Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1987, Blaðsíða 182
168
12. gr.
Borgarstjórn afgreiðir mál við eina umræðu nema hina árlegu
fjárhagsáætlun borgarinnar, ársreikninga og reglugerðir, sem hljóta skulu
staðfestingu ráðherra.
Um þessi mál skulu fram fara tvær umræður og liða ein vika hið skemmsta
milli umræðna.
13. gr.
Atkvæðagreiðsla fer þannig fram, að borgarfulltrúi réttir upp hægri
hönd. Nafnakall skal hafa, ef forseti ákveður, borgarstjóri óskar eða
fjórir borgarfulltrúar hið fæsta. Við nafnakall greiða borgarfulltrúar
atkvæði eftir skrá um borgarfulltrúa i stafrófsröð. Nöfn varafulltrúa skal
bæta á skrána i réttri röð i stað nafna þeirra, sem fjarstaddir eru.
Hlutkesti ræður á hverjum byrja skal. Við nafnakall er borgarfulltrúa
skylt að greiða atkvæði, nema hann færi rök fyrir undanfærslu sinni, er
forseti metur gild. Ef borgarfulltrúi vill ekki una úrskurði forseta, má
hann skjóta úrskurðinum til borgarstjórnar, sem sker úr án umræðna.
14. gr.
Hver borgarfulltrúi, sem taka vill til máls, skal óska heimildar
forseta.
Að jafnaði skulu menn taka til máls i þeirri röð, sem þeir hafa kvatt
sér hljóðs. Heimilt er að vikja frá þessu, ef um er að ræða borgarstjóra
eða framsögumann svo og borgarfulltrúa, sem gera vill stutta athugasemd eða
leiðrétta ummæli um sjálfan hann.
Ef tveir eða fleiri kveða sér samtimis hljóðs, ákveður forseti i hvaða
röð þeir tala.
Borgarfulltrúi skal vera i ræðustól, meðan hann talar, nema forseti
leyfi annað.
Borgarstjórn getur heimilað, ef 2/3 borgarfulltrúa samþykkja, að maður
utan borgarstjórnar megi tala á borgarstjórnarfundi.
15. gr.
Borgarfulltrúi skal beina máli sinu til forseta.
Framsögumaður má tala þrisvar við hverja umræðu máls, en aðrir
borgarfulltrúar tvisvar. Borgarfulltrúa er þó heimilt að taka oftar til
máls til að bera af sér ámæli eða gera stutta athugasemd um fundarsköp.
Ekki má lesa upp prentað mál, nema forseti leyfi.
16. gr.
Ef forseti telur umræður dragast úr hófi fram, getur hann lagt til að
ræðutimi hvers borgarfulltrúa megi ekki fara fram úr ákveðinni timalengd
eða umræðum hætt.