Árbók Reykjavíkurborgar - 01.11.1991, Page 185
169
LEIGA OG GJÖLD VEGNA BÍLASTÆÐA
(Heimild: Rekstrardeild gatnamálastjóra)
Stððumælar og gjaldskrárbreytingar frá 1. janúar 1988.
Gjaldskrárbreyting, sem hafði verið samþykkt i borgarráði 18. desember
1987, tók gildi 1. janúar 1988. Gjald fyrir 30 minútur hækkaði úr 20 kr. i
50 kr., gjald fyrir 60 minútur hækkaði úr 30 kr. i 100 kr. (2x50).
Aukaleigugj ald hækkaði úr 300 i 500 kr. og nefnist nú aukastöðugj ald.
Gjald i stæðasjálfsala hækkaði úr 30 kr. á klst. i 50 kr. á klst. Nokkur
óánægja kom fram hjá fólki vegna þessara hækkana og herts aðhalds. Þvi var
það að 5. júli 1988 var samþykkt i borgarráði sú tillaga borgarstjóra, að
þeim stöðumælum, sem voru með 1/2 klst. hámarkstima skyldu breytt þannig,
að hámarksgj aldtimi yrði 1 klst. eins og á öðrum stöðumælum i borginni.
Gjald i stöðumæla yrði eftir sem áður kr. 50 á klst., en gilti fyrir 1
klst. i stað 1/2 klst. áður. Einnig að sé aukastöðugjald, sem var 500 kr.,
greitt áður en 3 virkir dagar eru liðnir frá dagsetningu álagningarseðils,
fái greiðandi afslátt, þannig að greiða verði kr. 300. Sama gildi um
stöðubrotsgjald. Séu gjöld þessi hinsvegar ekki greidd innan tveggja vikna
komi á þau 50% álag og beitt verði þeim álögum, sem lög leyfa.
Hinn 28. nóvember 1989 var ákveðið i borgarráði að lengja hámarkstima úr 1
klst. i 2 klst. á 227 gjaldreitum i nokkrum götum. Hugmyndin á bak við
þessa breytingu var sú, að færri ættu að falla á tima en áður. í
júlimánuði sama ár hafði komið til framkvæmda sú breyting á C-giróseðlum að
greiða beri stöðvunarbrotagjöld fyrir 7. dag næsta mánaðar eftir álagningu
gjaldsins, en var áður innan tveggja vikna frá álagningu, en gjaldið
hækkaði ella um 50%.
Haustið 1990 ákvað borgarráð, að gjaldskyldutími í stöðumæla skyldi vera i
tilraunaskyni frá kl. 10.00-18.00 frá 15. október 1990 til 15. febrúar 1991
i stað frá kl. 09.00-18.00. Nokkru siðar ákvað borgarráð að gjaldskyldan
skyldi vera frá kl. 10.00-16.00, þ.e. i sex klst. i stað niu á árunum á
undan og skyldi svo vera i tilraunaskyni til áramóta 1990/1991.
BÍLAGEYMSLUHÚS.
Gjaldskrárbreytingar frá 1. janúar 1988.
1. Kolaport, Kalkofnsvegi 3. Gjaldtökubúnaður.
Gjaldið á efri hæð var 40 kr. pr. klst. frá 1. janúar 1988.
Mánaðarkort fyrir neðri hæð var á 4.000 kr., en skilatrygging 1.000 kr.
Vikugjaldið var 1.600 kr., en útkall stæðisvarða 2.200 kr. Síðan
breyttust gjöldin 1. september 1990, þannig að fyrsta klst. kostar 30
kr., en síðan 10 kr. fyrir hverjar byrjaðar 12 min. Mánaðarkortið var
nú selt á 5.500 kr. og vikugjald varð 2.000 kr. Skilatryggingargjald
korta og útkallsgjald héldust óbreytt.
Lögregla lér draga bila inn i Kolaport vegna ólöglegra lagna og urðu
eigendur að leysa þá út með geymslugjaldi portsins, en áður höfðu þeir
þurft að greiða toggjöld og sektir. Hinn 12. september 1989 fluttist