Árbók Reykjavíkurborgar - 01.11.1991, Side 81
BYGGINGARSTARFSEMI
í þessum kafla eru tölur um fjölda íbúa og íbúða bornar saman á
ýmsa vegu, en rétt þykir að gera grein fyrir, að tölum um fjölda
ibúða ber ekki alls staðar saman. Ástæða þess er sú, að fjöldi
ibúða i Reykjavik er fundin með þremur mismunandi aðferðum,
fasteignamati, talningu brunatryggðra ibúða og framreikningi
byggðum á fjölda fullgerðra ibúða á liðnu ári. Ljóst er að
framreiknaður fjöldi ibúða verður aldrei nákvæmur, þar sem ekki er
tekið tillit til breyttrar nytingar ibúða og úreldingar.
Með samanburði milli ára má sjá að nokkru þá þróun, sem orðið
hefur á liðnum árrun. í grein Bjarna Reynarssonar, yfirdeildar-
stjóra Borgarskipulags Reykjavikurborgar, um aðalskipulag Reykja-
vikur 1984 til 2004, sem birtist i Árbók Reykjavikur 1989, segir
meðal annars um uppbyggingu innan núverandi byggðar:
"Áætlað er að á timabilinu 1984-1994 verði byggðar 1.300 nýjar
ibúðir vestan Elliðavogar. Stærstu svæðin eru við Meistaravelli,
Grandaveg, Þverholt, á Rauðarárholti, i miðbænum og við Skúlagötu.
Uppbyggingu verður ekki lokið á tveimur siðasttöldu svæðunum árið
1994 að því er talið er. Ennfremur er ráðgert að Grafarvogs-
hverfin þrjú, Ártúnsholt og Selás verði að fullu byggð fyrir mitt
skipulagstimabilið.
Uppbygging miðbæjarstarfsemi verður aðallega i miðborginni,
Kringlunni og Mjóddinni. Skipulagsvinna i Miðbænum, Gamla bænum,
Skúlagötu og Laugavegi miðar að þvi að efla Miðbæinn og gera
verslun þar samkeppnishæfa við stórmarkaði og verlsunarmiðstöðvar
á höfuðborgarsvæðinu. í Mjóddinni er i byggingu stórt miðhverfi
er þjóna mun öllum Breiðholtshverfunum. Likur eru á þvi að
miðhverfin, Kringlan og Mjóddin, verði nær fullbyggð um 1994.
Einnig er ætlunin að byggja upp verslunar- og þjónustukjarna í
Seljahverfi, Ártúnsholti og Selási.
Meginuppbygging atvinnuhúsnæðis verður i austurhluta borgarinnar.
Búist er við að Ártúnshöfði, Ártúnsholt, Borgarmyri og Smálönd
verði nær fullbyggð um 1994. Talsverð uppbygging er fyrirhuguð á
nokkrum minni svæðum i borginni, s.s. á Háskólasvæðinu, i
Skipholti, við Lágmúla, Borgartún og i Skeifunni. Uppbyggingu þar
ætti að ljúka á fyrri hluta skipulagstimabilsins".
Gera má ráð fyrir þvi, að nokkuð hafi hægt á þeirri þróun, sem hér
er lýst, vegna samdráttar i efnahagslifinu að undanförnu og
fyrirsjáanlegra erfiðleika á næsta ári með hliðsjón af auknum
aflatakmörkunum. Engu að siður er ekki ástæða til að ætla annað
en lýsing Bjarna sé i meginatriðum trúverðug þótt einhverjar tafir
verði á framkvæmdum.