FLE fréttir - 01.11.1979, Side 4
Stjórnin hefur skipað ritnefnd en eftir er að ganga frá skipun endur-
menntunarnefndar og skemmtinefndar. Aðrir embættismenn voru kjörnir á
aðalfundi eða sitja í nefndum samkvæmt lögum félagsins.
Félagsstarfið.
Verkaskipting stjórnar: Á fyrsta fundi stjórnarinnar skipti hún með sér
verkum. Varaformaður er Gylfi Gunnarsson, ritari Þorvaldur K. Þorsteinsson,
gjaldkeri Sigurður Tómasson og meðstjórnandi Lárus Halldórsson.
Þá hefur verið skipað í nefndir eins og getið er um á öðrum stað í blaðinu.
Námstefna um skattamál: Félagið efndi til námstefnu um lög nr. 40/1978 um
um tekjuskatt og eignarskatt í Glæsibæ og Hótel Sögu dagana 23. og 24. nóv.
s.l. Þar fluttu erindi:
Valdimar Guðnason, löggiltur endurskoðandi
- Skattlagning einstaklinga.
Ævar ísberg, vararíkisskattstjóri
- Drög að nýju framtalseyðublaði.
Atli Hauksson, löggiltur endurskoðandi
- Skattlagning atvinnurekstrar, endurmatsreglur,
fyrningar og söluhagnaður.
ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi
- Skattlagning atvinnurekstrar, fjármagnskostnaður, vextir^ .
verðbætur, gengismunur og tekjufærsla vegna verðbreytinga.
Síðari dag námstefnunnar fóru fram pallborðsumræður og voru þeir ólafur
Nilsson, Atli Hauksson, Valdimar Guðnason, Atli Hauksson, Sigurbjörn
Þorbjörnsson, ríkisskattstjóri og Garðar Valdimarsson, skattrannsóknárstjóri,
á palli og stjórnaði Sveinn Jónsson umræðunum.
Þátttaka var mjög góð, en 92 félagsmenn tóku þátt í námstefnunni.
Hádegisfundir: NÓvemberfundurinn var haldinn 7. nóvember. Dr. Pétur Blöndal,
forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, flutti erindi um málefni lífeyris-
sjóða og hvaða kosti löggiltir endurskoðendur ættu í þeim efnum og svaraði
fyrirspurnum. Fundinn sátu 30 félagsmenn.
4