D-listinn - 13.01.1942, Síða 1
1. árgangur
Siglufirði, 13. janúar 1942
1. tölublað
Á V A R P.
Góðir Siglfirðingar!
Af þeim listum, sem um á að kjósa við í hönd
farandi bæjarstjórnarkosningum þann 25. þ. m. hefir
einn listinn — D-listinn — sérstöðu. Hinir listarnir
eru bornir fram af pólitískum flokkum, flokkum, sem
á líðandi kjörtímabili og áður hafa farið með völdin
i bænum. Það ej í sjálfu sér óþarft að fara mörgum
orðum um þessa lista. Störf þeirra pólitisku flokka,
sem að þeim standa í landsmálum og störf fulltrúa
þessara flokka, þeirra, sem í bæjarstjórn hafa átt sæti,
eru kunn öllum bæjarbúum. Þess er þvi að vænta,
að Siglfirðingár greiði atkvæði þannig á kjördegi
komanda, að úrslit kosninganna verði hæfiíegt svar
við helstefnu þeirri i málefnum kaupstaðarins, sem
þessir pólitisku flokkar hafa fylgt siðastliðið kjörtíma-
ail og reyndar áður.
D-listinn er borinn fram af þeim mönnum, sem
hafa séð fram á það, að ef ráðandi flokkar eiga að
fara með völdin í bænum áfram, þá er málefnum
kaupstaðarins stefnt í voða, mönnum, sem hafa trú
á framtíðarmöguleikum Siglufjarðar og bera það traust
til Siglufirðinga, að þeir kunni skil þess, hvað sé
bænum og sjálfum þeim til farsældar; mönnum, sem
hafa vantrú á helstefnu fráfarandi bæjarstjórnar í
málefnum bæjarins. í skjótri svipan sagt: D-listinn
er borinn fram af mönnum, sem þykir vænt um
þenna bæ og vilja í einu og öllu velferð Siglufjarðar
og Siglfirðinga.
D-listinn er svar Siglflrðinga við helstefnu
þeirra pélitísku flokka, sem stjórnað hafa
bænum undanfarið.
D-listinn er fram kominn, sem fyrsta tilraun Sigl-
firðinga til þess, að mega stjórna sjálfum sér og því
bæjarfélagi, sem þeir lifa í, þannig, að öllum megi
til blessunar verða. Við, sem að þessum lista stönd-
um, sjáum ekki þann hagnað, sem bæjarfélaginu ætti'
að vera að því, að pólitískir hagsmunir og klíkuþörf
einstakra flokka, séu fyrst og fremst höfð í huga, er
ráða skal fram úr málefnum bæjarfélagsins. Við lítum
svo á, að stjórna beri þessu bæjarfélagi með hag
þess tyrir augum — eingöngu, alveg án tillits til’
þess hvort einum flokki eða öðrum, sé pólitískur
hagnaður af eða ekki. Við viljum ekki láta stjórna
málefnum bæjarins út frá flokkslegum sjónarmiðum
til hagnaðar fyrir pólitíska flokka. Við viljum að
bœnum sé stjórnad til hags og farsœldar Siglfirðingum.
D-listinn er listi óháðra manna. Það þýðir, að
aðstandendur þessa lista eru ekki bundnir neinum
pólitískum ílokki. Þetta þýðir aftur það, að afstaða
okkar til málefna bæjarins er ekki háð neinum flokks-
Iegum hagsmunum. Þessvegna getum við tekið þá
*
afstöðu til hvers máls, er við teljum að megi verða
til mestrar blessunar fyrir bæinn.
Þetta er einlægur ásetningur okkar og þess vegna
er það trú okkar og vissa, að.Siglfirðingar hafi þann
sama ásetning og vilja. Vegna þessa fyrst og fremst
er D-listinn íram kominn. D-listinn er raunverulega
eini listinn, sem er listi Siglfirðinga. Þess vegna mun
það reynast svo, að þeir Siglfirðingar, sem trúa á fram-
tíðina, — framtíð Siglufjarðar og framtíð Siglfirðinga—,
aö þeir, sem kjósa frekar lífrænt
starf, en helstefnu hinna pólitísku
flokka, þeir
k j ó s a
D - í i s t a n n.