæmt rekstrarreikningi var tekjuafgangur kr. 559.127,- Eigið fé samkvæmt efnahagsreikningi nam kr. 23.327.080.- Fastanefndir félagsins, endurskoðunarnefnd og reikningsskilanefnd fluttu skýrslur um störf sín og einnig gerði endurmenntunarnefnd grein fyrir störfum sínum. Á fundinum lagði endurskoðunarnefnd fram 1. tillögu að staðli fyrir áritanir. - 2 - FLE FRETTIR PÓSTHÓLF 945 — 121 REYKJAVÍK

x

FLE fréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.