Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1987, Blaðsíða 190
176
Þegar kjörtími nefndar er óákveðinn, skal litið svo á að umboð
nefndarmanna falli niður, þegar kjörtimi borgarstjórnar er á enda, nema um
sé að ræða nefnd, sem fengið hefur til úrlausnar ákveðið og afmarkað
verkefni. Þá skal litið svo á, að starfi hennar ljúki fyrst, er verkefnið
er til lykta leitt.
Nefndir borgarstjórnar geta ákveðið að efna til funda með borgarbúum,
ibúum einstakra hverfa, félögum eða hagsmunahópum öðrum, þegar þær hafa til
meðferðar mál, sem eðlilegt þykir að fjalla um á þann hátt, áður en þau eru
afgreidd i viðkomandi nefnd.
VIII. KAFLI
Um starfsmenn borgarinnar.
39. gr.
Borgarstjórn ræður forstöðumenn og aðra yfirmenn stofnana og deilda og
veitir þeim lausn eftir þvi, sem nánar segir i samþykkt þessari, nema vald
til sliks sé að lögum fengið öðrum aðilum eða á annan veg mælt fyrir i
reglugerð um sérmál tiltekinnar stofnunar. Borgarstjórn getur falið
borgarráði að skipa i ákveðnar stöður.
Stöður skulu að jafnaði auglýstar til umsóknar, en heimilt er þó
borgarstjórn (borgarráði) að ráða i stöðu án slikrar auglýsingar.
Borgarráð getur ákveðið, hver almenn skilyrði skuli gilda um ráðningu i
stöður hjá borginni, svo og sérskilyrði, er gilda skuli um ákveðnar stöður.
Um réttindi og skyldur starfsmanna borgarinnar gilda ákvæði laga
nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna rikisins eftir þvi, sem við
getur átt, nema annað sé sérstaklega ákveðið i samþykktum borgarstjórnar,
sbr. reglugerð um réttindi og skyldur starfsmanna Reykjavikurborgar frá
7. desember 1967 með siðari breytingum.
Borgarráð getur sett starfsmönnum erindisbréf og kveðið þar á um
starfssvið þeirra.
Skylt er starfsmönnum að hlita breytingum á starfssviði sinu, enda
missi þeir einskis af launum við þá breytingu.
Ákvæði til bráðabirgða:
Breytingar á kjöri nefnda eða ráða koma til framkvæmda að loknum
borgarstj órnarkosningum 1986.
Þrátt fyrir ákvæði um kjör fimm fulltrúa i heilbrigðisráð,
heilbrigðismálaráð Reykjavikurlæknishéraðs og barnaverndarnefnd skal kjósa
sjö fulltrúa og jafnmarga til vara þar til breytt hefur verið ákvæðum laga,
sem kveða á um fjölda kjörinna fulltrúa.