Árbók Reykjavíkurborgar - 01.12.1994, Qupperneq 17
MANNFJOLDINN
Inngangur
Tölur yfir mannfjöldann eru að venju úr Þjóðskrá Hagstofu íslands og eru þær
miðaðar við búsetu 1. desember ár hvert. Hagstofan birtir í janúar
bráðabirgðatölur mannfjöldans. Þær tölur eru notaðar við þá greiningu
mannfjöldans, sem hér er birt. Endanlegar tölur, sem birtar eru í júní, eru
notaðar í öðrum tölulegum upplýsingum.
Endanlegar tölur um mannfjöldann eru frábrugðnar bráðabirgðatölunum a ð
því leyti, að sveitarstjórnir hafa í millitíðinni sent til Hagstofunnar upplýsingar
um vantalið eða oftalið fólk í sveitafélögunum og þeir, sem voru óstaðsettir í
upphaflegu skránni, hafa verið skráðir í tilgreindu sveitarfélagi.
Sem dæmi um mismun á bráðabirgðatölum og endanlegum tölum má nefna,
að 1. desember 1993 voru íbúar Reykjavíkur taldir 101.855 en reyndust 31
færri, þegar endanlegar tölur voru birtar, eða 101.824.
Eins og getið er í upphafi eru mannfjöldatölur miðaðar við 1. desember og
hefur verið svo frá 1910. Rökin fyrir því, að þessi tímasetning var tekin upp,
voru þau, að talið var, að þann dag mundi vera almennust heimavera á
landinu. Þær forsendur eru nú varla fyrir hendi lengur, en það auðveldar allan
samanburð að halda þeirri dagsetningu þótt aðrar þjóðir á Norðurlöndum
miði fólksfjölda á íslandi við áramót. Ein undantekning er frá þeirri reglu a ð
miða fólksfjölda við 1. desember. Hún er, að við gerð endanlegra talna
mannfjöldans hefur börnum, sem fædd eru í desember verið fundinn staður í
manntali.
Á þessum áratug hefur það einkennt fjölgun landsmanna, að hún hefur mestöll
orðið á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogur, Seltjarnarnes,
Bessastaðahreppur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Kjalarneshreppur
og Kjósarhreppur) og Suðurnesjum. Á undanförnum 5 árum, 1989-1993,
hefur íbúum á Höfuðborgarsvæði fjölgað um 7,7%, en heildarfjölgun
landsmanna á sama tímabili var 4.5%. Mannfjöldinn óx um 1.6% á
höfuðborgarsvæðinu árið 1993 og um 0,4% á Suðurnesjum.
í Reykjavík fjölgaði fólki á síðasta ári um 990 eða 0,9%. í öðrum
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 2,9%. í Bessastaðahreppi
fjölgaði um 3,5%, í Mosfellsbæ fjölgaði um 4,1%, um 4.2% í Hafnarfirði og
2,0% í Kópavogi. Fjölgun í Garðabæ var 1,7% og á Seltjarnarnesi um 2,4%.